Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1971, Blaðsíða 15

Freyr - 15.01.1971, Blaðsíða 15
STEFÁN AÐALSTEINSSON: ULL OG GÆRUR frá sfónarhóli bænda og iönrekendla Prenlaö eftir handriti að útvarpserindi Ull og gærur mikilvæg hráefni Undanfarin misseri hefur framleiðsla á verðmætum ullarvörum til útflutnings færzt mikið í vöxt, og markaðir fyrir sér- stæðar vörur úr íslenzkri ull virðast fara vaxandi. Nú fer meiri hluti ullarframleiðslunnar til vinnslu í landinu, en til útflutnings fer fyrst og fremst ull sem er svo léleg að gæð- um, að hana er erfitt að nota í gæðafram- leiðslu. Því er áríðandi að fara sem allra bezt með ullina á öllum stigum, svo að sem mest komi til skila af góðri ull til notkunar í íslenzkum útflutningsiðnaði. Til þess að ullin frá hverjum einstökum fjárbónda nýtist sem bezt og nái sem beztri flokkun, er nauðsynlegt að bóndinn flokki sjálfur ullina af fé sínu að einhverju leyti strax við rúning, eða að honum loknum. Nú eiga bændur þess kost að senda ull sína sérmerkta í þvottastöðvar og fá hana metna þar, og eins er farið að kaupa ull eftir mati beint frá bændum. Ef bóndinn vill fá góða flokkun á nll... Til þess að ná góðri flokkun á ull sína þurfa bændur að setja sér eftirfarandi vinnubrögð: 1. Féð sé rúið í þurru veðri og á þurrum og hreinum stað. 2. Reyfið sé tekið af í heilu lagi og ekki klofið eða tætt í sundur í snepla. 3. Hvert reyfi sé vafið upp að rúningi loknum, og snúi þelið út, og hálsullin sé teygð og vafin í hring utan um upp- vafið reyfið og endanum brugðið und- ir vafninginn, svo að reyfið haldist vel saman. Sé ullin blaut, verður að þurrka reyfin, áður en þeim er vafið upp, og blauta klepra verður að klippa úr reyfunum, áður en gengið er frá þeim. 4. Hvíta féð sé alltaf rúið fyrst og það mislita síðast í hverri rétt. Það fer aldrei hjá því, að mikið af dökkum hárum af mislita fénu loði við rún- ingsmanninn, og þau hár berast í ull- ina af næstu kind. 5. Mislit reyfi má aldrei láta saman við hvítu ullina. Sé hvít og mislit ull látin í einn bing, slæðist mikið af dökkum hárum saman við hvítu ullina og þau stórspilla hvítu ullinni, bæði til iðnað- ar í landinu og til útflutnings. Mislitu ullinni á að halda aðgreindri eftir lit- um. 6. Þar sem eitthvað er til af alhvítu fé er sjálfsagt að halda ullinni af því sér við rúninginn og þegar hún er pökkuð. Þá ull ætti að merkja sérstaklega, þegar hún er send í mat, því að með því móti er miklu meiri von til þess að fá hana í I. flokk heldur en ef hún er blönduð saman við aðra ull. 7. Þess sé gætt að ullin geti ekki safnað í sig óhreinindum og mori, þar sem rúið er eða þegar ullin er pökkuð. Sé rúið í fjárhúsum og ullin látin í fjár- húsjöturnar verður að sópa þær vand- lega, áður en byrjað er að rýja. 8. Ullarpokarnir verða að vera vel 41 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.