Freyr - 01.02.1976, Blaðsíða 14
Alls mjólkuðu 19 kýr yfir 7000 kg á árinu, og hefur
sérstök skrá yfir þær nú þegar verið birt í Frey sl. ár
(bls. 158) með grein, sem Jón Viðar Jónmundsson og
Magnús B. Jónsson skrifuðu um niðurstöður úr skýrslum
nautgriparæktarfélaganna árið 1974.
Skotta nr. 123,
Öngulsstöðum I.
Afurðir Skottu 123, Öngulsstöðum I í Eyjafirði.
Hæsta
dagsnyt, Geldstaða, Mjólk, Fita, Kg Kjarnfóður,
Ar Bar kg vikur kg °/0 mjólkurfita kg
1972 .................... 12. ágúst 22 0 2.603 4,88 127 538
1973 .................... 1. desember 27 4 5.062 5,03 254 968
1974 .................... ekki 28 0 6.960 5,45 379 1.473
1975 .................... 3. maí
Samtals í 2,4 ár .................................................... 14.625 2.979
Meðaltal á ári ...................................................... 6.094 5,20 317 1.241
Skotta er ung kýr, og eru það í rauninni afurðir henn-
ar að 2. kálfi, sem um er að ræða 1974, þar sem hún
færði burð bæði eftir 1. og 2. kálf og bar ekki á árinu.
Er ekki ósennilegt, að það hækki eitthvað ársafurðirnar,
enda þótt nytin 1. mánuðinn eftir burð fylgi árinu 1973.
Fædd er Skotta 17. apríl 1970 á búi Hallgríms Aðal-
steinssonar, Garði í Öngulsstaðahreppi. Móðir hennar
var Rauðka 17, sem felld var 1974, þá 11 vetra. Hún var
I. verðlauna kýr, en með lágan dóm fyrir byggingu. Faðir
Rauðku var Númi N162 — 61019 frá Efra-Langholti í
Hrunamannahreppi og móðir Rósa, Garði. Faðir Skottu
var Sokki N146 — 59018, eins og áður er getið.
42
F R E Y R