Freyr - 15.10.1974, Síða 15
Búfé og fóður
1971 -1973
Forðagæsla Búnaðarfélags íslands safnar
skýrslum forðagæslumanna, en þeir eiga
allir að hafa skilað skýrslum fyrir áramót.
Skýrslurnar gefa til kynna hver var eftir-
tekja liðins sumars af fóðurfeng og svo
vissum manneldisjurtum. Ennfremur skrá
forðagæslumenn fjölda þess búfjár, sem á
fóðrum er, og umræddar skýrslur gefa því
til kynna hver þessi fjöldi er um hver ára-
mót.
Síðan 1966 hefur verið samvinna með
Búnaðarfélagi íslands og Hagstofu íslands
um notkun og nýtingu forðagæsluskýrsl-
anna og Hagstofan birtir tölurnar fyrst í
Hagtíðindum og síðan í Búnaðarskýrslum.
í opnunni hér á eftir birtir FREYR að
venju samrit yfir nefndar tölur frá árinu
1973 og til samanburðar 1972 og 1971.
Tölurnar gefa til kynna ,að fjöldi búfjár
hefur aukist ár frá ári á umræddu tímabili
og gildir það allar tegundir, sem skýrslan
greinir. Fjölgunin er ofurlítið misjöfn frá
einum landshluta til annars svo sem sund-
urgreiningin segir og talar skýru máli.
Um fóðurfenginn gildir nokkuð annað,
þegar litið er á tölurnar, sem segja til um
magnið í rúmmetrum. Á árinu 1973 hefur
töðufengur verið nokkru minni en árið áð-
ur í vissum héruðum, annarsstaðar álíka,
en á vissum stöðum meiri en á fyrra ári.
Hinsvegar er það víst, að fóðurgildi töð-
unnar var óvenjulega mikið 1973, sem seg-
ir okkur aftur, að gildisauðgi töðunnar hafi
verið svipaður bæði árin, en líklega þó að-
eins meiri 1973 en 1972. Með hliðsjón af
efnagreiningum má gera ráð fyrir, að fóð-
urgildið hafi numið rúmlega 200 milljón-
um F.E. 1973, en líklega rúml. 190 milljónir
árið áður. Útheysfengur er orðinn hreinir
smámunir eða aðeins brot úr % af öllum
fóðurfeng.
Kartöfluuppskera var mjög r'ýr, eins og
tölurnar sýna og uppskera gulrófna er stöð-
ugt lítil. Nánar geta lesendur kynnt sér
þessi efni öll í eftirfarandi opnu.
fíáðningarstofa landbúnaðaríns
er starfrækt á vegum Búnaðarfélags íslands og er opin allt árið. — Dagleg
afgreiðsla er virka daga frá kl. 9—12 og 13—17, nema á laugardögum.
Hlutverk ráðningarstofunnar er að aðstoða bændur við ráðningu verkafólks,
þ. e. unglinga og fullvaxinna manna og kvenna, til hverskonar sveitastarfa.
Milligöngu um vistun barna — yngri en 12 ára — getur ráðningarstofan
ekki sinnt.
Nauðsynlegt er, að bændur í fjarlægum sveitum hafi umboðsmenn í Reykja-
vík, er ráðningarstofan getur snúið sér til í sambandi við upplýsingar, sem
vinnuveitandi og vinnuþiggjandi gagnkvæmt óska að fá, áður en ráðningar
eru bundnar fastmælum.
RÁÐNINGARSTOFA LANDBÚNAÐARINS
Sími 19200 — Reykjavík
F R E Y R
345