Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 38
50 FÖSTUDAGUR 21. JÚU2006
Helgin PV
Sumaríð er tíminn til að sökkva sér ofan í góða bók, hvort sem er í bústaðnum eða cj
púisinn á nokkrum einstaklingum og athugaði hvaða bækur þeir höfðu á náttborðí
Kristján Kristjánsson
FRÉTTAMAÐUR
Ég er að lesa ævisögu Maós for-
manns í augnablikinu, eftir Jung
Chang og Jon Halliday Jung, og er
kominn þokkalega inn í hana. Hún
er gríðarlega fróðleg og varpar ljósi
bæði á manninn og kínverskt samfé-
lag á hans dögum. Hún er allt að því
spennandi á köflum. Ég las jafnframt
nýverið Móðir í hjáverkum, þótti
hún heldur döpur, og svo Mölbrot-
inn eftir James Frey. Hún fjallar um
bandarískan 23 ára gamlan alkóhól-
og dópista sem þarf að gera það upp
við sig hvort hann ætlar að drepa
sjálfan sig eða hætta að drekka og
dópa. Hún var kröftug og öflug.
Viðar Þorsteinsson
ÚTGÁFUSTJÓRINÝHILS
Ég las frábæra bók um daginn. Hún
heitir Trier on von Trier, eftir Stig
Björkman, og er viðtalsbók við
leikstjórann Lars von Trier. Það
sem gerir bókina áhugaverða er að
í henni er von Trier heiðarlegur um
sjálfan sig og ferilinn, en hann á það
til að bregða fyrir sig kaldhæðni í
viðtölum sem þessum. Ég las einn-
ig nýlega bók eftir Philip Roth sem
heitir The Plot Against America og
hún var góð sem léttmeti. Ég byrjaði
svo um daginn á Meistari Jim eftir
Joseph Conrad og er enn að melta
hana.
Benni Hemm Hemm
TÓNUSTARMAÐUR
Ég hef verið svo önnum kafinn und-
anfarið að lestur hefur því miður
þurft að sitja á hakanum, en ég hef
verið að leggja lokahönd á nýja
plötu sem er væntanleg í haust. Síð-
asta bókin sem ég las og mér fannst
góð er Elsku Míó minn eftir Astrid
Lindgren, í þýðingu Heimis Pálsson-
ar. Annars hef ég einnig verið að lesa
íslenskar þjóðsögur sem Ólafur Dav-
íðsson safnaði saman. Þetta er geð-
veikt safn af alls kyns sögum, flokk-
að eftir viðfangsefni. Ég hef einkum
verið að lesa draugasögurnar og þær
eru frábærar.
Edda Andrésdóttir Guðrún Eva Mínervu-
FRÉTTAMAÐUR
Þú hittir á mig í Leifsstöð, ég var að
koma frá Lanzarote. Ég er því með
Lanzarote eftir Michel Houellebecq
í farteskinu og ætla að lesa hana við
fyrsta tækifæri. Af þeim bókum sem
ég hef lesið í sumar stendur Minn-
ingar um döpru hórurnar mínar eftir
Gabríel García Márquez án efa upp
úr. Ég er líka byrjuð á Living to Tell
the Tale, ævisögu Márques, og hún
lofar góðu. Á náttborðinu mínu er
bók sem heitir Japanese for Beginn-
ers, sem fjaliar um japanska konu
sem snýr aftur til Japans. Ný bók
Milans Kundera, Tjöldin, er einnig
á náttborðinu, enda er hann í miklu
uppáhaldi hjá mér.
dóttir RITHÖFUNDUR
Ég er búin að sökkva mér vandlega í
ljóðabókaseríu Nýlúls. Þessar bækur
anga af spennandi framtíð og vil ég
nefna sérstaklega tvær þeirra: Framlag
Vals Antonssonar, Eðalog, en höfund-
ur þessi virðist búa yfir ótnilegri vits-
munalegri dýpt sem hressir mann og
kælir. Og ekki er bók Kristínar Eiríks-
dóttur síðri. Hún heitir Húðlit auðnin
og þegar maður les hana frá byrjun
til enda h'ður manni eins og maður
hafi lesið fjögur hundruð síðna epíska
skáldsögu sem skilur eftir sig húð-
lita slilqu á sálinni. f fyrra fékk ég svo
færeyska bók í jólagjöf eftir glaðlega
konu að nafni Óddvör Johansen. Bók-
in heitir Sebastianshús. Ég hef aðeins
gluggað í hana og fæ ekki betur séð
en að þýðing Úlfs Hjörvar sé góð. Ég
hlakka til að lesa þessa bók.