Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Side 26
Laun hinna svokölluðu „ofurforstjóra" halda áfram að vekja at- hygli á íslandi. Met var slegið árið 2004 þegar Róbert Wessman, forstjóri Actavis, var með rétt rúmar 20 milljónir króna í mánað- arlaun en nú hefur Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupthing Bank, skotið honum ref íyrir rass. Hreiðar Már var með 270 millj- ónir í árslaun eða um 22,5 milljónir á mánuði. Með þessum launum var Hreið- ar Már launahæsti íslendingurinn á síðasta ári. Hann hefur sagt í viðtöl- um að stærstur hluti þessara launa hafi verið í formi kaupréttar og að sjálf launin séu minnstur hluti af þessari himinháu upphæð. Strípuð laun hans fyrir síðasta ár voru ekki „nema" rétt tæpar 40 milljónir, eða 3,3 milljónir á mánuði. Sömu upp- hæð fékk hann síðan í bónus fyr- ir framúrskarandi rekstrarárangur. Restin var kaupréttur. Starfslokasamningar Árið í fyrra var ár „spikfeitra" starfslokasamninga. Þeir eru megin- ástæða þess að Styrmir Þór Braga- son, framkvæmdastjóri MP Fjárfest- ingarbanka, og Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Fiugleiða, eru jafn ofarlega á listanum og raun ber vitni. Styrmir Þór hætti sem for- stjóri hjá Atorku Group í september í fyrra og fékk að launum 200 millj- óna króna starfslokasamning. Sama gildir um Sigurð sem lét af störfum sem forstjóri Flugleiða eftir lang- an og gifturíkan starfsferil. Honum var launað með 160 miifjóna króna starfslokasamningi. Gósentíð hjá fjármálafyrirtækjum Það eru þó ekki bara ofurforstjór- ar og bankastjórar sem hafa not- ið góðs af uppgangi fjármálafyrir- tækja og fjárfestingafélaga. Þannig var til dæmis Jón Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri fjárfestingasviðs FL Group og nánasti samstarfsmaður forstjórans Hannesar Smárasonar, með tæpar 15 milljónir á mánuði. Skammt á eftir honum kemur Þór- arinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eignastýringar KB banka, með rúm- ar 14 milljónir. Alls voru tæplega 130 starfsmenn fjármálafyrirtækja með meira en milljón á mánuði í laun á síðasta ári, allt frá forstjórum niður í útibússtjóra. Músin sem læðist Sigurgeir Örn Jónsson, 32 ára hagfræðingur úr Garðabæ, er á list- anum að þessu sinni. Hann starfar hjá bandaríska risabankanum Bank of America og var færður til bókar í fyrra með mánaðarlaun upp á 10,8 milljónir. DV ræddi við hann í síð- ustu viku og þá kom fram að hann hafði nýverið flutt sig um set frá London til New York til að taka við deild innan bankans. Hann vildi lít- ið tjá sig um laun en heimildir DV herma að bónusar í bankaheimin- um vestra hlaupi á milljónum doll- ara á ári ef vel gengur. Hann gæti því hæglega skákað Hreiðari Má og öll- um hinum ofurforstjórunum í laun- um á næsta ári. Styrmir Þór Bragason/ framkvœmdastjóri MP Fjárfestingarbanka 16,5 milljónir. Hreiðar Mar Sigurðsson, forstjóri ; Kaupthing Bank ! 22,5 milljónir. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri í Landsbankanum 20,1 milljón. Ingólfur Hdgason, forstjóri KB banka á fslandi 8,5 milljónir. Laun ofurforstjoranna Hreioar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupthing Bank HalldórJ. Kristjánsson, bankastjóri l Landsbanka Islands Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingarbanka Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs FL Group Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eignastýringar KB bahká Sigurður Heigason, fyrrverandi forstjóri Flugleiða Sigurgeir Örn Jónsson, Bank ofAmerica Bjarni Armannsson, forstjóri Glitnis Ingólfur Helgason, forstjóri KB banka á Islandi Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjuhhár Sigurjón Þ. Arnason, bankastjóri iLandsbanka Islands Jón Karl Öiafsson, forstjóri lcelandair Group Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Islands Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums-Burðaráss Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar Friðrik Jóhannsson, forstjóri Straums-Burðaráss Róbert Wessman, forstjóri Actavis HannesSmárason, forstjári FL Group.~IZ....................... Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa.................... Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans Finnur Inqólfsson, fyrrverandi forstjóri VlS.................. Pálmi Haraldsson, fjárfestir og stjórnarformaður Fons Hörður Siqurgestsson, formaður stjórnar Landsbókasafnsins Magnús Kristinsson, fjárfestiroq eiqandi Toyota............... Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr.............................. Jóhannes Jónsson, Bónus Þorsteinn M. Jónsson, starfandi stjórnarformaður Vífilfells Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvikur Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Actavis og Buröaráss Lýður Guðmundsson, starfandi stjórnarformaður Exista Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupthing Bank Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Fjárfestingabanka Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Islands *Laun fþúsundum króna á mánuði 22.535 20.185 16.519 14.767 14.115 11.815 10.833 9.463 8.533 7.775 7.491 7.032 6.636 6.494 5.851 5.676 5.261 4.939 4.520 4.335 4.305 3.663 2.558 2.504 2.433 1.907 1.818 1.642 1.530 1.263 1.054 774 722 709 606 480 427 íSÉU.-í- Sigurgeir örn Jónsson, yfirmaður hjáBankof America 10,8 milljónir. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis 9,5 milljónir. Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Flugleiða 11,8 milljónir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.