Freyr - 01.02.1976, Side 23
KETILL A. HANNESSON:
Skattaframtalið
w w
i ar
LandbúnaSarframtali á að skila í lok febrú-
armánaðar og nú er kominn tími til að fara
að huga að útfyllingu landbúnaðarframtals
og skattskýrslu.
Lokauppgjör frá kaupfélögum og öðrum
viðskiptaaðilum eru væntanlega komin auk
afurðamiða og launamiða.
Nauðsynleg gögn við framtal.
1. Leiðbeiningar ríkisskattstjóra við útfyll-
ingu skattframtals árið 1976 og skattmat
framtalsárið 1976. Þessar leiðbeiningar
voru birtar í dagblöðunum í janúar 1976.
2. Leiðbeiningar um útfyllingu á fyrninga-
skýrslu (þessar leiðbeiningar eiga að
fylgja landbúnaðarframtali).
3. Leiðbeiningar um útfyllingu: Neðst á
landbúnaðarframtalsskýrslu.
4. Ef ofangreindar leiðbeiningar nægja
ekki, þá er hægt að fletta upp í laga-
greinum.
Til er bæklingur, er nefnist „Lög um
tekjuskatt og eignaskatt“ (september
1974) og er seldur í Bókabúð Lárusar
Blöndals, Skólavörðustíg 2, Reykjavík,
sími 15650 og kostar 240 kr. Sá bækl-
ingur er hins vegar ekki fullkomlega
réttur, því lögunum var breytt í fyrra, og
því er nauðsynlegt að hafa þær breyt-
ingar einnig. Þessi lög eru nr. 11 frá
1975 og er til sérprentun hjá ríkisféhirði
og fæst þar án endurgjalds. Auk þess
eru þau birt í Stjórnartíðindunum A 8
— 1975.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið, að skatt-
mat framtalsárið 1976 (Skattárið 1975) skuli
vera sem hér segir:
Búfé til eignar í ársiok 1975.
kr.
Ær ................................ 5.600
Hrútar ............................ 8.500
Sauðir ............................ 5.600
Gemlingar ......................... 4.300
Kýr .............................. 53.800
Kvígur 11/2 árs og eldri 36.000
Geldneyti og naut................. 20.000
Kálfar yngri en 1/2 árs.......... 5.600
Hestar á 4. vetri og eldri 43.700
Hryssur á 4. vetri og eldri 24.800
Hross á 2. og 3. vetri ........... 15.300
Hross á 1. vetri .................. 9.300
Hænur ............................... 530
Endur ............................... 610
Gæsir ............................... 880
Geitur ............................ 3.700
Kiölingar ......................... 2.600
Gyltur ........................... 14.500
Geltir ........................... 14.500
Grísir yngri en 1 mánaðar....... 0
Grísir eldri en 1 mánaðar 5.200
Minkar: Karldýr ............ 3.700
Kvendýr 2.000
Hvolpar ...................... 0
51
F R E Y R