Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 9

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 9
Fóðurnæpa erundrajurt Viðtal við Jón Eiríksson á Búrfelli í Miðfirði. Sigurbjörg Geirsdóttir ogJón Eiríksson á Búrfelli í Ytri-Torfustaðahreppi íV.-Hún. hafa um árabil rekið eitt afurðamesta kúabú á landinu. Þau búa þar ásamt foreldrum Jóns, þeim Guðrúnu Guðmundsdóttur og Eiríki Tryggvasyni. Jón Eiríksson við bókahillur sínar. (Ljósm. Sigurbjörg Geirsdóttir.) Seint á síðasta ári lagði blaða- maður Freys leið sína í Búrfell til að ræða við Jón um búskap þeirra og fleira er á góma kynni að bera. Þau Sigurbjörg og Jón hafa innrétt- að sér notalega og hlýlega íbúð í kjallara íbúðarhússins á Búrfelli, í plássi sem upphaflega hefur ekki verið hugsað sem íbúðarhúsnæði. Þetta gaf gestinum strax tilfinningu fyrir því að þau leituðu hagkvæmra og frumlegra lausna. Annað sem gesturinn rak augun í var að hvergi á einkaheimili hafði hann rekist á eins mikið af ljóðabókum frá síðari árum án ríms og ljóðstafa sem og skáldverk framúrstefnuhöfunda sem í augum hans eru „ólesandi" bækur. Það kom hins vegar á dag- inn að þessar bækur höfðu húsráð- endur keypt sér sjálfir til lestrar og notið þeirra. Fleiri áhugamál eru stunduð á heimilinu, svo sem tónlist, málaralist, ljósmyndun o.fl. En fyrst bið ég Jón að segja á sér deili. Foreldrar mínir eru Eiríkur Tryggvason bóndi hér og Guðrún Guðmundsdóttir frá Seljabrekku í Mosfellssveit. Ég er fæddur þar syðra en flutti hingað með foreldr- um mínum 7 ára, árið 1962. Ég ólst hér upp og lauk Landsprófi frá Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði. Ég var þá búinn að fá nóg af skólanáminu að sinni en ákvað þó að fara í bændaskóla og lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri árið 1973. Þar fann ég mig aftur í námi og hélt þar áfram og lauk búfræðikandídatsprófi frá skólan- um árið 1977. Mér finnst eftir á að þetta nám á Hvanneyri hafi verið besta fjárfest- ing sem ég gat farið út í á þessum árum, en maður var þarna á námslánum. Ég tel líka að þarna hafi verið gott kennaralið á þessum tíma. Eftir þetta fór ég í ýmiss konar vinnu; fiskvinnu, var handlangari hjá múrara og stundaði kennslu í grunnskóla. Um það leyti var farið að fækka liði hér heima og orðin þörf á að eitthvert okkar systkin- anna gengi inn í búskapinn. Ég var til í það ásamt sambýliskonu minni, Sigurbjörgu Geirsdóttur. Hún er búfræðingur frá Hvanneyri og við kynntumst þar. Við hófum svo búskap hér árið 1983 og settum upp samning um félagsbú á jörðinni, á þann hátt að við yngra fólkið værum með kúa- búskapinn en foreldrar mínir með fjárbúið. Sigurbjörg er auk þess hjúkrunarfræðingur og vinnur við Heilsugæslustöðina á Hvamms- tanga. Hvað er kúabúið stórt? Við höfum verið með um 22 árskýr 8.APRÍL1990 Freyr 305

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.