Freyr - 15.01.1971, Side 29
hafa þeir unnið áfram úr eigin efni og
leitað heimilda í öllum bókmenntum lækn-
isfræðinnar, til þess að safna rökum. Þeir
segja, að börn kvenna, sem reykja að stað-
aldri, vinni smátt og smátt upp þyngdar-
skortinn eftir fæðinguna. Það getur þó
liðið eitt ár, áður en hann er jafnaður að
fullu. En sum ófædd börn eru svo mót-
stöðulítil, að þau lifa ekki áhrif tóbakins
í leginu af. Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem prófessor Scott Russel hefur nú í hönd-
um, telur hann, að sígarettureykingar valdi
þannig dauða í 8 af hverjum 1000 tilfellum.
Áður hefur verið sýnt fram á, að 40 af
hverjum 1000 þungunum fara forgörðum
vegna reykinga. Annað hvort missa kon-
urnar fóstrin seint á meðgöngutímanum,
eða börnin fæðast andvana. Með öðrum
orðum, konurnar, sem reykja að staðaldri,
eiga á samvizkunni fimmta hluta, 2 af
hverjum 10, þessara harmleikja. Þetta er
í samræmi við það, sem áður hefur verið
sýnt fram á, að konum, sem vinna í
tóbaksiðnaðinum, hættir mjög til þess, að
missa fóstur eða ala andvana börn. Vís-
indamennirnir þora ekkert að fullyrða um
það ennþá, hvernig tóbakseitrun fóstursins
er varið. Hvort hún skeður vegna hækkaðs
blóðþrýstings, aukins kolsýrings í blóðinu
eða sem bein nikotíneitrun, er enn hulið,
en þeir telja, að tími sé kominn til að
segja konunum, sem eiga börn í vændum,
umbúðalaust, að með reykingum um með-
göngutímann setji þær ekki einungis sitt
eigið líf í óþarfa hættu, heldur einnig líf
barnsins í ennþá stærri stíl. Bj. Bj.
F R E y R
55