Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Síða 44
56 FÖSTUDAGUR 21.JÚLI2006
Helgin PV
Helgi Felixson, einn víðförlasti kvikmyndagerðarmaður landsins, hefur undanfarin ár einbeitt sér að heim-
ildarmyndagerð þar sem bágstaddir minnihlutahópar og vanvirt náttúra sem eru í bráðri hættu vegna yfir-
gangs gírugra auðhringa og samviskulausra stjórnvalda eru í brennipunkti. En hann gerir líka hógværari
myndir, jafnvel rómantískar.
„Ég hef dvalist samtals fjórtán mánuði í öðrum heimsálfum á
síðustu tveimur árum," segir Helgi Felixson ævintýra- og kvik-
myndagerðarmaður, sem í 20 ár hefur rekið kvikmyndafyrir-
tæki í Stokkhólmi og einbeitt sér að heimildarmyndagerð þar
sem öll veröldin er mögulegt leiksvið. Helgi hefur undanfarið
dvalist hér á landi við undirbúning heimildarmyndar um sam-
göngu- og byggðasögu Skaftfellinga þar sem þungamiðjan er
mótorskipið Skaftfellingur VE-33. í samtali við DV segir Helgi
frá kvikmyndaferlinum og því sem efst er á baugi í kvikmynda-
gerð hans í náinni framtíð.
Þú hefur komiö víöa viö á þínum
kvikmyndaferli, hver er rauði þráö-
urinn íþeirri sögu?
„Þetta var allt mjög smátt í snið-
um í upphafi. Ég rak einhverskon-
ar rassvasafyrirtæki og var með
ýmis áform um kvikmyndagerð en
kunni lítið sem ekkert til verka. Þó
tókst mér að gera nokkrar mynd-
ir tiltölulega fljótt, sumar sem
vöktu athygli og umræður eins og
til dæmis Sœnska Mafían og Bóndi
er bústólpi. Fyrir þá síðarnefndu
var ég nánast gerður burtrækur af
landinu og fór því að leita meira út
fyrir landsteinana eftir fjármagni
og samstarfsaðilum. Það gekk mis-
jafnlega og á tímabili freistaðist ég
til að starfa í augiýsingabransan-
um, gerðist framleiðandi eða með-
framleiðandi á myndum annarra,
en síðustu árin hef ég einbeitt mér
að eigin framleiðslu sem ég vil kalla
„skapandi heimildarmyndagerð",
eða „creative documentary"."
Þú hefur þá þurft líkt og aðr-
ir kvikmyndagerðarmenn að eyöa
megninu aftíma þínum íffármögn-
unarvinnu?
„Já, fjármögnun kvikmynda, sér
í lagi heimildarmynda, getur oft
verið snúinn og lítið kvikmyndafyr-
irtæki eins og mitt á oftar en ekki
litla möguleika í samkeppni við
þau stóru þannig að þetta er mik-
il barátta í hvert sinn. Sænski kvik-
myndabransinn er ekkert öðruvísi
en sá íslenski, það eru margir um
hituna eða á spenanum ef mað-
ur orðar það þannig. Sjóðakerfið
skipist á að gefa spena en hópurinn
stækkar þó svo að spenarnir séu
alltaf jafn margir."
Hvaöan koma þá peningarnir?
„Ég geri eins og aðrir, sæki um
hjá sjóðum, sjónvarpsstöðvum, fyr-
irtækjum o.s.frv. en ólíkt öðrum hef
ég verið duglegur að tengja verkefni
milli landa og vekja áhuga sjón-
varpsstöðva í fleiri en einu landi þó
svo að sumar af seinni heimildar-
myndunum hafi verið hugsaðar fyr-
ir kvikmyndahús. Eins og til dæm-
is Under stjárnorna, sem ég gerði í
Suður-Afríku 2003. Menn eru fyrst
núna að taka upp á því sem ég byrj-
aði á fyrir 15 árum bara af því að ég
sá engan annan möguleika. En yf-
irleitt er þetta norræn fjármögnun,
sjóðir og sjónvarpsstöðvar og mest
kemur frá Svíþjóð."
Erfitt að fjármagna
heimildarmyndir
Hvaö með Evrópusjóöina?
„Evrópusamvinnan opnaði auð-
vitað ýmislegt en um leið þrengd-
ust möguleikarnir vegna þess að
kröfur um eðli verkefnisins, efni,
efnistök, samstarfsaðila og margt
fleira þrengir úrval verkefna eða þá
möguleika sem maður hefur í efn-
isvali. Myndirnar verða þess vegna
ekki eins góðar - já, eða oftast. Mér
finnst tii dæmis mynd um einyrkja
á Vestfjörðum hafa í mörgum til-
vikum möguleika á að verða meira
„universal" þó svo að það sé von-
laust að fá styrki erlendis til að gera
slíka mynd. Oft heldur maður að
efnið sem maður er að fást við sé
eitthvað sem allir vilja sjá, henti öll-
um, en svo er maður á verulegum
villigötum og verkefnið dagar uppi.
Konsept - eða hugmynd, sem allir
vilja sjá og allir vilja kaupa, krefjast
þess að þú sért fyrirfram að þóknast
sjónvarpsstöð sem er með ákveðið
„slott", ramma í dagskrá sem efnið
á að passa í. Ég vil sjá meira frelsi
í kvikmyndabransanum og trúi
að það gefi betri myndir. Ég vil til
dæmis sjálfur vinna með einhvers-
konar persónulegan stíl þar sem
form og merking skapast í ferlinu.
Efnið fær að leiða vinnsluna. Vinna
„Ég geri eins og aðrir, sæki um hjá sjóðum, sjón-
varpsstöðvum, fyrirtækjum o.s.fr. en ólíktöðr-
um hefég verið duglegur að tengja verkefni
milli landa og vekja áhuga sjónvarpsstöðva í
fleiri en einu landi þó svo að sumar afseinni
heimildarmyndunum hafi verið hugsaðar fyrir
kvikmyndahús."
Marianne Greenwood og Picasso Marianne Greenwood ersá Ijósmyndari sem oftasthefur
myndað Picasso.
gegn eigin þráhyggju og uppgötva
það sem ég mæti hverju sinni. f
mínum augum er einkenni heim-
ildarmynda að þær hafa sitt eigið
líf og fyrir mig er það helsta vanda-
málið gagnvart fjármagninu. Þeir
sem styrkja heimildarmyndir vilja
fá plott, karakterþróun, jafnvel full-
búið handrit, áður en aurinn kem-
ur, sem er í sjálfu sér ómögulegt.
Þetta er allt öðruvísi en áður var.
Traustið er minna. Markhóparn-
ir kannski ekki nógu stórir og kvik-
mynd er dýrt fyrirbæri hvort sem
markhópurinn er lítill eða stór."
En þessi árœöni þín í útrásinni
hefur einmitt boriö ávöxt, ekki satt?
„Ja - það voru margir sem kunnu
ekki að skrifa orðið þegar ég byrj-
aði og auðvitað vakti árangurinn
athygli annarra kvikmyndagerðar-
manna. Það voru margir sem vildu
koma í samstarf við mig enda var
þetta á þeim tíma sem ég var mikið
að sinna framleiðandanum í mér,
tók meðal annars þátt í framleiðslu
Társ iír Steini eftir Hilmar Odds-
son og fjöldanum öllum af heim-
ildarmyndum. Ég hitti líka á þessu
Sabina Spilrein og Carl Gustav Jung Úr
kvikmyndinni um Sabinu Spilrein.
tímabili Torgny Anderberg, einn af
mentorunum í sænskri kvikmynda-
gerð.
Samstarfið við hann opnaði mér
dyrnar að ókunnum heimi, kenndi
mér að tala mínu máli, vera hreinn
og beinn og standa á minni sann-
færingu."
Þiö geröuö tvær myndir í sam-
einingu en var þaö ekki í raun hann
sem hrattþér út íœvintýrin?
„Jú, það má segja það, enda
var hann ótrúlegur ævintýramað-
ur og hafði gert fjölda mynda víða
um heim, meðal annars mynd-
ina Villervalle i Söderhavet með
Bengt Danielson, sem var einn af
áhafnarmeðlimum Kon Tiki með
Thor Heyerdahl þegar þeir sigldu