Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
Fréttir DV
Fastagestur á Grand Rokki segir nýjan vert hafa gengið í skrokk á sér og fleygt út af barn-
um svo að hann er blár og marinn. Áður hafði vertinn, Þorsteinn Þórsteinsson, fengið
innihald bjórglass fastagestsins yfir sig eftir þrætu um myndatöku inni á staðnum.
Lóðirvoruá
röngum stað
Breyta þarf fjórum ný-
byggingalóðum í Vatns-
leysustrandarhreppi vegna
þess að lega fipim hektara
lands í eigu bæjarins reynd-
ist önnur en talið hafði ver-
ið. „Því er nauðsynlegt að
breyta staðsetningu lóð-
anna og hefur lóðaumsækj-
endum verið gerð grein fyr-
ir því. Þessi breyting lækkar
kostnað við gatnagerð veru-
lega, núverandi gata nýt-
ist betur," segir í fundar-
gerð bæjarstjórnar þar sem
greint er frá jákvæðum hlið-
arverkunum málsins. Gatan
sem nýju húsin rísa við fær
naftiið Heiðarholt.
|
Baldurtil
Finnlands
Breiðafjarðarferjan
Baldur fer sína síðustu sjó-
ferð yfir Breiðafjörðinn í
dag. Skipið hefur verið selt
til Finnlands. Önnur skip
Sæferða, fyrirtækisins sem
rekur Baldur, leysa Baldur
af hólmi þar til nýi Baldur
kemur til landsins um miðj-
an apríl. Skipið tekur um
helmingi fleiri bfla, um 45-
50, og rúmlega 300 farþega.
Ferðin milli Brjánslækjar
og Stykkishólms mun stytt-
ast um 50 mínútur með til-
komu nýja Baldurs.
Bandaríkin
ogolían?
Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrverandi sendiherra.
„Bandaríkjamenn hafa komiö
sér upp risavöxnum herstöðv-
um í írak. Einnig hafa þeir lagt
sig fram um að koma upp
herstöðvum í fyrrverandi
rikjum Sovétríkjanna. Þeir eru
að endurskipuleggja
herstöðvarnet sitt um allan
heim. Hluti afheimsvalda-
stefnu þeirra er rányrkja á
olíuauðlindum annarra þjóða
þvl orkubúskapur Bandarlkj-
anna er gjörsamlega
ósjálfbjarga."
Hann segir/Hún segir
„Þeir vilja ráða yfir ollunni eins
og fiestu öðru. Þeir viija ailtaf
stjórna hlutum sem þeir eiga
ekki neitt með að gera.
Annars er ég ekki neitt á móti
Bandaríkjamönnum.""
Erla Margrét Gunnarsdóttir,
gjaldkeri Heimdallar.
Barþjónn É lastapest
og fteygði öfugum ut
Á Grand Rokk Barinn á
Smiðjustíg hefur notið mikilla
vinsælda um árabil.
Grand Rokk virðist hafa tapað einum af sínum elstu fastagestum
sem varpað var þar á dyr eftir að hafa skvett bjór á vertinn.
Fastagesturinn sem um ræð-
ir segist hafa vanið komur sínar á
Grand Rokk á Smiðjustíg í ellefu ár.
Hann vill ekki að nafns hans sé get-
ið þótt hann sé reiðubúinn að segja
hvernig atburðarrásin á Grand Rokk
síðdegis á miðvikudaginn var kom
honum fýrir sjónir.
Hvað hefðir þú gert?
Þorsteinn Þórsteinsson, sem rek-
ið hefur Grand Rokk í um tvo mán-
uði eftir að eigendaskipti urðu á
staðnum fyrir síðustu áramót, segist
ekki vilja tjá sig um þetta mál.
„Það er mín stefna að það sem
gestir gera hérna inni kemur ekki
öðrum við. Þetta verður ekki rætt
frekar," segir vertinn en staðfest-
ir þó óbeint að hann hafi hent út
umræddum gesti sem hellt hafi yfir
hann bjór: „Hvað hefðir þú gert?"
svarar Þorsteinn með spurningu á
móti.
Óeining um myndatöku
Að sögn fastagestsins kom upp
misklíð milli hans og Þorsteins þeg-
ar barþjónn á Grand Rokk tók til við
að taka ljósmyndir inni á staðnum.
Við það hafi hann gert athugasemd-
ir en ekki fengið hljómgrunn fýrir
sjónarmið sín hjá Þorsteini. Þá hafi
komið til orðaskipta sem leitt hafi til
i\
þess að hann hafi „klárað úr glas-
inu" á Þorstein. Við þennan atburð
hafi orðið vatnaskil í samskiptum
þeirra Þorsteins.
Sveif út í boga
Skipti engum togum, að sögn
fastagestsins, að eftir að hann hafði
skvett bjómum á Þorstein hefði vert-
inn snarað honum fram gólfið og lát-
ið högg og spörk dynja á honum við
spilakassa sem eru þar á staðnum. Að
endingu hafi honum verið hent út á
þann hátt sem enginn hafi hent hon-
um út áður: í stórum boga þar til hann
skall á gangstéttinni fyrir utan.
Óttast um þvagblöðru
Eftir þessa meðferð segist fasta-
gesturinn hafa skjögrað heim til sín
við illan leik. Þegar Uðið hafi verið að
kvöldi hafi óbærilegir innvortis verk-
ir orðið til þess að hann afréð að láta
kanna ástand sitt á sjúkrahúsi. Þar hafi
læknar í fyrstu óttast að þvagblaðran í
honum væri sprungin en svo hafi ekki
reynst vera. Eftir sitji hins vegar skýrir
og bláir marblettir hér og þar.
Fastagesturinn segist ekki hafa
hug á að kæra Þorsteinn. Hann segist
á hinn bóginn ekki heldur á leið inn á
Grand Rokk aftur. „Það verður ekki á
næstunni," svarar hann ákveðinn.
gar@dv.is
mm
Þorsteinn Þórsteinsson Henti ut
gesti sem hellti yfir hann bjór á
Grand Rokk á miðvikudaginn.
Hatrömm barátta á evrópskum vatnsmarkaði
Fiji sækir að Jóni Ólafssyni
Vatnframleiðandinn Fiji hefur
hleypt auglýsingaherferð af stokk-
unum þar sem varað er við bráðnun
jökla. Þar er því haldið fram að rétt-
ast sé að drekka Fiji-vatnið sem sæki
hráefni sitt annað.
Auglýsingaherferð Fiji er bersýni-
lega beint gegn vatnsframleiðslu
Jóns Ólafssonar athafnamanns sem
selur og kynnir vöru sína undir nafn-
inu Glacier sem þýðir jökull.
vararnú við bráðnun jökla.
Jón hefur um nokkurra ára skeið
verið að koma undir sig fótunum á
vatnsmarkaði beggja vegna Atlants-
hafsins með þeim árangri að helsti
keppinauturinn beinir nú spjótum
sínum að honum í einni umfangs-
mestu auglýsingaherferð sem vatns-
framleiðandi hefur lagt í.
Fiji-vatnsframleiðandinn kynnir
tærleika vatns síns helst með fossum
og ávöxtum enda er nafn framleiðsl-
unnar sótt til Kyrrahafseyjunnar Fiji
semrómuðerfyrirveðursæld ogfeg-
urð. Þar fóru hins vegar fram miklar
tilraunir með kjarnorkusprengjur á
árum áður en á þær er ekki minnst í
auglýsingum fyrirtækisins.
Á vatnsmarkaði er búist við að Jón
Ólafsson svari fyrir sig með eigin aug-
lýsingum áður en langt um líður. Jón
er nú staddur á heimili sínu í Cannes
í Frakklandi og undirbýr ráðstafanir
við hæfi. Á meðan vinna reykvískir
iðnaðarmenn hörðum höndum við
endurbætur á húsi hans við Bald-
ursgötu sem hann festi kaup á fyr-
ir skemmstu. Húsið var áður í eigu
Nordal-ættarinanr og aldrei kallað
annað en ættaróðal þeirra. Þar verð-
ur framtíðarheimili Jóns Ólafssonar
og fjölskyldu hans hér á landi.