Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 32
44 FÖSTUDACUR 21. JÚLÍ2006
Helgin DV
Rósa Jóhannesdóttir, fiðluleikari og söngkona, er ávallt með hugann við heilsuna þegar hún eldar. Rósa
er ekki vandætin og borðar þorramat og skötu með bestu lyst auk þess sem soðin lifrarpylsa er í sér-
stöku uppáhaldi hjá henni. DV kíkti í heimsókn í eldhúsið til Rósu.
ittBíSBS
smsms:
!$0$m
Rosa Johannesdottir Aospurð segist
Rósa ekki íara mikið útað borða þessa
dagana þarsem hún sé með litla
prinsessu sem halcii sér heima.
Eldhúsið mitt
Einfalt en gott Eldhúsið hennar Rósu er
einfalt en þægilegt.
„Ég elda mikið af pasta og
grænmeti en minna af kjötrétt-
um,“ segir Rósa Jóhannesdóttir
fiðluleikari og söngkona. Rósa er
langt því frá að vera vandætin og
borðar flest allan mat. Hún segist
ekki borða öðruvísi mat á sumrin
en veturna. „Mér finnst voðalega
gott að fá mér heitar súpur jafnt á
sumrin sem veturna og mér þykir
þorramatur ofsalega góður en
hann er það eina sem er árstíða-
bundið. Þar sem ég er vestfirsk
finnst mér skatan ofsalega góð en
þó borða ég hana aðeins í kringum
jólin," segir Rósa.
Ætlar að taka slátur
Uppáhaldsmatur Rósu er soðin
lifrarpylsa. „Það slær henni ekkert
við," segir hún en viðurkennir að
hún hafi aldrei sjálf tekið slátur.
„Mig langar rosalega til að prófa
það og hef sett það á stefnu-
skrána."
Rósa hefur ekki prófað sig mikið
áfram í lífrænt ræktuðum matvæl-
um en þar sem hún á þriggja mán-
aða dóttur hefur hún aðeins verið
Borðar hollan mat Rósa hugsar mikið um hollustuna þegar hún eldar og reynir að hafa
salötin sem litrfkust.
að kanna úrvalið af lífrænt ræktuð-
um barnamat. „Ég leit inn í Ygg-
drasil um daginn því ég ætla að
reyna að gefa henni sem mest af
lífrænni mjólk og grautum."
Aðspurð segist Rósa ekki fara
mikið út að borða þessa dagana
þar sem hún sé með litla prinsessu
sem haldi sér heima. „Áður kíkti ég
þó af og til og þá aðallega á ítalska
staði, það var nú ekki fjölbreyttara
en það." Aðspurð um uppá-
haldsveitingastaðinn nefnir hún
Sólon. „Mér finnst voðalega gott
að setjast niður á Sólon og svo er
Lækjarbrekka alltaf í uppáhaldi
líka."
Hristir ekki veislur fram úr
erminni
Rósu þykir gaman að útbúa
veislur en segist þurfa langan tíma
til að undirbúa sig. „Ég hristi veisl-
urnar ekki alveg fram úr erminni
en hef mjög gaman af því að fá fólk
í mat og bjóða uppá mat, kökur og
eftirrétti," segir hún brosandi. Þeg-
ar hún er spurð hvort hún hugsi
mikið um hollustuna þegar hún
Brauð fyrir fólk
á farandsfæti:
2 bollar rugmjó! eda heilhveiti
1 bolli hveiti
3/4 bolli púdursykur
2 bollar AB mjólk
1 tsk. salt
4 tsk. lyftiduft
1 bolli rúsinur
1 bolii kornmeti, svo sem graskersfræ,
sesamfræ, sólblómafræ og hörfræ.
Einnig er gott oð setja döðlur, grófikj-
ur eðo valhnetur.
Allt þurrmetið sett i skál og siðan
er AB mjólkinni bætt út í og
hrært í með sleif. Einnig er hægt
að setja mjólk í stað AB mjólkur-
innar eða nota bæði. Smyrja
form og bíða í ca. 20 mínútur
áður en bakað er. Bakist við 175°
í ca. 1 klst.
eldi segir hún svo vera. „Ég hef
gaman af því að borða litríkan mat,
ég reyni að hafa salötin sem litrík-
ust og borða mikið af fjölbreyttu
grænmeti því þá líður mér vel."
indiana@dv.is
Á sumrin er um að gera að slaka á í heimilisverkunum og eyða tímanum frekar úti við
Kæruleysi í heimilisverkum á sumrin
Sumarið er tíminn til að verja
úti við. Það skiptir ekki öllu máli
þótt heimilið sé ekki tipptopp frá
vori til hausts. Nægur tími gefst í
heimilisverkin þegar myrkrið
kemur með sínum kulda. Á sumr-
in er tilvalið að dveljast úti á ver-
önd eða á svölum eða bara úti í
garði. Það er alltaf hægt að gera
eitthvert gagn svo þeir duglegustu
fái ekki samviskubit. Er ekki kom-
inn tími til að mála grindverkið
eða bera á sólpallinn? Svo er um
að gera að halda sér í formi með
því að slá garðinn reglulega. Á
sumrin erum við oft hlaupandi
inn og út svo það gefst sjaldnast
tími til að fara úr skónum. Hvað
gerir það líka til þótt það komi
gras og örlítil mold inn á parkett-
ið eða flísarnar? Við skulum öll
slaka á í sumar í heimilisverkun-
um og reyna heldur að njóta veð-
urblíðunnar. Sumarið er heldur
ekki svo langt á landinu okkar og
því um að gera að slappa af og
njóta þess á meðan á því stendur
en einbeita okkur svo að heimil-
inu þegar veturinn kemur og við
neyðumst til að vera inni.
Hreingerning Notum
heldur kaldari tfma ársins til
að taka heimilið I gegn.