Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1976, Blaðsíða 27

Freyr - 01.02.1976, Blaðsíða 27
Ef útihús eru endurbætt verulega, má fyrna þá upphæð. Fyrningatími útihúsa hefst, þegar byggingin er tekin í notkun. Fyrna má á tíu árum heimtaugagjald vegna rafmagns og stofngjald (kostnað) vegna vatnsveitu í eldri byggingar. c) Vélar og tæki. Algengast mun vera að fyrna vélar um 10% eða á tíu árum. Þó má fyrna flestar land- búnaðarvélar um 15% (á ca. 7 árum). Ef eign gengur fyrr úr sér og er fleygt eða eyðilegst, áður en hún er að fullu fyrnd, má fyrna hana að fuliu. Ágóði af sölu. (Mismunur á söluverði og bókfærðu verði). 1. Ágóði af sölu lausafjár, sem ekki er heimilt að fyrna (t.d. einkabifreið ekki notaðri við atvinnurekstur), er skatt- skyldur að fullu á söluári, ef eignin er seid innan tveggja ára frá kaupdegi, annars ekki. 2. Ágóði af sölu fyrnanlegs lausafjár, t.d. véla, er skattskyldur að fullu, ef eignin er seld innan tveggja ára frá kaupdegi, en helmingur ágóðans er skattskyldur, ef eignin er seld innan fjögurra ára, en fellur niður, ef skattþegn hefur átt eign- ina í full fjögur ár. 3. Ágóði af sölu fasteigna er skattskyldur á söluári, ef eignin er seld innan 3 ára frá kaupdegi, en skattskyldur hluti sölu- hagnaðar minnkar síðan árlega (75%, 50% og 25%) en fellur niður, ef skatt- þegn hefur átt eignina full sex ár eða lengur. Aðrar reglur gilda um íbúðarhús. Hafa skal í huga, að skattskyldan á- góða af sölu véla má fella niður með því að fyrna aðrar vélar um sömu upp- hæð og skattskyldur söluhagnaður segir til um. Einnig má fresta skattlagningu skattskylds hluta söluhagnaðar um tvenn áramót, afli framteljandi sér eigna innan þess tíma og fyrni þá keypta eign um þá upphæð. Tap vegna sölu eigna má einnig draga frá söluhagnaði. Tap á útistandandi skuldum má færa til frádráttar enda stafi skuldin beinlínis af atvinnurekstri og vitanlegt, að hún sé töpuð. Skattskyldar eignir. a. Fasteignir, mannvirki, lóðir, lendur og bújarðir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsverði eða áætluðu verði, ef fasteignamat er ekki fyrir hendi. b. Búpening skal telja eftir skattmati. c. Vélar og tæki ber að telja samkvæmt fyrningaskýrslu. Þær skulu taldar til eigna á bókfærðu verði. Sjá nánar í leiðbeiningum ríkisskatt- stjóra. Undanþegnar framtalsskyldu og eigna- skatti eru innistæður í bönkum og lögleg- um innlánsdeildum félaga svo sem hér segir: A. Innistæður skattgreiðanda, sem ekkert skuldar. B. innistæður manns, sem ekki skuldar meira fé en jafngildir hámarkslánum Húsnæðismálastjórnar ríkisins til ein- staklinga um hver áramót, enda séu skuldir þessar fasteignaveðlán, tekin til 10 ára eða lengri tíma og sannanlega notuð til að afla fasteigna eða endurbæta þær. Hámarkslán Húsnæðismálastjórnar var 1.700 þúsund kr. um síðustu áramót. Undanþegnir tekjuskatti eru vextir af eignaskattfrjálsum innistæðum. Áður en eignaskattur er lagður á eign, skal draga frá skuldir skattþegns. Að lokum skal þess getið, að þessar leið- beiningar eru ekki tæmandi og ekki er úti- lokað, að ég hafi misskilið lögin eða tjáð mig illa í þessum skrifum. Það tekur mikinn tíma að lesa og skilja skattalög en það er von mín, að þetta verði einhverjum að gagni. FREYR 55

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.