Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Blóðslóð í
íþróttahúsi
Lögreglan á Selfossi
vinnur nú að rannsókn á
innbroti í íþróttahúsið í Þor-
lákshöfti snemma síðastlið-
inn laugardag, líklega á milli
klukkan sex og sjö. Rúða var
brotin í útihurð og í tveimur
öðrum hurðum á leið inn í
afgreiðslu og út á sundlaug-
arsvæðið. í afgreiðslunni var
sjóðsvél eyðilögð. í henni
voru engir peningar og því
hefur sá sem þama var á
ferð ekkert haft upp úr
krafsinu annað en að skera
sig því blóðdropar voru á víð
og dreif á leið brotamanns-
ins. Lögregla biður þá sem
búa yflr einhverri vitneskju
um málið að hafa samband.
EinarMárá
Hólmavík
Félagsmiðstöðin Ozon á
Hólmavik heldur lista- og
menningarhátíð næstkom-
andi laugardag þar sem
Einar Már Guðmundsson
verður aðalgestur hátíðar-
innar. Mun Einar lesa upp
úr verkum sínum auk þess
sem boðið verður upp á
fjölbreitta dagskrá með
tónlistaruppákomum. Auk
Einars munu koma fram
hljómsveitirnar Dansband
Victors, Micado, Bjútí and
ðe Bíst, Bjarni Ómars og
beibís, Hjörtur og Rósi
Núma og fleiri. Frá þessu er
greint á vefnum bb.is.
Nemum fækk-
arfyrirvestan
Grunnskólanemendum
á Vestfjörðum hefur fækkað
um 82 frá 2001. Grunnskól-
ar voru 14 á Vestfjörðum
2001 en eru nú 13, Brodda-
nesskóli var lagður niður
2004. Fækkun hefur orðið í
öllum nema þremur skól-
anna. Mest hefur fækkað í
Grunnskólanum í Vestur-
byggð, sem samanstendur
af Patreksfjarðarskóla,
Birkimelsskóla og Bíldu-
dalsskóla, eða um 32 nem-
endur. Hlutfallslega er
fækkunin þó mest í Grunn-
skólanum á Tálknafirði þar
sem nemendum fækkaði úr
61 í 48, eða um 21%. bb.is
greinir frá.
Aðfaranótt sunnudagsins 15. ágúst í fyrra var framið hræðilegt morð á varnarliðs-
svæðinu á Keflavikurflugvelli. Calvin Eugene Hill er ákærður fyrir að hafa stungið
hina tvítugu AshleyTurner til bana. Calvin gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu
verði hann fundinn sekur. Hann er einnig kærður fyrir fjölda brota í starfi.
Atgangurínn
Stúlka myrt út at
30 búsund krúnum
varsvo
harðurað
blóð slettist
upp um alla
veggi.
Calvin Eugene Hill gæti þurft að eyða því sem eftir er ævinnar bak-
við lás og slá eða jafnvel fengið banvæna sprautu í æð verði hann
fundinn sekur um morð á varnarliðskonunni Ashley Tumer.
Morðstaðurinn, íbúðablokk á Keflavíkurflugvelli, bar merki þess
að mikil átök hefðu átt sér stað en blóð var um alla veggi og gólf.
Fréttablað Bandaríkjahers, Stars auðveldlega upp eins og aðstæður á
and Stripes, greindi frá því í gær að
Calvin Eugene Hill hefði verið
ákærður fyrir að myrða hina tvítugu
Ashley Turner sunnudagskvöldið
14. ágúst á síðasta ári.
DV barst ákæran. í henni er Cal-
vin Eugene sakaður um morð af
ásetningi. Verði hann fundinn sekur
gæti Calvin samkvæmt herlögum
endað í lífstíðarfangelsi eða jafnvel
verið tekinn af lífi.
Stal korti Ashley
Forsagan er sú að Calvin hafði
lent í deilum við Ashley Turner í
byrjun árs 2005. Calvin og annar
hermaður á Keflavíkurflugvelli
höfðu stolið Bank of America-
kreditkorti og peningum af Ashley.
Verðmætið var rétt yfir fimm hund-
ruð dollurum eða ríflega þrjátíu þús-
und krónum.
Upp komst um málið og var fé-
laga Calvins Eugene vikið úr hern-
um og hann fluttur úr landi. Calvin
Eugene hélt samt kyrru fyrir á her-
stöðinni í Keflavík og beið eftir rétt-
arhöldum vegna þjófnaðarins.
Blóð um alla veggi
Bandaríkjaher hefur ekki skýrt frá
af hverju Ashley var stödd í blokk-
inni þar sem hún var síðan myrt.
Samkvæmt heimildum DV réðst
Caivin á Ashley eftir að upp úr sauð í
viðræðum þeirra um þjófnaðinn.
Calvin er sagður hafa stungið
Ashley margsinnis með eggvopni.
Atgangurinn var svo harður að blóð
slettist upp um alla veggi.
Stungin margsinnis
Ashley Turner hefur ekki gefist
morðstaðnum sýndu. Atökin hófust
á annarri hæð blokkarinnar en það-
an skreið Ashley niður á fyrstu hæð-
ina þar sem hún lést. Aðrir varnar-
liðsmenn fundu Ashley þar sem hún
lá í blóði sínu í sófa í stigagangi
blokkarinnar.
Hringt var á herlögregluna sem
kom stuttu síðar á vettvang. Það var
þó um seinan því á sófanum fjaraði
líf Ashley út og var hún úrskurðuð
látin á staðnum.
Calvin Eugene virðist hafa vitað
hvað beið hans því þegar herlögregl-
an vitjaði hans var hann enn í her-
bergi sínu og hafði ekki reynt að
komast undan.
Alltaf til vandræða
Svo virðist sem að Caivin Eugene
hafi verið til vandræða á Keflavíkur-
flugvelli allt frá byrjun síðasta árs.
Alls er ákæran gegn Cafvin í fimm
liðum.
Fimm ákærur
Fyrsta ákæran lýtur að störfum
Calvins Eugene. Hann er sagður
hafa tekið sér frí án leyfis frá 12. til
14. aprfl 2005.
Ákæra númer tvö snýr að því að
Calvin hafi gefið rangar upplýsingar
um ferðir sínar frá 11. tfi 14. apríl
2005.
Þriðja ákæran er fyrir morðið á
Ashley. Þar er Calvin ákærður fyrir-
morð cif ásetningi.
Fjórða ákæran varðar þjófnað á
peningum Ashley og láeditkorti
hennar.
Fimmta og síðasta ákæran lýtur
að hindrun á framgangi réttvísinnar.
Sagt er að með morðinu á Ashley
Ashley Turner Stungm margsinnis á Keflavfkurflugvelli I
á síoasta ári og var úrskurðuð látin þegar varnar-
liðsmenn fundu hana.
Bæjarráðsformaður heimilaði framkvæmdir sem bæjarráð hafði bannað
Sakaði formann um siðleysi og gekk á dyr
„Þetta eru siðlaus vinnubrögð og
gjörsamlega óþolandi," segir Magni
Kristjánsson, bæjarfulltrúi í Fjarða-
byggð, um þá ákvörðun Þorbergs
Haukssonar bæjarstjóra að heimUa
framkvæmdir við samkomuhúsið
Félagslund á Reyðarfirði.
Magni segir í bókun á síðasta
bæjarráðsfundi að á fundi ráðsins
þar á undan hafi verið ákveðið sam-
hljóða að láta stöðva framkvæmdir
leigjanda Félagslundar þar til samn-
ingur milli hans og bæjarins hefði
verið undirritaður.
„Nú á fundi númer 324 upplýsir
formaður bæjarráðs að hann hafi
Hvað liggur á?
leyft umræddar framkvæmdir, þvert
á vUja bæjarráðs og án samráðs við
það. Þar sem efni þessa fundar er að
stórum hluta tengt þessu máli sé ég
ekki ástæðu tU að sitja hann lengur
en vona að svona vinnubrögð séu
einsdæmi sem ekki endurtaki sig.
Tekið skal rækilega fram að þetta
hefur ekkert að gera með afgreiðslu
málsins eða afstöðu mína ef ákvarð-
anataka hefði áfram verið í höndum
bæjarráðs."
Þorbergur bæjarstjóri bókaði þá
að hann bæðist afsökunar en að
hann teldi sig hafa unnið í umboði
meirihlutans til „að forða fram-
kvæmdaaðilum frá óþarfa kostn-
„Það liggur á að koma út disknum Nýja Textamentið sem hljómsveitin mín Fjölskyldan er
að gefa út, “ segir Arnór Ingimar Þorsteinsson . Á laugardaginn erum við svo að hita upp
fyrir hljómsveitina The Pharcyde á Gauknum. Það er allt á fullu hjá mér þessa dagana. “
aði.“ Og Þorbergur bætti því við að
Magna væri samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum óheimilt að vflcja af
fundinum.
Magni Kristjánsson yfirgaf síðan
fundarstaðinn og bæjarráðið sam-
þykkti þar á eftir að heimila fram-
kvæmdirnar í Félagslundi.
Magni Kristjánsson Magni
sakar Þorberg Hauksson, for-
mann bæjarráðs ÍFjarða-
byggð, um siðlaus vinnubrögð.