Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.05.1977, Qupperneq 14

Freyr - 15.05.1977, Qupperneq 14
SIGTRYGGUR BJÖRNSSON, Hólum, Hjaltadal: Mjólkurtankurinn ng mjólkurhúsið í stað hins gamla verklags að flytja mjólk í brúsum mun hún í framtíðinni verða flutt í sífellt meiri mæli til mjólkurbúanna í tönkum á stórum flutningabíium. í nánu sambandi við þessa tankvæðingu er tankvæðing í mjólkurhúsum á bæjum. Mjólkurtankakerfið er mjög útbreitt í Bandaríkjunum og á Norður- löndum. Hér á landi hefur það verið í notkun í allt að tíu ár, en á nokkrum svæðum er mjólk enn flutt í brúsum. • Margt er það, sem mælir með tankvæðingu, og er þar helst að nefna miklu ódýrari flutninga til mjólkurbúanna og einnig losnar bóndinn við alla flutninga á brúsapall, sem oft er erfitt og tafsamt verk einkum á vetrum, þegar snjór hamlar ferðum og erfitt og dýrt er að gangsetja vélar vegna kulda. Hins vegar er stofnkostnaður við tankvæðingu mikill, en hann mun þó borga sig fljótt, ef vel er að verki staðið. 1. Tækjabúnaðurinn. Mjólkin er geymd heima á búunum í mjólk- urtönkum, sem eru búnir rafknúnu kæli- kerfi. Á kælikerfi, sem notuð eru í mjólkur- tanka, er notað freon 12 sem kælivökvi. Suðumark þess er við -h29,8°C. Til að mjólkurtankakerfið leiði ekki til verri verri meðferðar á mjólk en áður var með notkun mjólkurbrúsa, verður í fyrsta lagi að gæta fyllsta hreinlætis í hvívetna. í öðru lagi verður að kæla mjólkina fljótt niður fyrir 4°C og geyma hana við það hitastig. Til þess að þetta sé unnt, verður val á mjólkurtanki að falla að aðstæðum á hverjum stað. Kæliafköst mjólkurtanksins þurfa að vera sem hér segir, miðað við að mjólkin sé tekin annan hvorn dag. Sé 32°C hiti í mjólkurhúsi og tankurinn fullur að 3/4 af 4° heitri mjólk og síðan fylltur með 35°C heitri mjólk, þá verður 334 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.