Freyr - 01.06.1981, Blaðsíða 30
sandjarðveginum, kemur aftur á
móti það illa út eftir samageymslu-
tíma, að vart verður gerð úr henni
markaðsvara.
Hér er um að ræða að öllu leyti
sambærilegar aðstæður, nema
hvað jarðveg áhrærir. Sama upp-
við hýðisflögnun og sköddun.
Sandjarðvegurinn aftur á móti
hrynur strax niður af upptökuvöls-
unum og þar með er hinn við-
kvæmi og oft hálfþroskaði garð-
ávöxtur hlífðarlaus á leiðinni
gegnum upptökuvélina.
Þetta að jarðvegurinn geti haft
óbein áhrif á upptökuskemmdir og
geymslusjúkdóma síðar meir er
augljóst. Eins er það greinilegt að
þegar um sandjarðveg er að ræða,
þarf enn meiri varúð við upptöku-
störfin en ella.
Á s. 1. vori setti t. d. einn bóndi
sunnanlands niður kartöflur í
nokkra hektara lands. Að mestu
var sett niður í gamalt túnstæði í
myldnum moldarjarðvegi, en
nokkur hluti garðlandanna var í
mjög sandbornum jarðvegi.
Eftir margra mánuða geymslu á
uppskeru úr þessum garðlöndum,
bregður svo við að þær kartöflur
sem ræktaðar voru í moldarjarð-
veginum eru í ágætu ásigkomulagi,
svo til lausar við geymslusjúk-
dóma, ekki hýðisskemmdar, m. ö. o.
geymsluþolnar. Hin uppskeran, úr
Unnið við pökkun í neytendaumbúðir. Leiðin er löng og getur verið áfallasöm frá
garðtandi til neytandans.
Hentar „stórrœktun“ á kartöflum við islenskt verðurfar?
tökuvél var notuð á báðum stöð-
um, ‘ sami vinnuhópur við upp-
skerustörfin, sömu kartöfluaf-
brigði ræktuð o. s. fr.
Annað dæmi um áhrif vélaupp-
töku á geymsluþol kartöfluupp-
skerunnar skal hér einnig tilgreint.
Um miðjan ágúst s. 1. sumar voru
nokkur kartöflusýni tekin til
geymslu í geymsluskemmur Græn-
metisverslunar landbúnaðarins
í Reykjavík. Þessi uppskera var
ýmist vélupptekin eða handtínd.
Eftir meira en 8 mánuða
geymslutíma í Grænmetinu, þá
kemur í ljós að handuppteknu
kartöflurnar hafa geymst ágætlega,
eru áferðargóðar og ógölluð fram-
leiðsla. Hinar, sem teknar voru
upp með vél, eru hins vegar orðnar
mjög lélegar, vægast sagt.
Það má því ljóst vera að þær
kartöflur okkar, sem nú eru rækt-
aðar við hin almennu skilyrði eins
og þau gerast í dag hjá of mörgum
framleiðendum, eru ekki jafn góð-
ar til geymslu og áður var. Hér
hefur orðið ótrúleg breyting á til
hins verra, hver svo sem orsökin
kann annars að vera.
430 — FREYR