Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 10

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 10
Jón Eiríksson við fjósverkin. (Ljósm. og sett á kálfana til kjötframleiðslu og viðhalds. Þetta bú hefur verið meðal afurðamestu kúabúa á landinu á síðustu árum. Hverergaldurinn á bak við það? f>að er svo sem enginn galdur við það. heldur hef ég notað það nám sem ég hef gengið í gegnum og lesið mér til það sem er að finna í Handbókum bænda og Frey. Hins vegar þarf þar stundum að lesa á ntilli línanna. í meginatriðum byggist þetta á að nota „græna gullið“, þ.e. gras- ið, og fá það með toppgæðum. Það er númer eitt. Hér er mest verkað i vothey en auk þess hef ég litla hlöðu þar sem ég súgþurrka hey og gef það sem krydd með votheyinu á hverjum degi á innistöðu. Viltu lýsa nánarfóðuröfluninni? Hér eru bæði gömul og ný tún og ég miða við það að slá gömlu túnin mjög snemma, kannski viku áður en mér finnst komið nóg gras. Ég reikna þá með öðrum slætti og endurvöxtur kemst fljótt í gang. Það hefur tekist að fá tvo slætti, jafnvel í köldustu árum. Sumir ráðunautar ráðleggja að bera á tvisvar á vorin. Það hef ég ekki gert heldur ber ég á á milli S.G.) slátta. Hitt getur átt við þar sem úrkoma er meiri en hér. um að ræða langtímaáhrif sem ég sé ekki strax. Hvað berð þú svo á samanlagt af tilbunum áburði? Ég ber á tæplega fullan túnskammt á vorin skv. Handbók bænda, vegna þess að mér finnst votheyið verkast betur ef maður ber ekki of mikiðáaf köfnunarefni. Ætli þetta séu ekki um 100 kg N/ha á vorin af Græði 6 og 30 kg N/ha milli slátta af Magna 2. Þessar tegundir eru báðar með kalki, en kalkið hefur bætt efnahlutföll á heyinu. Þarna er þá jafnframt borin á mykja haustið áður. A hvaða tíma berð þú á mykjuna? Hér er ristarflór yfir haughúsi og mykjunni ek ég út á haustin. helst áður en það frystir. Auk þess set ég mykjuna í flög. Tekur þú tillit til mykjunnar þegar þú ákveður hvað þú berð á mikinn tilbúinn áburð? Nei, ekki mikið, en þó smávegis. Með mykjunni fær jarðvegurinn hins vegar snefilefni. Það má þó segja að mykjan komi gróðrinum af stað á vorin Lætur þú efnagreina heyið? Já ég læt efnagreina árlega nokkur sýni af votheyi og þurrhey og gef annað fóður út frá þeim niðurstöð- um. Reyndar finnst mér komið nokkurt jafnvægi í fóðrið þannig að þessi efnahlutföll eru lík ár frá ári. Þú ræktargrænfóður? Já, eitt lykilatriðið til að halda uppi Hefur þú þá ekki kalkað túnin sérstaklega? Ég hef reynt það lítilsháttar að kalka með skeljasandi en þar er þá Grœnfóðurnœpur er gott að nota til innfóðrunar. (Ljósm. Jón Eiríks- son.) 306 Freyr 8.APRÍL 1990

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.