Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2006, Blaðsíða 39
PV Helgin FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST2006 61 „Ég sá mig ekki endilega fyrir mér með ein- hverjum manni. Uppeldið mótaði mig. Ég var alin upp af hörkuduglegum konum sem gátu allt og gerðu allt og sá sjálfa mig í raun bara eina í eigin íbúð með hund ... Fyrir nokkrum árum var verið að mála þakið á húsinu hennar mömmu. Ég var að pússa panelinn þegar mér varð litið upp á þak og sá málarann. Ég vissi að þetta væri maðurinn minn." framan þær þar sem ég er iðulega við vaktstjórn kvöldfréttanna." Fréttamannsferill Sólveigar Berg- mann hófst hjá Sjónvarpinu fyrir átta árum. Þá var hún ráðin til að snúa lesvélinni á fréttastofu Sjónvarpsins. „Svo gekk þetta mjög hratt íyrir sig eins og gjamt er í fjölmiðlaheimin- um. Ég gerðist skrifta, varð fréttamað- ur í sumarafleysingum og var svo ráð- in fréttastjóri á fréttastofu Skjás Eins, allt á rúmu ári. Þegar sú fréttastofa var lögð niður varð ég atvinnulaus og þurfti þá að endurskoða ýmislegt. Til dæmis það að ég átti engin áhugamál fyrir utan vinnuna. Það er mjög auð- velt að sogast inn í fféttaheiminn og þeir tímar koma að ég þarf nánast að beita mig aga og kúpla mig frá þessu öllu saman. Netið gerir það líka að verkum að ég get tekið „fféttaiausan dag" og það geri ég stundum." Spurð hvort mikill munur sé á þeim þremur fréttastofum sem hún hefur starfað fyrir svarar hún: „Hver þeirra hefur sinn karakter, en þær eiga það sameiginiegt að þar starfar úrvalsfólk, ekki síst tæknifólkið og þeir sem starfa bak við tjöldin. Við sem lesum fréttir erum bara í ffont- inum og ekkert mikilvægari en aðrir. Það sem mér finnst skemmtilegast við starfið er að fá að vera í hringiðunni. Mér finnst skipta máli að gegna starfi þar sem við getum vakið athygli á ein- hverju og þá stuðlað að breytingum til batnaðar, gert eitthvað sem skiptir máli. Og alltaf finnst mér jafn merki- legt að við sendum fulla fréttatíma í loftíð hvað eftir annað þrátt fyrir tíma- skort og manneklu." Dýrafjandsamlega ísland Við beinum talinu að þeim fas- isma sem ríkir á íslandi gegn fjór- fætlingum og það er ekki kaffið sem gerir okkur heitt í hamsi, enda er það hálfkalt og þunnt. Reykjavík yrði örugglega dýravinsamlegri ef Sólveigfengi að ráða. „Já, það máttu vera viss um!" segir hún hlæjandi. „Þá værum við hér á kaffihúsinu með hunda okkur við hlið og hér væru sérstakir krók- ar fyrir ólarnar þeirra eins og tíðk- ast víða um heim. 1 Kaupmanna- höfn, á Spáni, í Noregi, alls staðar eru dýr velkomin. í síðustu viku var ég í lystigarði í Kaupmannahöfn þar sem ég sá sérmerktan stand þar sem hundaeigendur gátu gripið plastpoka til að hirða upp eftir þá. í Reykjavík sjást hins vegar skilti með mynd af hundi sem búið er að strika yfir og þýða að þeir eigi ekkert er- indi í lystigarða. Þeir eru alls stað- ar óvelkomnir, líkt og maður sé með óargadýr. Það er ekki einu sinni hægt að fá leigðan sumarbústað hjá verkaiýðsfélögunum þangað sem má koma með hundinn sinn." / kringum Sólveigu Bergmann er einhver óútskýranleg ró, en sjálfseg- ist hún upplifa að hún vaði á súð- um í þessu viðtali. Hún segist vera skorpumanneskja, en mjög dugleg við að gera ekki neitt. „Maðurinn minn segir að það sé svo furðulegt við mig að ég eigi sérstök föt sem ég noti tii að gera ekki neitt!" segir hún hlæjandi. „Ég stunda jóga og hef fyrir löngu gert mér grein fyrir að ef maður beitir sig ekki sjálfsaga og hvílir sig, brennur maður fljótt upp í starfinu. Ég geng mikið og við mamma erum dugleg- ar að fara saman á göngu með hund- ana okkar. Þar sem ég vinn mikið, er ég nokkurs konar helgarpabbi Blíð- finns Lúðvíks. Ég er samt dæmigerð meyja, því jafnframt því að vera dugleg við að slaka á hef ég mikinn sjálfsaga til vinnu." Fortíðarþráhyggja og draum- ar Þegar ég spyr Sólveigu hvort hún sé einhvern tíma sorgmœdd, þarf hún engan umhugsunarfrest. „Já, ég er stundum sorgmædd. Sorgmædd yfir því hvað lífið er stutt. Ég velti því stundum fýrir mér hvort ég sé að nýta það nógu vel. Svo get ég fengið mikla fortíðarþrá- hyggju. Þá sakna ég þess sem var, æskuheimilis míns og ömmu, sem lést þegar ég var fimmtán ára." Draumar? „Já, ég á marga drauma. Mér finnst ég eiga eftir að gera svo margt. Mig langar að eignast börn, helst tvö. Ég á líka eftir að skoða mikið af heiminum. Við maðurinn minn höfum farið í löng ferðalög á haust- in, til Indónesíu, Malasíu, Kúbu og Egyptalands en ég á eftir að heim- sækja Afríku. Sá draumur er næstur á dagslcrá - fyrir utan þann að ldára húsið okkar." Málarinn á þakinu Sólveig segist hafa átt nokkra kœrasta frá unglingsárunum, en draumaprinsinn var aldrei í huga hennar. „Ég sá mig ekki endilega fyrir mér með einhverjum manni," seg- ir hún hreinskilnislega. „Uppeld- ið mótaði mig. Ég var alin upp af hörkuduglegum konum sem gátu allt og gerðu allt og sá sjálfa mig í raun bara eina í eigin íbúð með hund. En svo kom ástin inn í líf mitt fyrir nokkrum árum." Og það ekki á neinn venjulegan hátt. Ekki í formi Fiðlarans á þak- inu, heldur málarans á þakinu. „Fyrir nokkrum árum var ver- ið að mála þakið á húsinu hennar mömmu. Ég var að pússa panelinn þegar mér varð litið upp á þak og sá málarann. í kjölfarið bað ég hann að mála gluggana að utan og innan svo það stefndi næstum í gjaldþrot hjá mér! Ég vissi að þetta væri mað- urinn minn. Við Kristján Haagen- sen trúlofuðum okkur fyrir þremur árum og erum að gera upp gamalt hús við Njálsgötuna, hús sem búið var að eyðileggja og við erum að koma í upprunalegt horf." Hvernig veistu að þú elskar hann? „Ég get ekki útskýrt ástina. Ég veit bara að hann er maðurinn minn. Við erum miklir vinir og ég finn fyrir ró. Ég er á góðum stað." annakristine@dv.is B im 3U'/Ac3ð£U\jsJ =1! HÚMii iiM Fæsfm.a. í FjaróarKauavm, Þv.’aihsku HOLLU5TA UR HAFINU h o 11 usta u rhaf iml@si rfin et. i s ,'v/w.simr.et.is/hollusfaurhafinu Alvöru dótabúð fyrir mótoráhugafólk !! MOTORHJOL MÓTORHJÓLA VÖRUR LOFTSIUR JMHk POWER ACOUSTIK HUOMTÆKI & DVD SPILARAR MIAMI VICE Ef verslað er fyrir kr. 3900 eða meira, fylgja tveír miðar í kaupbæti á sérstaka forsýningu Bílabúðar Benna á Miamí Vice þriðjudaginn 8.ágúst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.