Freyr - 15.05.1977, Side 30
Birgðir af öllum gæðaflokkum nautakjöts
1. mars sl. voru samtals 870 tonn. Á sama
tíma í fyrra voru birgðir af nautgripakjöti
1438 tonn. Mánaðarsala á nautgripakjöti er
nú um 150 tonn en slátrun er í lágmarki,
þannig að innvegið kjötmagn er 40—60
tonn á mánuði. Líkur eru á, að birgðir verði
ekki miklar, þegar kemur fram á árið.
Verð á nýmjólk í Svíþjóð og á íslandi.
Til fróðleiks er hér birt tafla, þar sem gerð-
ur er samanburður á verði á mjólk í Svíþjóð
og hér á landi.
Eins og sést á tölunum fá bændur í Sví-
þjóð heldur meira fyrir mjólkina en íslenskir
bændur, en verð til neytenda er þar um 9
kr. lægra en hér á landi, þrátt fyrir að þar
er greiddur virðisaukaskattur af mjólkinni.
Mjög svipað hlutfall er á greiðslu til bænda
af óniðurgreiddu verði, en þó hafa sænskir
mjólkurframleiðendur vinninginn, þar mun-
ar mest um flutningskostnaðinn að mjólk-
urbúunum, hann er mun meiri hér á landi
en gerist í Svíþjóð.
Verð á mjólk er greitt niður um 43% í
Svíþjóð en 32.1% hér á landi.
Mjólkurtankurinn...
Framh. af bls. 337.
t.d. vifta í strompi, mætti hleypa loftinu úr
mjólkurhúsinu inn í fjósið gegnum op á
vegg uppi undir þaki. Annars er loftútrásinni
yfirleitt komið fyrir í útvegg, og er það
kostur, að hæðarmunur á milli loftopanna
sé sem mestur. Þannig fæst best loftræst-
ing.
Ef viftu þarf til að ná viðunandi loftræst-
ingu, skulu afköst hennar vera 1 m3 lofts á
klst. á hvern lítra mjólkur í tanknum.
Tafla II.
Ummál loftopa skal vera sem hér segir:
Stærð mjólkurtanks Loftinnrás Loftútrás
200— 900 lítrar 45X45 cm 20X20 cm
1250—2500 — 55X55 cm 25X25 cm
3200—8000 — 60X60 cm 30X30 cm
Svíþjóð ísland
Greitt af neytendum Niðurgreiðsla í.-Kr./l 70,43 53,22 °/o af óniður- greiddu verði 57,0 43,0 Kr./l 79,00 37,30 0/° af óniður- greiddu verði 67,9 32,1
Oniðurgreitt verð 123,65 100,0 116,30 100,0
Greitt bændum 81,19 65,7 75,25 64,7
Vinnslu- og dreifingarkostnaður og flutningur að samlagi 13,48 80,7 25,50 21,9
Pökkunarkostnaður 10,17 8,2 8,35 7,2
Smásöluálagning 8,23 5,7 7,20 6,2
Virðisaukaskattur 10,58 16, 0 0
123,65 100% 116,30 100%
(1 kr. sænsk = 46,00 ísl. kr.)
350
F R E Y R