Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 9
innri þrýsting í júgri. Mjólkurstreymi
eykst að jafnaði um o,10-o,15 kg/mín. á
1 kg aukna málnyt, en það nær ekki til
að stytta mjaltatímann með aukinni nyt.
Fylgnisstuðullinn milli mjólkurmagns
og mjólkurstreymis er ca o,5.
3. Mjaltaskeið:
Rannsóknir benda til þess að hlutfalls-
tala mjólkur á 2. mín., miðað við málnyt,
aukist um 2% eftir því sem líður á
mjaltaskeiðið.
4. Mjaltavélin:
Hollenskar rannsóknir sýna, að ótvírætt
samhengi er á milli tegunda mjaltavéla
og mjólkurstreymis. Einkum hefur sog-
styrkleikinn og gerð sogskiptis áhrif á
þann eiginleika.
5. Mjaltastarfið:
Mjaltatími kýrinnar er mjög háður
skipulagningu fjósverka og verkkunn-
áttu mjaltarans.
b. Eðlisfar:
Engar rannsóknir á mjaltaeiginleikum er
ráðast af eðlisfari, hafa enn verið fram-
kvæmdar hér, en þær rannsóknir, sem
gerðar hafa verið erlendis benda til þess,
að arfgengi þeirra sé í meðallagi eða o,5
og úrval, með tilliti til góðra mjaltaeigin-
leika, líklegt til að bera árangur.
F R E Y R
339