Freyr - 15.05.1977, Blaðsíða 23
Æðarkóngur.
æðarfugls er að ræða, en á þriðja ári, eða
þegar fuglinn er kynþroska, eru sérkennin
orðin greinileg.
Æðarkóngurinn er algerlega staðbundinn
á heimskautasvæðum og verpir aðeins í
nyrstu héruðum hins byggða heims, norðan
heimskautsbaugs, á Grænlandi, Svalbarða
og hliðstæðum breiddargráðum, bæði aust-
an hafs og vestan.
Á ferðum sínum heimsækir hann ísland
við og við, Vestfirði jafnvel að staðaldri, og
í Noregi hefur hann sést alla leið suður að
Þrándheimsfirði og jafnvel alla leið suður
undir Bergen.
Hvort æðarkóngur hefur orpið hér á landi,
er óvíst. Hann hefur allt aðra háttu en
venjulegur æðarfugl. Hinn fyrrnefndi byggir
hreiður sín aldrei í varpstöðvahvirfingu
heldur á stangli. Frá Noregi eru frásagnir
um hreiðurgerð og varpstaði við ár eða
tjarnir stutt frá sjó en aldrei sunnar en í
Þrændalögum. Það þykir sérstakt, ef hann
Kynblendingur æðarkóngs og
venjulegar æðarkollur.
F R E Y R
343