Freyr - 15.05.1977, Side 36
Kennaranámskeið í vélrúningi.
Fjögur námskeið voru haldin dagana 1.—
13. mars. Tvö í Borgarfirði vestra, á Hvann-
eyri, Hesti og og Varmalæk, fyrir Suður-
land, Vestfirði og Vesturland, eitt að Syðra-
gili í Skagafirði fyrir Norðurland og það
síðasta að Skriðuklaustri í Fljótsdal fyrir
Austurland. Námskeiðin sóttu 34 þátttak-
endur. Því miður ekki allir með næga
þjálfun til að byggja á fyrir námskeið á
þessu stigi. Niðurstöður námskeiðanna urðu
þær, að 12—14 reyndust mjög vel hæfir
leiðbeinendur í vélrúningi og eru þeir
dreifðir vítt um land, aðrir 8 efnilegir en
skortir aðeins meiri þjálfun, svo hægt sé
að fullyrða um hæfni þeirra til námskeiða-
halds. Hinir, sem ótaldir eru, náðu meira
öryggi en áður og fengu aukna þjálfun í
að vinna sjálfstætt að vélrúningi. John
Williams taldi heppilegt að hitta að vetri,
nokkra þá bestu frá námskeiðunum í vetur,
og mundu þeir þá verða í framtíðinni kenn-
arar leiðbeinenda í vélrúningi hér á landi.
Bændur, sem komu á námskeiðin, voru
mjög ánægðir með vinnuaðferðir og fram-
kvæmdir, sem námskeiðsþátttakendur með
kennslutilhögun. Nauðsynlegt er að fram-
hald verði á námskeiðum í vélrúningi. John
Williams er úrvalsmaður á þessu sviði og
ágætur kennari í vélrúningi. Véladeild
S.Í.S. og búvörudeild eiga miklar þakkir
skildar fyrir frumkvæðið og það fé, er þær
lögðu af mörkum til þessa námskeiða. Þótt
Búnaðarfélag íslands legði til ráðunauta
sína og þeir sæu um allan faglegan undir-
búning og framkvæmd námskeiðanna,
hefði það náð skammt, ef meira hefði ekki
komið til.
Árni G. Pétursson.
flfkvæmasýning á sauðfé 1977
Á þessu ári verða haldnar afkvæmasýningar á Suðurlandssvæði og Austur-
landssvæði frá Hvalfirði til Eyjafjarðar. Sýna má bæði hrúta og ær með
afkvæmum. Hverjum hrúti þurfa að fylgja að minnsta kosti 22 afkvæmi, þar
af tveir hrútar veturgamlir eða eldri og 10 lömb, og af þeim a.m.k. tveir
lambhrútar.
Hverri á þurfa að fylgja a.m.k. 5 afkvæmi, þar af einn hrútur veturgamall
eða eldri. Fjáreigendur á ofangreindu svæði, sem óska eftir afkvæmasýn-
ingum, sendi Búnaðarfélagi íslands eða héraðsráðunautum búnaðarsam-
banda á greindu svæði tilkynningu fyrir 1. ágúst n.k.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
— Sauðfjárrækt —
356
F R E Y R