Freyr - 15.10.1974, Síða 6
JÓHANNES EIRÍKSSON:
Mjalta-
eiginleikar
Grein þessi er hluti af erindi, sem flutt var
á ráðunauta-ráðstefnu Búnaðarfélags íslands
í mars 1972. Ýmsum atriðum, vísindalegs
eðlis, er sleppt þar eð eðli þeirra og búningur
er naumast eða ekki við hæfi almennra les-
enda, þar sem um ræðir formúlur, aðhvörf,
fylgni og önnur atriði tilraunastærðfræði-
Iegra efna. Ritstj.
Almennari vélmjaltir hafa orðið til þess
að athyglin hefur beinst í æ ríkari mæli
að mjaltaeiginleikum kúnna. Með því er
átt við hvernig kýrin er í mjöltun, gerð og
lögun júgurs, spenalag og spenasetning.
Hver og einn þessara eiginleika skiptir
miklu máli, hvernig kýrin aðlagast vél-
mjöltun.
Breyttir búskaparhættir og aukinn
vinnukostnaður hafa aukið á þörf þess að
mjaltastarfið gangi vel og sem minnst rösk-
un verði á því, er gæti tafið mjaltirnar eða
skaðað heilbrigði júgursins. Mjaltavélar og
annar tæknibúnaður við mjaltastörf tekur
sífelldum breytingum og hefur fleygt fram
miklu örar en þeir eiginleikar, er aðlaga
kúna betur að vélmjöltun, að ógleymdri
þekkingu og þjálfun í notkun mjaltavéla.
Mikill árangur hefur náðst í afurðaaukn-
ingu með kynbótum og bættri fóðrun, en
álíta verður að kynbótastarfið hljóti á kom-
andi árum að beinast æ meir að því að
bæta mjaltaeiginleikana með tilliti til vél-
mjalta. Fastmjólka kýr og kýr með júgur-
galla verða sjaldan gamlar því þær eru
oftast fjarlægðar úr fjósinu mjög fljótt.
Því er mikilvægt að þau naut, sem gera
má ráð fyrir að verði notuð mikið að lok-
inni aæfkvæmarannsókn, búi ekki yfir
erfðagöllum í júgri og spenum, og mjöltun
dætranna hafi verið mæld á meðan á af-
kvæmarannsókn stóð.
Þeir þættir varðandi mjaltaeiginleika, er
stefna ber að með kynbótum, eru í stuttu
máli þessir:
1. að kýrnar séu auðveldar í mjöltun og
júgurkirtlarnir tæmist jafnt við mjaltir,
2. að lögun júgurs og spena hæfi sem best
vélmjöltun,
3. að lögun júgurs og spena haldist með
aldrinum jafnhliða góðri afurðasemi,
4. að sem minnstar sveiflur séu á mjalta-
tíma hverrar kýr svo mjaltastarfið verði
skipulagt sem best.
Með kynbótum á þessum eiginleikum ber
ekki eingöngu stefna að því að stytta mjölt-
unartíma kúnna, fremur að mjöltunartím-
inn verði sem jafnastur. Lausmjólka kúm
hættir frekar við júgurbólgu og að þær
leki sig, en hvort tveggja eru alvarlegir
gallar.
Mestu máli skiptir er að nota ekki þau
naut til kynbóta, sem búa yfir þeim eigin-
leikum að gefa fastmjólka kýr, slæmt júg-
ur- eða spenalag eða of stóra eða illa setta
spena.
336
F R E Y R