Freyr - 01.04.1959, Side 34
128
PRE YR
Grænmeti.
Það orkar varla tvímælis, að ástæða væri til
að neyta grænmetis í langtum stærra mæli en
raun er á. Bezti C-vitamíngjafinn er grænmeti
og ávextir og þegar þessar fæðutegundir eru
takmarkaðar eða alls ekki í fæði fólksins, er
alltaf hætta á C-vitamínskorti. Erlendis, þar
sem rniklu meira er borðað af nefndum mat-
vælum en hér, hafa rannsóknir staðfest, að oft
er skortur á C-vitamíni og veldur það þreytu,
kvefsælni og öðrum vanheilindum meðal fólks-
ins.
Á haustin er lítil hætta á C-vitamínsko:’ti,
því að þá borðum við nýjar kartöflur, og í
þeim er þá mikið af vitamíni þessu, og svo gul-
rcfur-, en þær eru ennþá auðugri C-vitamín-
lind. En síðari hluta vetrar og á vorin er skort-
ur auðsær ef ekkert er að gert. Væ.i viðeig-
andi að rækta hér sólber og sulta þau og nota
sem C-vitamíngjafa á þessum tíma árs, því að
af vitamíni þessu eru þau mjög auðug. Kræki-
ber og bláber, varðveitt sultuð frá sumrinu áð-
ur, munu og geyma nokkuð af vitamíni þessu
og því vel kjö.in heilsulind. Grænkál er einnig
gott í þessu skyni, svo og hvítkál og silluræt-
ur.
Fiskur.
Og svo er það fiskurinn. Feitur fiskur hefur
ævinlega þótt kjarnafæða og er það lika. í
fitunni eru A- og D-vitamínin og þeirra er þörf
í ríkum mæli. Hrogn og lifur eru hreinustu
heilsulindir, því að þessi innyfli geyma svo
mikið magn nefndra efna og hrogn auk þess
B-vitamín.
Sérstök ástæða er til að minna á, að síldin
er, fyrir allra hluta sakir, ágætis fæða, sem
neytt er hér í langtum minna mæli en vera
ber.
Próteinið í fiskinum er því nær eins gildis-
auðugt og í kjöti og svo eru verðmæt sölt í
fiski. Hann er því alhliða fæða og af honum
eru margar tegundir, sem einatt er hægt að
velja í milli, einkum í verstöðvunum.
Þetta er nú sitt af hverju um matvælin. en
hvernig á að nota þau og hverju á að hafna
til þess að Nonni og Sigga litla fái það, sem
þau réttilega þurfa og þeim er nauðsynlegt?
Með hverju á að auka lyst þeirra, ef spara skal
sykur, eða eru önnur bragðefni, sem auka
löngun þeirra í þann mat, sem þau eiga helzt
að borða? Um þetta mætti margt segja, en í
fyrstu röð ber að minnast þess, að börn haga
sér alltaf fyrst og fremst eins og þau sjá að
fullorðna fólkið gerir, og ekki síður í matvenj-
um en í öðrum hlutum. Þessvegna er alveg
víst, að Nonni verður matvandur ef pabbi hans
er það og Siggu þykir bezt það, sem mömmu
hennar og stórum systrum þykir bezt. Þetta er
oftast reglan, meðal heilbrigðra barna, þó að
frávik geti verið einhver.
Önnur atriði í þessu sambandi eru samsetn-
ing fæðunnar, sjálfar máltíðirnar, og að þeim
er þá bezt að víkja.
Tvær milljónir svína
í niðiirsuðiuiósir er nú markmið það er Danir liafa
framundan og er talið að þeir muni ná fljótlega. Tvter
ntilljónir svínaskrokka á ári í dósir — það verða ntargar
dósir, en Danir telja markaðinn fyrir niðursoðið svína-
kjöt sívaxandi.
Hvað um íslenzkt lambakjöt sem dósamat á erlend-
um markaði? Mun ekki sá markaður framundan? Hefur
sú markaðsleið verið prófuð?
Laust starf
Starf fulltrúa við fræöslustarfsemi
Búnaðarfélags íslands, m. a. við
ritstjórn Freys, er laust; verður
maður ráðinn til þess starfs á kom-
andi hausti.
Umsóknir um starf þetta sendist
til Búnaðarfélags íslands fyrir 1.
júlí n.k.
Reykjavík í marz 1959.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS