Freyr - 01.02.1976, Page 9
fríður skáldkona. Hún giftist Benedikt Ól-
afssyni frá Eiðsstöðum og var því svilkona
hinnar þekktu konu, Margrétar í Stafni.
Þau Benedikt fluttust til Skagafjarðar 1869
og þaðan til Bandaríkjanna 1874.
Ég sný aftur að ferðasögunni. Er við
höfðum glaðst um stund yfir Litlu-Jörp,
hafði Laila yfir annan húsgang og þó
drjúgum eldri:
Mjög sig teygði mjóstrokinn,
makkann sveigði gullbúinn,
grjóti fleygði fótheppinn,
fögur beygði munnjárnin.
Þessi húsgangur er rímnaerindi, talið
kveðið 1822 af Hallgrími Jónssyni, að auk-
nefni „læknir“. Rímurnar hafa aldrei verið
prentaðar. Það vakti henni nokkra furðu,
að ég skyldi kunna báðar vísurnar.
En niðurlag sögunnar er mér mesti gleði-
gjafinn. Eins og áður segir bauð Laila okk-
ur til hádegisverðar á heimili sínu. Þau
hjón áttu tvær dætur. Var önnur gift og
bjó í nágrenninu. Hún sinnti húsmóður-
störfunum og þó að því er virtist með hinni
ágætustu aðstoð föður síns. Yngri systirin
var að heiman. Voru borðin að mestu hlað-
in, þegar við komum, en vissulega sýndist
húsmóðirin hafa sitt til málanna að leggja.
þegar heim var komið, enda ólíkleg til að
þurfa öll ráð til annarra að sækja. Heimilið
var hið fegursta. En það, sem vakti mesta
furðu gestanna, var opinn skápur, sem stóð
þar við vegg, nálægt 160 cm á hæð og allt
að 70 cm á breidd. í hann var raðað verð-
launagripum, flestum af silfri, og margir
forkunnarfagrir. Það vakti forvitni íslend-
inganna, hver gripina hefði unnið. Það
upplýstist, að heimasætan hafði unnið þá
alla á kappreiðum og alla á sama hestinum.
Hún hafði keppt 60 sinnum og aldrei hafn-
að neðar en í þriðja sætinu. En ótrúlega
oft hafði hún sest í hið efsta. Hesturinn
stóð við íbúðarhúsið, þegar við kvöddum,
— þrautreyndur að hraða og harðfengi og
vakti óblandna hrifningu hinna íslensku
ferðalanga. Þeir héldu úr hlaði glaðir og
þakklátir en veltu fyrir sér spurningunni:
Eru ekki tengsl milli þess yndis, sem hesta-
vísan var húsmóðurinni, og hestamennsku
heimasætunnar? Hún hafði sjálf tamið og
þjálfað fákinn sinn. Stóð þar ekki að baki
íslensk erfð, íslensk hestamennska? Ég
frétti síðar að móðir Lailu hefði unnað
hestum og hestamennsku af heilum hug.
Hús Lailu í
Markerville.
F R E Y R
37