Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 3I. MARS 2006
Fréttir DV
Tekinn á 194
kílómetra
hraða
Lögreglan í Reykjavík
stoppaði tvítugan ökumann
aðfaranótt fimmtudags sem
ók á 194 kílómetra hraða á
klukkustund. ökumaðurinn
var stöðvaður á Vesturlands-
vegi á móts við Hafravatns-
afleggjarann. Lögreglan í
Reykjavík segir að mikið sé
um hraðakstur upp á síð-
kastið og á einum sólarhring
stöðvaði lögreglan 18 öku-
menn fyrir of hraðan akstur.
Af þeim voru 14 á yfir 100
kílómetra hraða á klukku-
stund í þéttbýli.
Þrjú innbrotí
Austurbænum
Lögreglan í Reykjavík
fékk tilkynningu um þrjú
innbrot í Austurbæ
borgarinnar aðfara-
nótt fimmtudagsins.
Brotist var inn í fyrir-
tæki og iðnaðarhús-
næði og virðast sömu
innbrotsþjófamir hafa
verið að verki í öllum
tfifellunum þar sem
samskonar innbrots-
aðferðir voru notaðar. Inn-
brotsþjófurinn eða þjófamir
hafa enn ekld náðst en málið
er í rannsókn.
Vestfirðingar
gefa smáfuglum
Náttúrustofa Vestfjarða
minnir Vestfirðinga á hag
smáfugla í vetrarhörkunni
sem geisar þessa daganna,
að sögn bb.is. Hefur stof-
an sent út leiðbeining-
ar hvernig best sé að fóðra
fuglana og má finna þær hjá
Fuglavemdarfélagi íslands.
Nokkuð er um að fuglar
hrekist vestur yfir vetrar-
hörkurnar og því tilvalið að
létta þeim lífið með því að
gefa þeim brauð eða fleira
sem finna má á vef fugla-
verndunarfélagsins.
Verkstæði illa
séðíhesthúsi
„Vegna ítrekaðra at-
hugasemda við notkun
húsnæðisins að Stekkjar-
vaði 9 bendir nefndin á að
notkunin samrýmist ekki
gildandi skipulagi svæðis-
ins," segir í bókun skipu-
lagsnefndar Árborgar sem
er ósátt við að eitt hetshús-
anna í hesthúsabyggðinni í
Stekkjarvaði sé notað sem
trésmíðaverkstæði.
Kópavogskaupstaður hélt 1400 manna árshátíð í Fífunni á laugardagskvöldið. Þar söng
Bubbi Morthens sex lög og Örn Árnason var veislustjóri. Kostnaður setur nú svip á
allar samræður bæjarstarfsmanna á kaffistofum bæjarskrifstofanna.
Bubbi söng sex lög lyrir
400 púsimd kpónur
Kostnaður vegna skemmtikrafta á árshátíð Kópavogskaupstaðar
sem haldin var í Fífunni síðasdiðið laugardagskvöld skekur nú
kaffistofur og afdrep starfsmanna á bæjarskrifstofunum. Altalað
er, og um fátt annað rætt, en að Bubbi Morthens hafi tekið 400
þúsund krónur fyrir að syngja sex lög á árshátíðinni og Örn Árna-
son leikari þegið 250 þúsund krónur fyrir veislustjórn.
„Ég man ekki hvaða
lög Bubbisöng en mig
minnir að hann hafi
tekið Rómeó og Júlía"
Bubbi Morthens Fékk 66 þúsund krónur
fyrirhvert lag sem harm söng fyrir
bæjarstarfsmenn f Kópavogi á árshátíð
þeirra á laugardagskvöldið.
„Ég gef engar upplýsingar um
kostnað vegna þessa en vissulega kem-
ur allt fé vegna verka á vegum bæjar-
ins úr sameiginlegum sjóðum bæjar-
búa," segir Linda Udengaard, sem sat
í skemmtinefnd vegna árshátíðarinn-
ar. „Þetta tókst allt vel og tfi þess verð-
ur að líta að Bubbi er svo sannarlega
Kim Larsen íslands," bætir hún við en
vísar að öðru leyti á formann árshátíð-
amefiidar, Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóraíKópavogi.
Fluttur í bæinn
„Þessar tölur eru fjarri lagi og ég
gef ekkert upp um samninga við lista-
mennina enda kom ég ekki nálægt
þeim. Þeir áttu það hins vegar all-
ir sammerkt að vera Kópavogsbúar,"
segir Gunnar bæjarstjóri og vísar þá
tfi þess að eftir skilnaðinn við Brynju
flutti Bubbi af Seltjamamesinu í nýja
hverfið ofan við Elliðavatn sem tfi-
heyrirKópavogi.
Fékk lóð en ekki pening
„Og hvað veislustjóm Amar Áma-
sonar viðvíkur þá fékk hann ekkert
greitt vegna þess að hann er nbýbúinn
að fá lóð hjá okkur. Ég borga honum
kannski aukalega með konfektkassa
fyrir næstu jól," segir Gunnar I. Birg-
Rómeó og Júlía
Þrátt fyrir þetta hefur DV áreiðan-
legar heimfidir fyrir þeim upphæðum
sem að framan greinir. Fjögur hundr-
uð þúsund krónur fym sex lög þýðir að
Bubbi hafi fengið um 66 þúsund krón-
ur fyrir hvert lag sem hann söng á árs-
hátíðinni í Fífunni.
„Ég man ekki hvaða lög Bubbi
söng en mig minnir að hann hafi tek-
ið Rómeó og Júlía," segir bæjarstjórinn
sem eins og aðrir skemmti sér vel á
árshátíðinni í Fífunni.
1400manns
„Þetta var flott árshátíð og hér vom
um 1400 manns," segir Ásta B. Gunn-
laugsdóttir, umsjónarkona Fífunn-
ar, sem sjálf komst ekki á ársháti'ðina
þar sem hún þurfti að fylgja eigin-
manni sínum, Samúel Emi Erlingssyni
íþróttafréttamanni, á árshátíð Rfldsút-
varpsins sem haldin var sama kvöld.
„En ég leit héma við en sá ekki Bubba.
Því miður," segir Ásta í Fífunni.
Gunnar Birgisson Gefur ekkert upp um
samninga við listamenn nemaþað að þeir
hafí allir verið Kópavogsbúar - þar á
meðal Bubbi sem er fluttur íbæinn.
Sopinn góður í Skagafirði
Svarthöfði á rætur að rekja tfi
Skagafjarðar og þykir sín heima-
sveit að sjálfsögðu mest og best
allra á landinu. Það gladdi hans
hjarta ósegjanlega að sjá hér í blað-
inu að Skagfirðingar geta bætt enn
einni skrautfjöðurinni í hatt sinn.
Þeir eiga orðið óumdeilanlega þrek-
mestu stúlku landsins þegar kem-
ur að drykkju áfengis. Eldra viský
og yngri konur var eitt sinn sungið
um en þessi stúlka sameinar þetta
tvennt í eitt svo um munar. Lét sig
ekki muna um að sporðrenna 34
staupum af sterku áfengi í nær ein-
um rykk og fór svo á barinn tfi að
Hvernig hefur þú þaö
Svarthöföi
1
skola þessu niður með einum eða
þremur bjórum. Og stóð á löppun-
um það sem eftir var kvöldsins þegar
aðrir vom löngu sofhaðir eða komn-
ir á sjúkrahús með áfengiseitrun.
En okkar stúlka varð ekki einu sinni
timbruð á eftir.
Það er leitun að hörkugellum
sem þessum á landinu. Nú þegar
allir dýrka heilalausar blondínur af
báðum kynjum sem hafa h'tið fram
„Ég hefaldrel haft það betra“segir Þorsteinn Stephensen hjá Herra Örlygi. „Égá litla þriggja
og hálfs mánaðar dóttur sem hefur breytt lífinu og gert þaö enn stórkostlegra. Svo erum við að
byrja með nýtt frábærlega skemmtilegt festival sem heitir Vorblót, eða Rite of Spring á ensku.
Skemmtilegir tónlistarmenn, meðal annars frá Brasillu, Balkanlöndunum, Svlþjóö og Skotlandi
koma til landsins dagana 27. til 30. aprtl og verða með tónleika ásamt íslenskum tónlistarmönn-
um vlða um borgina. Ég á von á að þetta festival verði afsvipaðri stærðargráöu og lceland
Airwaves I náinni framtlö."
að færa annað en „gasseigirðu" eða
„skillirðu" í mislélegum sjónvarps-
þáttum um andlaust skemmtanalíf-
ið í höfuðborginni er gott að vita af
raunverulegum beibum í Blöndu-
hlíðinni. Beibum sem geta drukkið
hvaða sjómann sem er undir borðið
áður en viðkomandi hefur svo mikið
sem stunið upp úr sér „gassegirðu".
Svarthöfði vonar að þetta sé upp-
hafið að útrásinni úr innsveitum
Skagafjarðar inn í skemmtanalífið
hér fyrir sunnan. Það væri fengur að
þessari stúlku sem innslag í einn af
þessum sjónvarpsþáttum. Hún gæti
lagt blondínuna Gillzenegger í sjó-
mann, andað áfengiseitrun fram-
an í Áma Kolbeins eða rutt barinn á
Oliver í einum rykk. Það væri sjón-
varpsefni af viti.
Skagfirðingar hafa æti'ð haft orð á
sér sem gleði- og hestamenn og nú
bæta þeir enn einni skrautfjöðurinni
í hatt sinn. Við bíðum spenntir eftir
að Skjárinn eða Sirkus setji á kopp-
inn raunveruleikaþátt beint af Bam-
um á Sauðárkrók þar sem klámkyn-
slóðin að sunnan reynir að drekka
skagfirskar meyjar undir borðið.
Áfram Skagafjörður.