Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ2006 Fréttir DV Egg með nafni Allah Hæna í bænum Stepnoi í Kasakhstan hefur verpt eggi sem ber nafh Allah á sér að því er virðist. Bóndinn sem á hænuna, Bites Amantay- eva, er orðinn landsþekktur í heimalandi sínu. „Moskan okkur hefur staðfest að það er nafn Allah sem stend- ur skrifað á eggið," segir Bites í samtali við fréttastof- una Kazinform. „Við ætlum að eiga eggið og trúum því ekki að það muni rotna." Að sögn Kazinform verpti hæn- an egginu eftir mikið haglél sem gekkyfir bæinn. Ladbrokes til Víetnam Stjórnvöld í Víetnam hafa ráðið veðmálafyrirtæk- ið Ladbrokes sér til hjálpar við að lögleiða fjárhættuspil í landinu. Er Ladbrokes eitt af þremur slíkum fyrirtækj- um sem fengin hafa verið til þessa verkefnis. Lad- brokes hafði áður aðstoð- að stjórnvöld í Kína við að opna fyrstu veðmálastof- urnar þar í landi. Ólögmætt fjárhættuspil hefur verið landlæg plága í Víetnam um langt skeið og nú hafa stjómvöid ákveðið að gera eitthvað í málinu. Makaskipti á ströndinni Kynlíf fyrir framan gesti og gangandi og makaskipti eru orðin hversdagskostur á nektarströnd við bæinn Laholm í Svíþjóð. Að sögn Hallandsposten segir sá sem ber ábyrgð á strönd- inni að þetta kynsvall sé al- gerlega farið úr böndunum. Fjöldi kvartana hefur borist til bæjaryfirvalda en þau segja á móti að það sé orðið of seint að grípa inn í mál- ið fyrir þetta sumarið. Það sem einkum fer fyrir brjóst- ið á bæjarbúum, fyrir utan skoppandi hvíta rassaum alla ströndina, er að börn eru stöðugt að rekast á not- aða smokka í fjöruborðinu. NASA fylgist með múrspaða Múrspaði sem breski geimfarinn Piers Sellers á Discovery missti óvart frá sér er nú á athugunarlista NASA þar sem hann svíf- ur umhverfis jörðina á 25 földum hljóð- hraða. Um er að ræða sérsmíðað 150 þúsund króna verkfæri sem flaut upp úr tækjabelti Sellers er hann var í geimgöngu. Um 20 ratsjárstöðvar hers- ins um víða veröld fylgjast með spaðanum en hann fer hringinn í kringum jörðina á 90 mínútum. Stjómend- ur í Huston stríddu Sellers á tapinu og báðu hann um að telja verkfæri sín áður en þeir hleyptu honum aftur um borð í geimskutluna. Matthew Nagle er 26 ára Bandaríkjamaður sem er lamaður frá hálsi og niður úr. Vís- indamönnum hefur nú tekist að koma nema fyrir í heila hans og getur hann nú notað heilabylgjur sínar til að keyra tölvu, stjórna sjónvarpstæki og vélmenni. „Ef heili þinn getur starfað getum við tengst við hann,“ segir John P. Donoghue prófessor í tauga- fræði við Brown-háskólann en Donoghue hefur stjórnað tilraunum á þessu sviði. Getur spilað tölvuspil með heilabylgjum sínum Nagle er sá fyrsti sem tilraunir með nema þennan voru gerðar á. Nemanum var komið fyrir í þeim hluta heila hans sem stjórnar hreyfingum. Nú getur Nagle notað heilabylgjur sínar eða hugsun til að hreyfa tölvu- mús, opna tölvupóst, spila ein- faldan tölvuleik sem kallast Pong og teikna grófgerðan hring á blað með aðstoð vél- mennis. Bandaríska blaðið The New York Times fjaiiaði um þetta mál nýlega í kjölfar umfjöllunar í tímaritinu Nat- ure. „Ég náði tökum á þessari tækni á um fjórum dögum," segir Matt- hew Nagle í samtali við NYT en hann dvelur nú á New England Sinai-spít- alanum í Massachusetts. Hann bætir því við að neminn í heila hans valdi honum engum sársauka. Nagle er fyrrverandi fótboltahetja frá Weym- outh en hann lamaðist fyrir neð- an axlir eftir að hann var stunginn í hálsinn í slagsmálum í júlí 2001. Hann man ekkert eftir þessum slags- málum en sá sem stakk hann afplán- ar nú 10 ára fangelsisdóm. Prófað á öpum fgræðsla á nemum eins og Nagle gengur með hefur verið prófuð á öpum með góðum árangri. Einnig hafa einfaldari nemar verið grædd- ir í heila fólks og tilraunir hafa ver- ið gerðar með að festa elektróður á höfuð fólks. Það sem skilur að Na- gle og fyrri dæmi er að neminn sem græddur var í hann er mun flókn- ari að gerð en áður hefur þekkst og hann nær til mun fleiri taugaenda en fyrri tæki. Samt sem áður er neminn aðeins 4 sinn 4 millimetrar að stærð og hefur 100 elektróður í sér. Nem- anum var komið fyrir á því svæði í heilanum sem stjórnar hreyfingum. Neminn er síðan tengdur í gegnum gat á höfði Nagle við tölvu þannig að Nagle er beintengdur við harða disk- inn á tölvunni, svona svipað og sjá mátti í Matrix-myndunum. fmyndar sér hreyfingarnar Það sem Nagle gerir er að hann ímyndar sér þær hreyfingar sem hann ætlar að framkvæma. Neminn skynjar svo rafboðin sem fara um það svæði heilans sem stjórnar hreyfing- unum og kemur þeim upplýsingum áleiðis í tölvuna. En það eru mörg ljón í veginum enn til að tækni þessi gagnist öðrum sem svipað er ástatt um. í fyrsta lagi virðast elektróðurnar sem notaðar eru skemmast eða eyð- ast á nokkrum mánuðum og er ekki vitað af hverju það stafar. f öðru lagi verður að finna upp tækni sem gerir nemanum kleyft að senda skilaboð sín þráðlaust úr heilanum en ekki í gegnum gat eins og nú er en það eyk- ur mjög hættu á ýmsum sýkingum. Og í þriðja lagi urðu vísindamenn að endurskipuleggja kerfið hjá Nagle á hverjum degi en það tók um hálf- tíma í hvert sinn. BrainGate ígræðslukerfið í heild ber nafn- ið BrainGate og það er fyrirtæk- ið Cyberkinetics Neurotechnology Systems í Massachusetts sem er að þróa það. Talsmenn þess vonast til að hafa þróað það fyrir almennan markað árið 2008 eða 2009. Sjálfúr gat Nagle stjórnað tölvu áður með rödd sinn svo hann þurfti í raun ekki ígræðsluna. En hann er ánægður með að hafa tekið þátt í þessari til- raun. „Ég hef gefið fullt af fólki nýja von," segir hann. Playboy-stúlkan og net-leikfang ársins 2005 Amy Sue Cooper Hún er hákarl í kauphöllinni Hin 23 ára gamla Amy Sue Coop- er er þekkt fyrir flest allt annað en þekkingu sína á hlutabréfamarkað- inum. Samt er stúlkan algjör hákarl í kauphöllinni og hefur gefið mörg- um sérfræðingum þar langt nef und- anfarna mánuði. Amy Sue er best þekkt sem Playboy-stúlka og hand- hafi titilsins net-leikfang ársins 2005 hjá tímaritinu. Þessa stundina tekur hún þátt í hlutabréfaleik sem Play- boy stendur fyrir en ávinningurinn á að fara til góðgerðarmála. Það eru tíu Playboy-stúlkur sem taka þátt í leiknum en aðeins tvær þeirra hafa sýnt hagnað. Og af þeim er Amy Sue í sérflokki. Frá því að leikurinn hófst fyrir sex mánuðum hefur Amy Sue náð 33% hagnaði í viðskiptum sínum í kaup- höllinni vestan hafs. Þessi hagnaður er einkum því að þakka að Amy Sue veðjaði sínu fé með kaupum á hlut- um í Dril Quip sem framleiðir tæki og vélar til olíuvinnslu og Pacific Et- hanol sem framleiðir lífræna díselol- íu. Ástæður þess að hún valdi hluta- bréf í þessum félögum eru að eigin sögn þær að Dril Quip „...hljómaði spennandi" og Pacific Ethanol „...af því að ég elska tré og lífræn díselolía getur betrumbætt heiminn..."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.