Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Side 46
58 FÖSTUDAGUR 21. JÚL/2006
Menning DV
Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri
' )' '
' '-'W-" v
■ . r-'-t’í V:. „•"X'- -.
MR SKALLAGRIMSSON
★ ★★★★
Leikari: Benedikt Erlingsson
Leikmynd: Ragnar Kjartansson
Lýsing: Lárus Björnsson
Höfundur: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
Irvine Welsh er enn að
Skoski rithöfundurinn Irvine Welsh sem
varð heimsfrægur fyrir skáldsögu sína Trains-
pottíng sem varð að kvikmynd og síðar leiksýn-
ingu er að gefa út sína áttundu skáldsögu. Hann v Ém
var sonur hafnarverkamanns í Leith og lifði lengi í
jaðri samfélagsins í Edinborg þar sem menn kölluðu
ekki allt ömmu sína. Þangað sótti hann efnið í Trainspotting. Nú
þrettán árum síðar er hann auðugur höfundur og býr til skiptis
í San Francisco, Dublin og London. Aðrar sögur hans hafa vak-
ið athygli, Filth, Glue og Porno. Nýjasta sagan hans heitir The
Bedroom Secrets of the Master Chefs og er nýkomin út. Þar segir
af ungum drykkfelldum manni sem leitar uppruna síns.
Spillane latinn
Bandaríski krimmahöfund-
urinn Micky Spillane er látinn.
Hann andaðist þann 17. júlí í
hárri elli, var fæddur 1918 og hét
réttu nafni Frank Morrison. Hann
samdi á löngum ritferli sínum
aragrúa af harðsoðnum og ofbeld-
isfullum löggusögum og var met-
söluhöfundur lengst af ferils síns.
Frank var af írskum ættum og
ólst upp í Jersey. Aðeins sautján
ára tók hann að skrifa sögur fyrir
skrípóblöð, Superman, Batman og
Captain Marvel. Hann gekk í her-
inn daginn eftir árásina á Perlu-
höfti. Sögur af ferli hans í stríðinu
og árunum á eftir eru óstaðfestar,
en hann hafði meðal annars stað-
góða þekkingu af vinnu í fjölleika-
húsi. Fyrstu þekktu sögu sína skrif-
aði hann á níu dögum, I, the Jury
kom út 1947 og sótti heimsýn sína
í vikurit á borð við Black Mask.
Þar kynntí hann til sögunnar Mike
Hammer, ofbeldisfullan og drykk-
felldan leynilögreglumann.
Utanfarir
höfunda
Þær fréttir berast frá Bjarti
að þýski útgáfurisinn Ullstein
Buchverlage hafi keypt næstu bók
Jóns Halls Stefánssonar auk rétt-
ar á Krosstré, krimmanum sem
Jón sendi frá sér í fyrra. Krosstré
var ein söluhæsta
bók síðasta árs,
endavoru við-
tökur lesenda og
gagnrýnenda á
einn veg, og hún
kom snemm-
sumars út í kilju.
Þýðingarrétt-
ur á Krosstré
hefur nú verið seldur til virðu-
legra forlaga í Danmörku, Noregi
og Hollandi, auk Þýskalands, og í
ársbyrjun var kvikmyndarétturinn
seldur til kvikmyndafyrirtækisins
Pegasus.
Nágranni þeirra kvenna á
Bjarti, JPV, hefur sent frá sér enska
þýðingu á Svaninum eftir Guðberg
Bergsson. Bernard Scudder þýddi
bókina sem kom upphaflega út í
Bretlandi fyrir allmörgum árum
og er löngu uppseld.Þá hefur
JPV sent frá sér
skáldsögu Ólafs
Gunnarssonar,
Tröllakirkju, í
enskri þýðingu
David McDuff
og Jill Burrows.
Bókin kom
upphaflega út
á íslensku 1992
og var síðan gefin út á ensku
af breskum útgefenda í tveimur
prentunum en er löngu uppseld.
Er forlagið sýnilega að sækja fé í
hendur erlendra ferðamanna sem
vilja gjarnan lesa skáldskap frá því
landi sem þeir sækja heim.
Sýningar á Landnámssetrinu í Borgarnesi hafa staðið yfir frá því í byrjun sum-
ars. Elísabet Brekkan leit á sýningu Benedikts Erlingssonar um síðustu helgi
og er yfir sig hrifin af Benedikt og Agli.
Beinflís oq blóðslettur
Baugur og Bobby Fischer
Leikarinn er í íslenskum bún-
ingi nútímans og er það mikill létt-
ir að ekki sé verið að sveifla alvöru
sverðum og hrista ryk úr göml-
um gærum sem gjarnan er ein-
kenni á svona sögulegum sýning-
um. Frásögnin þeytíst um víðan
völl og þó svo að höfuðmarkmiðið
sé að segja einmitt þessa margum-
ræddu Egils sögu þá tvinnast rétt-
lætismál samtímans hæglega inn
í atburðarásina með skírskotun til
atburða í sögunni. Þannig fá Baug-
ur, Bandaríkjaforseti og Bobby Fis-
cher hvertsína hlámrsgusu auk
þess sem leikarinn spinnur upp
stemmningsbrot er byggja á þeim
persónum sem eru í salnum.
Handbragð leikstjórans Peters
Engkvist er sýnilegt, það er skyld-
leiki með Ormstungu og þessari
sýningu en þó alls ekki verið að
endurtaka neitt.
Lýsingin er látlaus og tíl beggja
handa leikrýmisins eru drumbar
tveir sem þjóna vel leiknum, það
er bæði til að ramma inn svæðið
og eins fyrir lúna menn verksins að
tylla sér á.
Blóðslettulegur
frásagnarmáti
Þetta er karllæg nálgun á ribb-
aldasögu um mikinn kappa sem
bæði ortí vísur og drap menn glott-
andi með sitt ofvaxna höfuð.
Frásagnarmátinn gekk út á að
segja svona blóðslettulega með
kæruleysistón frá afrekum mikil-
mennisins Egils Skallagrímssonar.
Áhorfendur voru meira en til í
að láta segja sér söguna á þennan
máta þannig að þegar sögumað-
ur ætlaði að færa frásögnina inn á
alvarlegri brautir voru áhorfend-
ur ekki alveg tíl í að fylgja honum
eftir, því allir vildu hlæja meira og
meira að hinu þjóðlega ofbeldi for-
feðranna.
Frábær sýning
Hvort sem hann rignir áfram
eður ei er víst alveg óhætt að mæla
með þessari sýningu fyrir alla þá
sem hafa gaman af vitrænu leik-
húsi og vilja sjá og heyra meðferð
talaðs máls sem flæðir ffam í lík-
ingu fossa áreynslulaust en þó svo
helvíti skýrt og skemmtilega. Frá-
bær sýning í spennandi umhverfi!
Karllæg ruddaleg nálgun sem
hentar ákaflega vel hillingu land-
námsins þar sem það auðvitað
var tómur karllægur ruddaskap-
ur. Norrænir með með skipsfarma
af keltneskum konum sem þeir
höfðu kippt nauðugum með sér
og við konur nútímans eigum allt
að þakka í dag, því hvernig hefðum
við orðið ef konurnar hefðu líka
verið eins og þeir?
Það er vitaskuld mjög karl-
mannlegt að leysa sín mál þannig
að blóðið renni og...
Elísabet Brekkan
Oss hefur tæmst arfur.
Það er menningararfur.
Hvernig eigum við að láta hann
ávaxta sig?
Ég veit, komum honum í þann
búning að fleiri en þrír skarfar á
Árnastofnun geti notíð hans!
Eitthvað í líkingu við þetta hefur
sennilega brotist um í höfði snill-
ings sem kremur á sér höfuðkúp-
una og vindur upp á trýnið þannig
að úr verður fornkappi engum lík-
ur. Snillingurinn heitir Benedikt
Erlingsson. Honum tekst það sem
fræðimönnum hefur ekki tekist
hingað til, það er að gera Egilssögu
spennandi, fyndna og áhugaverða
fyrir aðra en fræðimenn.
Drullusokkur og
fjöldamorðingi
Á leikhúslofti hins nýja Land-
námsseturs í Borgarnesi geysist
hinn flinki Benedikt um í mörg-
um hlutverkum úr þessu forna riti.
Egill er og verður drullusokkur og
fjöldamorðingi en saga hans er þó
sagan okkar, það er, hún er hluti
af þessum arfi sem við verðum að
ávaxta hvort sem okkar skoðun er
að hér sé minningargrein um eðal-
menni að ræða, eður ei. Maðurinn
var jú skáld!
Beinflís úr Agli var að finnast
Til beggja handa undir súðinni
sitja áhorfendur og verða þátt-
takendur í ferðalagi milli fjalls og
fjöru, í friði og stríði og yfir mörg
höf. Frásagnarmáti leikarans er
einkenni verksins. Hann byrjar á
því að kynna fyrir okkur á spaugi-
legan hátt hvernig einhver flís
fannst í kistu í fornleifauppgrefti í
Mosfellsdalnum í fyrra. Beinflís úr
Agli, sem þýðir að Egilssaga hófst
níuhundruð og eitthvað en henni
lauk ekki fyrr en í fyrra. Á mjög
smekklegan myndrænan hátt,
með tvöfaldar dyr opnar út að haf-
inu og Brákarsund sem blasir við,
fá áhorfendur tilfinningu fyrir ná-
lægð persónanna sem fleyttu kerl-
ingar og drápu bæði tittlinga og
menn við þessa sömu strönd.