Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1977, Síða 12

Freyr - 15.05.1977, Síða 12
ti! að ná fullum þroska. Vegna þess hve langan vaxtartíma vetrarhafrarnir þurfa, er minni hætta á því, að þeir skríði hér á landi, og þess vegna má nýta þá lengur fram eftir hausti. Uppskera getur orðið jafnmikil og af sumarhöfrum, ef vetrarhafrar fá að spretta hálfum mánuði til þremur vikum lengur en sumarhafrar. Góðir stofnar: Maris Quest (breskur), Peniarth (breskur), Maris Osprey (breskur). Bygg (Hordeum vulgare). Bygg er nokkuð blaðrýrara en hafrar en stendur vel og er fljótvaxnara. Þarf um 80 sprettudaga frá sáningu til beitar eða slátt- ar. Reyndur stofn: Birgitta (sænskur). Óreyndir stofnar: Nordal (danskur), Mari, Rupal (sænskur). Rýgresi (Lolium multiflorum). Rýgresi er fljótvaxin, einær eða vetrareinær grastegund. Til eru tvær undirtegundir, westervoldiskt rýgresi, sem er sumareinært og sérlega fljótvaxið, og ítalskt rýgresi, sem er vetrareinært og þarf nokkru lengri vaxtartíma en westervoldiskt rýgresi. a) Westervoldiskt rýgresi hentar vel til votheysgerðar og til beitar fyrir kýr á miðju sumri. Hána má nota til beitar eða sláttar. Það hefur komið fyrir, að menn hafa sáð westervoldisku rýgresi og ætlað það til beitar fyrir lömb. Þegar til hefur átt að taka, er rýgresið úrsér sprottið og lélegt fóður og menn hafa orðið fyrir vonbrigðum með rýgresisræktunina. En ástæðan fyrir von- brigðunum er röng undirtegund. Wester- voldiskt rýgresi þarf um 80—90 sprettu- daga. Góðir stofnar: Tewera (hollenskur), Billion (þýskur). b) ítalskt rýgresi er það rýgresi, sem á að nota fyrir sláturlömb. Það þarf um 100 —110 sprettudaga. Góður stofn: EF 486 Dasas (danskur). Óreyndir stofnar: Prima Roskilde (dansk- ur), Birca Trifolium (danskur). Repja (Brassica napus oleifera). Er fóðurkálstegund af krossblómaætt, ná- skyld gulrófu. Repjan er einær eða vetrar- einær planta. Það er fyrst og fremst hin vetrareinæra vetrarrepja, sem ræktuð hefur verið hér á landi. a) Sumarrepja hefur lítillega verið reynd hér í tilraunum en ekki náð verulegri út- breiðslu. Hún er fljótvaxin en trénar síðla sumars. Vaxtartíminn er um 60—70 dagar. Óreyndur stofn: Gulle (sænskur). b) Vetrarrepja er langalgengasta fóður- kálið hér á landi. Hún er fyrst og fremst notuð til beitar bæði fyrir kýr og lömb. Vaxtartíminn er um 100 dagar. Stórvaxnir vetrarrepjustofnar eru gjarnan kallaðir risa- repja. Góðir stofnar: Silona (norskur), Hurst (enskur), Emerald (breskur), Church (enskur). Mergkál (Brassica oleracea acephala). Mergkál er yfirleitt stórgerðara en repja og er með mikla forðanæringu (merg) í stöngl- inum. Mergkál þarf eina 120 daga til að ná fullri sprettu. Það er því helst sunnan lands og á veðursælustu stöðum í öðrum lands- hlutum, sem mergkál kemur til greina sem grænfóður. Reyndir stofnar: Griiner Angeliter (þýsk- ur), Hurst (enskur). Fóðumæpa (Brassica campestris rapifera). Fóðurnæpa hefur ekki verið ræktuð hér sem grænfóðurjurt nema í örfá ár. í tilraun- um hefur hún reynst vel og oft uppskeru- mesta jurtin í hverri tilraun. Kýr og lömb bíta bæði blöðin og næpuna sjálfa, sem vex mikið til ofanjarðar. Reyndir stofnar: Civasto (hollenskur), Taronda (hollenskur). Fóðurhreðka (Raphanus sativum oleiferus). Afar fljótvaxin fóðurkálstegund. Þarf um 50 —60 sprettudaga. Hefur verið uppskerulítil í þeim tilraunum, sem hún hefur verið í hér. 332 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.