Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 22

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 22
66 PREYR með olíu, sem varnar ryðmyndun og notuð er aðallega við stillingar og eftirlit á olíu- dælum. Dæla þarf síðan þessari olíu út um olíudælurnar og alla leið út um elds- neytislokann, en það er auðveldast með því að láta vélina ganga, þar til olían hefur örugglega farið gegnum eldsneytis lokann. Næst er að byrja á því að fjarlægja raf- hlöðuna og koma henni í hleðslu við fyrsta tækifæri. Ef vel á að vera, þarf að hlaða hana öðru hverju, meðan á geymslu stend- ur, svo bezt er að geyma hana þar sem hægt er að koma slíku við. Renna þarf smurolíunni af vélinni, helzt á meðan hún er heit. Gott er svo að hella ryðvarnarolíu inn í brunaholið og snúa vélinni nokkra snúninga, til þess að hún komist inn á strokkana, en loka síðan op- unum aftur, með því að festa eldsneytis- lokann á sinn stað. Önnur aðferð er þó betri, en hún er sú að hella ryðvarnarolíu, sem sérstaklega er til þess gerð, á vélina, eftir að búið er að tæma hana og láta hana ganga í 3—5 mín. Þegar taka á svo vélina aftur í notkun, þarf ekki annað en renna þessari olíu af henni og láta þá olíu á aftur, sem nota á. Tæma þarf vatnið af vatnskassa og vél, ef ekki er á kerfinu frostlögur. Ekki er nauðsynlegt að tæma olíuna af gír eða drifi. Til þess að vernda gegn ryði hina fjöl- mörgu vélaparta, sem ekki eru málaðir, er gott að smyrja þá með ryðvarnarolíum. Þær mynda himnu, sem varnar því að ryð- blettir komi fram eftir geymsluna. SMJÖRBIRGÐIR Arferðið ræður alltaf miklu um afurðamagn skepn- anna. Veðráttan um heyskapartímann ræður miklu um sprettuna og nýtingu heyjanna, en fóðurbirgðir vetrar- ins og gæði þeirra eru undirstaða þess hve auðveit reynist að fóðra skepnurnar til afurðaframleiðslu. Og svo ræður sumarveðráttan alltaf nokkru um t. d. hvernig kýrnar mjólka að sumrinu. Það þótti ekki álitlegt fyrir svo sem þrem árum síðan, er nokkrar birgðir smjörs söfnuðust fyrir, en ekki leið á Iöngu unz þær birgðir þrutu og það svo hastar- lega, að keyptar voru um 100 lestir af smjöri erlendis til þess að fullnægja þörf þjóðarinnar þannig um stund. Það fer ekki hjá því, að alltaf verða framleiðslusveifl- ur svo að nauðsynlegt er að hafa alltaf smjör til nokk- urra mánaða sem birgðir. Þessi saga er svo sem ekkert sérstök fyrir okkur Is- lendinga. Erlendis er þetta einnig talið sjálfsagt og þar eru birgðir stundum meiri en menn kæra sig um, því miklar birgðir kosta mikið í geymslu og svo er alltaf um einhverja rýrnun að ræða. í aðalframleiðslulöndum smjörs safnast stundum miklar birgðir. I 11 Evrópulönd- um hafa þær mest komizt upp í 210 þúsund lestir ný- lega og þykið það mikið. Árið 1959 námu birgðir á sama svæði mest 207.500 lestum og hafði þá þau áhrif, að smjörverð lækkaði nokkuð. Það eru tiltölulega fá lönd Evrópu, sem selja smjör á erlendum mörkuðum, en mörg kaupa, og nátt- úrlega ræður kaupgeta hinna mörgu hve mikils þær þjóðir neyta af smjöri og er það breytilegt frá einum tíma til annars. Markaðssveiflur hafa leitt til þess, að f sumum út- flutningslöndunum hefur verið gripið til þeirra ráða að veita útflutningsverðlaun af opinberu fé, en það er eins- konar meðgjöf. Sem dæmi um þetta skal nefna nýlegar fréttir er segja, að Belgía sé að selja smjör til Italíu og fái fyrir það sem svarar um 26 íslenzkum krónum, en til þess að þetta megi verða borgar belgíska ríkið sem svarar 43 íslenzkum krónum fyrir hvert kg til við- bótar, svo að framleiðenlur beri ekki skarðan hlut frá borði. Holland hefur einnig selt smjör til Austur-Evrópu og borgað sem svarar um 16 krónum með hverju kg og við sölu til Ítalíu varð að borga sem svaraði 23 íslenzkum krónum með hverju kg smjörs. Það eru fleiri en Islend- ingar, sem verða að gera sér að góðu að greiða út- flutningsuppbætur með framleiðslu sinni, þegar selja skal hana erlendis.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.