Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 31
gefið inni þar til júgrað hefur
hjaðnað verulega, oft í 7-10 daga.
Oftast merkjum við lambið og setj-
um þau í spil til kindar sem er
annað hvort nýlega borin eða að
bera. Venjulega kara þær lömbin
og taka það að sér þangað til fóst-
urmóðir finnst, eru þá jafnvel með
3-4 lömb í spilinu 1-3 sólarhringa
ef þörf gerist. Þegar svo kemur
einlembd ær sem hefur alla burði
til að ganga með tvö lömb, baða ég
hennar lamb upp úr volgu vatni,
tek síðan tvö gemlingslömb eða
gemlingslamb og þrílembing svip-
uð að stærð, baða þau upp úr sull-
inu og læt kindina hafa þau. Tek
síðan hennar lamb og læt í geymslu
til einhverrar nýbæru þar til næst
kemur einlemb kind sem fær þá
lamb sem er svipað og hennar eig-
in. Ég tel að það skipti verulegu
máli að lömbin séu svipuð að
stærð. Þá er minni hætta á að ann-
að verði undir í samkeppninni um
mjólkina. Auðvitað þurfa ær sem
vanið er undir að vera einar í spili í
2-3 sólarhringa og mikilvægt að
lömbin komist ekki frá þeim fyrstu
klukkutímana. Eftir 2-3 sólar-
hringa eru þessar ær settar í stærri
spil og meðhöndlaðar alveg á sama
hátt og hinar sem ganga með sín
eigin lömb. Stundum kemur fyrir
að við venjum lömb undir kindur
sem eru bornar fyrir nokkrum
klukkutímum, því að oftast taka
þær óköruðum lömbum vel. Er þá
jafnvel hægt að láta þær taka tvö
gemlingslömb og geyma síðan
hennar lamb handa næstu ein-
lembu. Þessar „millifærslur“ ganga
oftast mjög vel.
Misjafnlega vel gengur að venja
undir.
Það mun þó vera mjög misjafnt á
illi bæja og fjárkynja hvernig geng-
ur að færa lömbin svona á milli. A
sumum bæjum er það vandamál
hve ær passa lömb illa fyrstu dag-
ana sem þær eru úti á túni. Ég tel
að það sé að miklu leyti hægt að
komast hjá þessu vandamáli með
þvf að hafa kindurnar 10-20 saman
í spili í 1-2 sólarhringa áður en þær
fara út á tún. Sé talverðum hóp af
lambám hleypt úr einstaklingsspil-
um beint út á tún er mun líkiegra
að Iömb lendi á flækingi og venjist
undan.
Það sem mér finnst sjálfum nei-
kvæðast í kringum allar þessar til-
færslur á lömbum er hvað fjárrækt-
arfélagsbókin getur orðið flókin og
auðvitað meira verk að færa inn í
hana, en allar okkar kindur eru í
Fjárræktarfélagi Öxfirðinga.
Mér er ekki grunlaust um að hjá
tölvuþjónustu B.í. þyki okkar
fjárbók strembnari en aðrar í
skráningu og kannski er forritið
hjá þeim ekki alveg fullhannað
gagnvart svona miklum millifærsl-
um. í það minnsta mun Matthías
hafa frétt af þessu hjá Jóni Viðari
Jónmundssyni. Eflaust hefur þetta
verið gert víðar á landinu enda tel
ég að þetta sé raunhæfur möguleiki
til að auka afurðir. ekki síst þar sem
frjósemi ánna er í slakara lagi, en
lömb verða væn.
Vonandi verður þessi pistill ein-
hverjum til fróðleiks og jafnvel til
gagns. í það minnsta ættueinhverj-
ir að geta hlegið að þessari sérvisku
og hugsað sem svo að ekki sé öll
vitleysan eins.
Til sölu
tankdreifari, 6500 lítra.
Upplýsingar í síma
95-12931.
Mjólkurtankur óskast
Mig vantar notaðan mjólkur-
tank, 900 lítra.
Guðmundur Sigurðsson,
sími 92-46525, frá kl. 19-20.
Fjárhúsristar og
svínastíuristar
GUNNLAUGUR J. BRIEM
Hverfisgötu 4,
Pósthólf 1142, 121 Reykjavík.
Sími 91-11504.
BÆNDUR ATHUGIÐ
Námskeið á Hvanneyri
Skjólbelti 5.-ó. júní.
Verkun votheys í rúlluböggum 6.-8. júní.
Nánari upplýsingar og skráning bátttakenda
í síma 93-70000.
Bœndaskólinn á Hvanneyri og
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
bútœknideild.
8. APRÍL 1990
Freyr 327