Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 24
Tafla 1. Lækkun í nettótekjum við lengingu á tíma frá burði til fangs um 20 daga, kr.
Dagar frá burði til fangs á bilinu:
Burðarmónuður 60- 80 81- 100 101- 120 121- 140 141- 160 161- 180 181- 200 201- 220
Janúar 3200 2800 3300 2800 2000 1600 1600 900
Febrúar 3600 2200 2200 2400 1900 1600 1600 2000
Mars 2500 1600 2000 2400 1600 1800 3200 1800
Apríl 2000 1700 2000 2200 2500 33000 2500 1300
Maí 2000 1300 2100 3900 2200 3200 1300 2000
Júní 1700 2000 3600 3100 1500 1700 4400 3500
Júlí 3400 1200 3200 1500 3400 3900 3600 3600
Ágúst 2400 300 1400 4600 3700 3400 4100 3000
September 500 3100 3600 4100 4400 3600 3400 2800
Október 3900 3100 3000 4600 3600 3100 3100 2100
Nóvember 2900 3600 2800 3800 3400 2900 2000 1000
Desember 3600 2800 2900 3900 2800 1800 1600 900
Rciknað er með að 1 sænsk kr. jafngildi 10 ísl. kr. Sjá skýringar á töllunni í texta.
ástæða til að vekja sérstaka athygli
á því að breytingar á burðartíma
geta leitt til þess að kýrnar flytji sig
með framleiðslu frá árstíma með
hærra verði á mjólk til árstíma með
lægra verði eða öfugt. Á þessum
grundvelli eru tekjur framleiðsl-
unnar reiknaðar en auk mjólkur-
innar er einnig tekið tillit til tekna
af mismörgum kálfum sem fæðast.
Þeir meta einnig kostnað við
framleiðsluna eftir árstímum og
framleiðslu á hverjum tíma. Að
sjálfsögðu er erfitt að bera slíka
kostnaðarþætti saman milli landa,
auk þess sem nákvæmar upplýsing-
ar um þá er ekki að finna í áður-
nefndum greinum. Ljóst er samt
að samræmi við hérlendar aðstæð-
ur er tiltölulega gott. Líklega skap-
ast mestur munur af því að í Sví-
þjóð er reiknað með mun meiri
afurðum eftir hvern grip og kjarn-
fóðurnotkun er þar til muna meiri í
framleiðslunni en hér gerist. í
fljótu bragði er líklegt að slíkt
skapi meiri áhrif þar en hægt er að
vænta hér á afrakstur framleiðsl-
unnar.
Tímabilið sem tekið er tillit til
við útreikningana er bil á milli
tveggja burða hjá kúnni og fram-
leiðsla hennar í 305 daga eftir síð-
ari burð. í því sambandi er vert að
vekja athygli á að í reynd er líklegt
að viss fylgni sé þar á ferð á þann
hátt að meiri líkur séu til að kýr
sem færir burð eitt ár geri það
einnig næsta ár heldur en kýr sem
heldur tíma. Ef þannig er þá leiðir
það til þess að áhrif þessa þáttar
eru meiri en útreikningarnir sýna.
Mælikvarði sá sem þeir nota í
útreikningum sínum er munur á
nettótekjum vegna breytinganna
miðað við eitt ár.
Skýringará töflu 1.
í töflu 1 eru sýndar nokkrar niður-
stöður úr þessum útreikningum.
Tafla 2. Áhrif af tímalengd milli burðar á afurðir.
Bili milli Mjólkurskeiðs- Meðal dagsnyt,
burða, dagar afurðir, lítrar kg
330 ............................... 3676 11,14
350 ............................... 3783 10,81
380 ............................... 3925 10,33
400 ............................... 4007 10,02
430 ............................... 4111 9,56
450 ............................... 4168 9,26
500 ............................... 4266 8,53
Lítum aðeins á það hvernig lesa má
úr töflunni. Tökum dæmi um kú
sem ber í febrúar. Pá mundu nettó-
tekjur af framleiðslu hennar verða
um 2200 krónum minni við 100
daga bil frá burði til fangs en 81
dags. Ef við aftur á móti berum
saman kýr sem báru í þessum sama
mánuði sem hefðu annars vegar
141 dag og hins vegar 160 daga frá
burði til fangs, þá væri munur í
afrakstri þeirra um 1900 krónur.
Skoðum þvínæst kýr sem bera í
ágúst. Þar mundi í fyrra saman-
burðinum aðeins muna um 300
krónum á kúnum tveim í afrakstri
en í síðari samanburðinum er þessi
munur um 3700 krónur.
Heildarniðurstaða í útreikning-
um þeirra er sú að sem skemmst bil
frá burði til fangs skili ætíð mest-
um afrakstri. ( Væri ekki svo þá
ættu einhverjar af tölunum í töfl-
unni að vera mínustölur). Aftur á
móti er ljóst að tilfærsía burðar
kostar mjög mismikið eftir því á
hvaða árstíma hún gerist. Lang
mikilvægast er að halda tíma á
kúnum sem bera um miðjan vetur.
Hjá kúnum sem bera síðla sumars
fara áhrifin aftur á móti að verða
mest ef tilfærslan verður mikil á
þeim tíma sem mjólkurverð er
hæst.
Eins og að framan segir voru
þessir útreikningar gerðir bæði fyr-
ir fyrstakálfs kvígur og fullorðnar
320 Freyr
8. APRiL 1990