Freyr - 15.05.1977, Page 29
Frá upplýsingapjónustu landbunaðarins
Nýtt íslandsmet hjá Rauðsokku
í Hlíðskógum.
Hjá nautgriparæktardeild Búnaðarfélags ís-
lands hefur verið tekið samanyfirlit um starf-
semi nautgriparæktarfélaganna á síðastl.
ári. Þar kemur í Ijós, að kýrin Rauðsokka, til
heimilis að Hlíðskógum í Bárðardal, hefur
slegið öll fyrri met í nythæð. Hún mjólkaði
hvorki meira né minna en 8.363 kg með
3.71% fitu. Aftur á móti var afurðamesta
kýrin Rauðka í Árnesi í Aðaldal, hún mjólk-
aði 7.001 kg með 5.68% fitu. Það gerði 474
kg af smjöri en Rauðsokka aftur á móti gaf
ekki nema 370 kg af smjöri. Samtals voru
18.206 reiknaðar árskýr á skýrslum, þær
mjólkuðu að meðaltali 3.580 kg en það var
66 kg meira en árið 1975. Mestar meðal-
afurðir voru á svæði Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga, þegar mælt var í kg
mjólkur, en á svæði Búnaðarsambands Ey-
firðinga, þegar mælt var í mjólkurfitu.
Það voru hvorki meira né minna en 11
félög, þar sem kýrnar mjólkuðu 4.000 kg
eða meira að meðaltali. Hæsta félagið var
í Grýtubakkahreppi, þar voru 126 árskýr,
sem mjólkuðu að meðaltali 4.783 kg. Það
voru 175 kýr á öllu landinu, sem mjólkuðu
6.000 kg eða meira á árinu. Hæsta meðalnyt
á einu kúabúi, þar sem kýr voru fleiri en
10, var hjá Sverri Magnússyni, Efraási,
Hólahr., Skag., þar voru 15.3 árskýr, með-
alnyt reyndist vera 5.260 kg. Einna glæsi-
legasti árangur í mjólkurframleiðslunni á
síðastliðnu ári var þó hjá Hermóði heitnum
Guðmundssyni, Árnesi, þar voru rúmlega
40 árskýr, meðalnytin var 5.252 kg.
•
Kindakjöt.
Framleiðsla á kindakjöti varð 5% minni á
síðastliðnu ári en árið 1975. Dilkakjöt reynd-
ist vera 12.350 tonn en kjöt af fuliorðnu
1.635 tonn. Flutt hefur verið út af fram-
leiðslu síðastliðins árs 3.127 tonn af dilka-
kjöti og 192 tonn af kjöti af fullorðnu.
Birgðir af dilkakjöti 1. mars voru 6.605
tonn. Sala innanlands frá því í sláturtíð í
haust og fram til 1. mars sl. var 3.643 tonn
af dilkakjöti og 783 tonn af kjöti af fullorðnu
fé. Sala á dilkakjöti hefur dregist nokkuð
saman, miðað við árið 1975, samkvæmt því
sem skýrslur um birgðir og sölu virðast
sýna. Meðal mánaðarsala á dilkakjöti er
665 tonn.
Fituskert mjólk.
Á fundi Framleiðsluráðs landbúnaðarins
fimmtudaginn 24. mars var tekin til um-
ræðu ályktun Búnaðarþings um fituskerta
mjólk. Framleiðsluráð samþykkti að mæla
með því, að hafnar yrðu tilraunir með fitu-
skerðingu á mjólk hjá tveim eða fleiri sam-
lögum. Gert er ráð fyrir, að fyrst í stað
muni mjólkurstöðin í Reykjavík og mjólkur-
samlag KEA hefja slíkar tilraunir. Ekki hef-
ur verið ákveðið, hver skuli vera fitupró-
sentan í mjólkinni, en rætt hefur verið um
1—1.5% fitu. Þegar sexmannanefnd hefur
ákveðið verð á slíkri mjólk og það er talið
viðunandi fyrir framleiðendur, þá ætti ekkert
að vera til fyrirstöðu að setja hana á al-
mennan markað.
•
Mikil aukning í sölu nautakjöts.
Fyrstu tvo mánuði ársins varð 42% aukning
í sölu nautakjöts miðað við sömu mánuði
1976. Á síðastliðnu ári var innvegið magn
nautgripakjöts í sláturhúsunum 1.938 tonn,
en heildarsala á árinu var 2.258 tonn.
F R E Y R
349