Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1981, Page 12

Freyr - 01.06.1981, Page 12
Magnús Sigsteinsson: Er súgþurrkunarkerfið þitt í góðu lagi? Áður en þú svarar þessari spurningu játandi, skaltu athuga nokkur atriði í hlöðunni fyrir slátt. Orkan er dýr nú til dags og á bændabýlum er rafafl oft af nokkuð skornum skammti. Við súgþurrkun á heyi er mikilvægt að nýta sem best það afl, sem tiltækt er til að knýja blásarann, þannig að hann skili sem mestu lofti upp í gegnum heystæðuna. Afköst og aflþörf súgþurrkunar- blásara viö mismunandi loftmót- stööu. Mynd 1 sýnir kennilínurit súg- þurrkunarblásara af algengri gerð. Þegar litið er á samhengið á milli loftmagns, sem blásarinn skilar, og mótstöðunnar (þrýstings), sem blásarinn þarf að yfirvinna, kemur greinilega í ljós, að loftmagnið eykst verulega þegar mótstaðan minnkar. Dæmi: Þegar blásarinn snýst 1380 snúninga á mínútu skilar hann um 6.5 m3 lofts/sek ef mót- staðan jafngildir 80 mm vatnssúlu, en um 8.3 m3 lofts/sek við 40 mm vatnssúlu mótþrýsting. Aukningin í loftmagni (afköstum súgþurrk- unarinnar) er þá um 28%. Ef litið er hins vegar á aflþörf blásarans við þennan snúningshraða kemur í ljós að hún er mjög svipuð, hvort heldur blásarinn skilar 6.5 eða 8.3 m3/sek. eða um 10 KW í báðum tilfellum. Þetta dæmi sýnir greinilega, að það er til mikils að vinna að halda þeirri mótstöðu í lágmarki, sem blásarinn þarf að yfirvinna. Við mælingar í hlöðum hérlendis hefur komið í Ijós að mótþrýstingur er einmitt oft á bilinu 40-80 mm vatnssúlu í veggjafullri hlöðu. Hér getur hver bóndi ráðið allmiklu um. Athugið súgþurrkunartæki og um- búnað í blásarahúsi. Jc o Kennilínuril súgþurrkunarblásura, gerð H-12 frá Landssmiðjunni, samkvœmt prófunarskýrslu Bútœknideildar nr. 480. Línur merkar Q sýna loftmagn, sem blásarinn skilar við ákveðinn snúningshraða, (1020 og 1380 snúninga á mínútu). Línur merktar N sýna aflþörfina við sama snúningshraða. Samhengi loftmagns og mótþrýstings er nánar útskýrt í te.xta. 412 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.