Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 30
r 30 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 Lífið DV Báröur Örn Bárðarson Sér um bubbl.is. Aðdáendaklúbbur Bubba Morthens verður formlega stofnaður á fimmtugsafmælis- deginum hans 6. júní næstkomandi. Sama dag stefnir í stórtónleika í Höllinni. i aimænsp Bubbi fimmtugur Öll um hljómsveitunum hans hóað saman I af- mælisveislunni? Bubbi Morthens verður fimmtug- ur 6. júní næstkomandi og úti um all- an bæ eru menn að undirbúa stóraf- mælið, glæsilegar endurútgáfiir og tónleikar eru á teikniborðinu. Utan um fáa íslenska tónlistarmenn er bet- ur haldið á netinu eins og sjá má á bubbi.is. Um síðuna sér Bárður Öm Bárðarson. Til stendur að taka síðuna í gegn og birta hana breytta á afinæl- isdaginn og sama dag verður aðdá- endaklúbbur Bubba formlega stofii- aður. Bubbi ánægður með framtakið Bárður segir að aðdáendaklúbbur Bubba hafi lengi verið í deiglunni. „Við gerðum tilraun með þetta fyrir síðustu Þorláksmessutónleika. Leyfð- um þá fólki sem hefiir verið duglegt á spjallþræðinum að komast inn á und- an öðrum og vera á svæðinu þegar Bubbi var að æfa sig fyrir tónleikana. Harðir aðdáendur Bubba vom mjög ánægðir með þetta framtak.“ Bárður segir að það sem reki hann áfram sé að búa til vettvang fyrir að- dáendur Bubba. „Menn hafa ræðst við á netinu en það hefúr dáldið vant- að upp á að menn hittust. Svona klúbbur býður upp á ýmsa mögu- leika, menn geta skipst á efrii, jafnvel verð- ur gerð sérstök plata fýrir meðlimi og þeim boðið í for- hlustun á nýjum plötum. Karlinn verður auðvitað fimmtugur í ár svo það er gullið tæki- færi að koma þessu á flug núna. Við höfðum samband við umboðsmann- inn hans sem kom fréttunum til Bubba. Hann tók mjög vel í þetta." Stórtónleikar í Höllinni? Þótt klúbburinn verði ekki formlega stofhaður fyrr en 6. júm' er þegar byijað að skrá meðlimi á vefepark@bubbiis. Bárður segist hafa fengið sterk við- brögð þótt þetta hafi ekki verið kynnt annars staðar en á heimasíðunni. Hann segir að efnt verði til sam- keppni um nafn á klúbbinn og lógó. „Það em komnar nokkrar hugmyndir, dáldið augljósar eins og Serbinn, Bubbinn og Stál og hnífur. Svo er meiningin að bóka sal, það fer eftir því hversu margir verða komnir í klúbbinn hversu stóran sal við þurfúm, og halda stofnfundinn 6. júm'." Ljóst er að fundarstaðurinn þarf að vera í nágrenni Laugardalshallar- innar því það hefur heyrst að Bubbi ætli að standa fyrir stórtónleikum þar að kvöldi afinælisdagsins. Ekkert hefúr fengist staðfest í þessum efnum en orðið á götunni segir að Bubbi ætli að koma fram með öllum hljómsveit- unum sínum og það sem meira er; með öllum orginal liðsmönnunum. Þetta verður ekki amalegt lænöpp því við erum að tala um Utangarðsmenn, Egó, Das Kapítal, MX81, GCD og Stríð og frið. Saimkallað stórskotalið. Það er allavega ljóst að Bubbi ætíar ekki að taka því rólega og fá sér snittur og kransakökur á afrnælisdaginn. Nokkrir íslenskir aðdáendaklúbbar Aðdáendaklúbbar hafa verið við- loðandi tónlistarbransann síðan elstu menn mima og í seinni ú'ð hafa þeir færst inn á lendur intemetsins. Nokkrir íslenskir tónlistarmenn eiga sér aðdáendasíður á netinu. Þeim sem best hefur gengið í útíöndum eiga fjölmargar aðdáendasíður. Síður um Björk og Sigur Rós skipta tugum og Emih'ana Torrini, Múm og Quar- ashi eiga nokkrar, þótt eðlilega hafi h'tið verið uppfært á síðum Quarashi lengi. Nokkrar síður em starfræktar á íslandi. Birgittaworld.com sinnir Birgittu Haukdal og Herbert Guð- mundsson á sinn klúbb. Sálin hans Jóns míns á líka öflugan her aðdá- enda sem kallar sig Gullna liðið. Full- víst er að Bubbaklúbburinn muni slá í gegn, enda hafa fáir verið eins dugleg- ir í gegnum ú'ðina og enginn selt fleiri plötur á fslandi. Ég sting upp á nafn- inu Hirð kóngsins. glh@dv.is Tískusérfræðingar í Hollywood voru hneykslaðir á Drew á Golden Globe-verðlaun- unum. Hún mætti i grænum Gucci-kjól en engum brjóst- haldara. Madonna Flottí rauðum Gucci-kjól. Leikkonan Drew Barrymore mætti á Golden Globe-verðlaunahaúðina 1 januar 1 græn- um, mjög sætum Gucci-kjól. Drew Barrymore er gullfalleg og með glæsilegan líkama, en hún ákvað að mæta í kjólnum án þess að vera í brjóstahaldara. Konur með stór brjóst ættu að vita hversu erfitt það er vera í svona kjól án stuðnings. Á bresku tónlistarverðlaununum var Madonna í eins kjól, nema í rauðu. Drew hefði mátt taka drottninguna til fyrirmyndar um hvernig á að ganga í Gucci. Drew kann þó að gera grín að sjálfri sér og var kynnir í grínþáttunum Saturday Night Live þar sem hún klæddist kjól með risa gervi-júllur hangandi niður á gólf. DV-mynd Nordic Photos/Getty Images/Netið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.