Freyr - 01.01.1975, Page 16
Ærnar mega ekki léttast
framan af vetri
D-fjörefni jók frjósemi og
farsœld gemlinga.
verið um búskaparlag frá lélegu uppeldi og
fóðrun í góða fóðrun, að ærnar svara ekki
strax í traustum afurðum. Það tekur ætíð
nokkurn tíma að byggja upp fyrir fram-
tíðina. Og verið ekki hræddir, bændur góð-
ir, að breyta til um búskaparlag. Þótt þið
segið eins og nágranninn, að þið hafið
ekkert fengið út úr breytingunni, þá er það,
sem kemur og koma skal.
Ég vil hér vekja athygli á grein í 17.—18.
hefti Freys 1958, um tilraun með D-fjör-
efnisgjöf (Calciferol) handa gemlingum,
sem gerð var á Hólum í Hjaltadal veturinn
1956—’57. Gemlingarnir voru léttfóðraðir
og þyngdust of lítið yfir veturinn. Þeir
lembdu, ósprautaðir, þyngdust um 5,7 kg,
þeir sprautuðu 6,5 til aprílloka. Vitamín-
olían var gefin í tveimur innspýtingum
þann 12. desember, rétt fyrir fengitíð, og
aftur 16. mars, 200.000 einingar eða 2 ml
Calciferol hverju sinni. Niðurstaða tilraun-
arinnar varð sú, að sprautuðu gemlingarnir
festu betur fang, urðu farsælli mæður að
vori, gáfu vænni dilka að hausti, 2 kg meira
kjöt í hrútlambi, sem voru 5 og 5 og 400 g
meira í gimbrarlambi, sem var eitt í saman-
burðarflokki á móti 4 í vitamínflokki,
hærri kjötprósentu og' þær lembdu þyngd-
ust 1,6 kg meira frá hausti til hausts. Hins
vegar var enginn sjáanlegur munur hjá
lamblausu gemsunum. Taða á Hólum var
stórgerð og að líkindum ekki mjög góð
þennan vetur, þótt súgþurrkuð væri, eftir
slæmt heyskaparsumar 1956, og lítið kjarn-
fóður var gefið um veturinn. Ástæða væri
til að endurtaka þessa tilraun við breyttar
aðstæður og athuga þá, hversu skal haga
fjörefnagjöf með innspýtingu undir húð
eða í vöðva, hversu oft, hve mikið og á
hvaða tíma. Eins hvort D-fjörefnagjöf gefi
svörun við eldisfóðrun. En eitthvað lúrir
með mér um, að D-fjörefnagjöf sé þarfleg
lembdum gemlingum.
Þó að beitarrölt að vetri og vori sé ekki
talið auka arðsemi fjárbúa við nútíma bú-
skaparlag, er nauðsynlegt, að góð loftræst-
ing sé í húsunum. Húsin eiga að vera þurr
og án súgs. Og áreiðanlega er gott að viðra
ærnar úti, þegar veður gefur. En þess verð-
ur að gæta, að þær haldi sig á takmörkuðu
svæði og eyði ekki orku í óþarfa ráp og
rennirí og beitardraumsjón er alls ekki um
að ræða.
í búnaðarþætti vorið 1970, sauðburðar-
rabbi 1971 og í búnaðarþætti á sauðburði
1973, drap ég á nokkur atriði, sem rétt er
8
F R E Y R