Freyr - 15.05.1977, Page 26
Hvað ungur nemur gamall temur.
Hér eru nafnarnir Árni P. og
dóttursonur hans, Ágúst Árni, að
hyggja að æðarhreiðri í landi
Oddstaða á Melrakkasléttu.
Áhugi snáðans leynir sér ekki.
skotum. Tjón það, sem svartbakur og annar
flugvargur vinnur á æðarstofninum árlega,
er svo gífurlegt, að til stórvandræða horfir.
Vonandi mun hið opinbera grípa til rót-
tækra aðgerða gegn þeim vágesti, áður en
langt um líður, því það er ekki einungis
æðurin, sem verður fyrir ásókn svartbaks,
heldur og allt mófuglalíf, fiskirækt í ám og
vötnum, og stórfelld mengun er frá svart-
bak í vatnsbólum þéttbýlis og fiskvinnslu-
stöðva. Æðurin finnur öryggi og traust
í nærveru mannsins um varptímann, þar
sem varpmenning er til staðar. Og eins og
annar búpeningur þekkir hún hirðinn og
er spök á eggjum sínum, þegar kunnugir
ganga um varplandið eftir settum reglum.
Hins vegar verður henni um, ef ókunnugir
koma í varpið og bera sig óvenjulega til.
Þessi viðbrögð eru öllum kunn úr fjósi,
fjárhúsi og hesthúsi. Ef ókunna ber að
garði, getur allt farið á annan endann
vegna óróleika búfénaðarins, sem í engu
bifast, ef kunnugur fer um garða.
Umhirða varpsins.
Um varptímann er sjálfsagt að ganga varp
reglulega en af sama fólki og eftir ákveðn-
um leiðum, svo það valdi sem minnstu
ónæði Það eykur fuglinum öryggi, og ég
er sannfærður um, að æðurin hefur ánægju
af að dútlað sé í kringum hana, ef hún
er ekki rænd. Hlúa þarf að hreiðrum, fjar-
lægja löskuð og ófrjó egg og fúlegg, koma
eggjum undir aðrar kollur, þar sem margar
hafa verpt í sama hreiður, eða karfan er
það þröng, að vonlítið er, að það auðnist
Bægja þarf frá vargi eftir föngum og ganga
út skugga um, að allt sé eins og á að vera
í varplandinu. Skemmtilegt og fróðlegt er
að tölumerkja egg, og fylgjast þannig með
útkomu hvers hreiðurs yfir varptímann,
hversu mörgum eggjum var verpt í hreiðrið
upphaflega, hversu mörg unguðust út, hve
mörg hurfu af orsökum vargs, hve mörg
voru ófrjó eða fúlegg, og hve mörg mis-
fórust á annan hátt. Slík athugun gæti
stuðlað að ræktun æðarstofnsins. Við vit-
346
F R E Y R