Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 34
46 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ2006 Helgin PV dv NÆRMYND Fjölskyldumaður Magni ásamt einkasyninum en hann segir fööurhlutverkiö hafa gerbreytt sér. Magni Ásgeirsson keppir í hinum vinsæla raun- veruleikaþætti Rock Star: Supernova Magni var einn af 15 sem valdir voru úr hópi yfir 25 þúsund umsækjenda og því má segja að hann sé þegar sigurvegari. Magni hefur verið á kafi í tónlist frá því hann var bar n á Borg- arfirði eystri. Rokkið varð alltaf fyrir valinu þangað til honum bauðst hlutverk söngvara í poppsveitinni Á móti sól en Magni hefur aldrei séð eftir þeirri ákvörð- un. Magni er trúlofaður æskuástinni sinni en þau eignuðust fyrsta barn sitt á síðasta ári. m Eurovision Magni hefur komið vlöa viö og söng lagið Flottur karl, Sæmi rokk I forkeppni Eurovision. sem leiddist útípoppbransann tónlistarfólk. Tveir meðlimir rokk- sveitarinnar Shape voru til dæmis systkinabörn Magna og samkvæmt heimildum spilar annar hver mað- ur í ættinni á gítar og þriðji hver syngur. Magni er mikill fjölskyldumað- ur. Þeir sem þekkja hann best segja hann þó ekki fara eins oft austur og hann vildi þar sem vinnutími tónlistarmanna er óheppilegur og starfið tímafrekt. Fjölskylda hans er hins vegar duglegri við að koma suður enda vill fjölskyldan halda nánu sambandi. Starfar við plexigler milli gigga Magni hefur starfað við ýmislegt fyrir utan tónlistina. Á unglingsár- unum var hann í unglingavinnu en hann hefur einnig unnið í fiski, hjá málara, í bakaríi og á lager. Síðustu árin hefur hann þó unnið meðfram tónlistinni hjá Akron í Síðumúla við að smíða úr plexigleri. Tónlist- in hefur alltaf átt hug hans allan. Magni safnar tónlist, hlustar mikið og fylgist vel með því sem er að ger- ast. Hann á nokkra gítara og finnst fátt skemmtilegra en að spila á þá. Samkvæmt þeim sem standa hon- um næst skipa kvikmyndir einnig mikilvægan sess í lífi Magna og svo auðvitað vinirnir og fjölskyldan. Trúlofaður æskuástinni Magni og æskuástin hans, Eyrún Huld Haraldsdóttir, eignuðust sitt fyrsta barn í september í fyrra en sonurinn hefur fengið nafnið Mar- inó Bjarni. Magni og Eyrún höfðu lengi vitað hvort af öðru en kynnt- ust ekki fyrir alvöru fyrr en árið 1997. Þau vorum saman í Mennta- skólanum á Egilsstöðum en Eyrún er frá Egilsstöðum. Á skólaballi þar sem hljómsveitin Sóldögg spil- aði fyrir dansi féllu þau svo fyrir hvoru öðru. Eitt leiddi af öðru og fyrr en varði voru þau orð- in par. Þetta var fyrir níu árum og í dag eru þau trúlofuð. í viðtali við DV stuttu eftir sonurinnfædd- ist sagði Magni að föðurhlut- verkið hefði gjörbreytt honum. „Föður- hlutverk- ið breytti mér algjör- lega á sömu sekúndu og ég sá son minn í fyrsta sinn. Það er það ánægju- legasta sem ég hef nokkurn tím- ann tek- ist á við og jafn- framt það erfiðasta en ég nýt hverrar mínútu út í æsar," sagði Magni uppljóm- aður og bætti við að fjöl- skylda sín væri númer eitt tvö og þrjú. „Vinirnir taka næstu sæti þar á eftir og tónlist á sætin þar á eftir. Þetta er það sem gefur líf- inu gildi." Nýjasta hetja okkar íslendinga, Guðmundur MagniÁsgeirsson, eða Magni í Á móti sól eins og hann er best þekkur, fæddist á Egilsstöðum þann 1. desember 1978. Magni bjó fyrstu 15 árin á Borgarfirði eystri þar sem hann byrjaði í sinni fyrstu hljómsveit aðeins 11 ára gamall. Hann er þriðji í röðinni af fjór- um börnum en fjölskyldan býr á Borgarfirði. Foreldrar hans, Ásgeir Arngrímsson og Bergrún Jóhanna Borgfjörð, eru bændur í sveitinni. Á móti sól breytti öllu Á unglingsárunum lá leið Magna á heimavistarskólann á Eiðum þar sem hann sökkti sér ofan í tónlist af alvöru og stofnaði meðal ann- ars hljómsveitina Shape sem gaf út eina plötu. Árið 1999 tók líf Magna hins vegar breytingum þegar hon- um bauðst að fronta hljómsveit- ina Á móti sól. Magni þáði boðið og flutti suður til Reykjavíkur þar sem hann hefur búið síðan. Hljómsveitin varð fljótt þekkt á landsvísu og Magni frægur sem söngvari enda er Á móti sól ein af helstu sveitaballahljómsveitum landsins. Hljómsveitin hefur gef- ið út sex plötur og hafa tvær þeirra komist upp í gullplötu. Sveitin hef- ur einnig haldið tónleika víða um heiminn, meðal annars í Dan- mörku, Þýskalandi, Noregi, Lúx- emborg og í hinum fræga Cavern- klúbbi í Liverpool þar sem Bítlarnir réðu eitt sinn ríkjum. Tónelsk ætt Magni skellti sér í Menntaskól- ann á Egilsstöðum eftir heimavist- arskólann á Eiðum. Hann hefur þó ekki lokið stúdentsprófi en á að- eins eftir örfáar einingar. Tónlist- in hefur alltaf átt allan hug hans en í fjölskyldu hans leynist fleira Aheyrnarprufur Magni bjóst ekki viö miklu þegar hann skráöi sig I áheyrnarprufur fyrir rokkþáttinn Rock Star: Supernova. Hann var valinn 115 manna hóp aftæplega 30 þúsund manns sem vildu ólm komast aö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.