Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 13

Freyr - 15.04.1990, Blaðsíða 13
H——— Jön á Búrfelli málar í frístundum sínum. (Ljósm. S.G.) víða annars staðar. Ég hef haft þá reglu að setja kýr ekki út fyrr en þær hafa fulla beit sem er oft unr 20. júní. Inn fara þær svo um miðj- an október. Hvernig hefur orðið þróun á búskap hér í hreppi og í nálægum hreppum? Pað hafa margar jarðir farið í eyði á undanförnum árum hér í sveit og sýslu. Það eru oft bestu jarðir í miðri sveit sem fara í eyði, rétt eins og jarðir á jaðri byggðarinnar. Af inndölum hefur Austurárdalur al- veg lagst í eyði. Jarðir þar sem uppbyggingu var lokið áður en vísitölutrygginga lána var komið á standa hvað best og ekki sakar þá að einhverjar tekjur af laxveiði fylgi með. Þetta hefur verið fyrst og fremst sauðfjárræktarhérað og gott sem slíkt, með mikla afrétti. Naut- griparækt hefur verið lítil og kúa- bændum hefur fækkað töluvert að undanförnu. Ég tel mjög mikilvægt að hér í sýslu verði blandaður bú- skapur, það sýnir sig best núna þegar riðuveiki hefur komið upp að nauðsynlegt er að búskapurinn sé blandaður. Varðandi mjólkurframleiðsluna þá höfum við ágætt samlag á Hvammstanga sem er rekið með hagnaði og framleiðir frægan brauðost með rauðri vaxskorpu. Okkur fannst það því alveg út í hött þegar einhverjir spekingar sömdu skýrslu um mjólkurbúa- rekstur og komust að því að hag- kvæmt væri að leggja niður samlag- ið á Hvammstanga. Maður trúir ekki að það verði farið eftir þessu en svona lagað er neikvætt fyrir kúabændur hér. Ostaframleiðsla í lítilli einingu er af hinu góða. Slíkt er alþekkt erlendis og nú er einmitt vaxandi áhugi á að framleiðsla bú- vara tengist ákveðnum fram- leiðslustað þegar á markað er komið. Og það er líka hvetjandi fyrir vöruvöndun. Sérðu fyrir þér þróuninna. Er botninum náð í fækkun byggðra býla? Það er erfitt að spá þar um. Hér er mikið sauðfjárræktarhérað og neysla kindakjöts er minnkandi. Því miður tel ég að það verði ein- hver samdráttur áfram. Unga fólk- ið vill ekki fara út í búskap eins og áður. Loðdýradraumurinn varð að martröð en nokkrir ungir bændur hér fóru út í þá grein. Ég tel að sauðfjárbændur hér í sýslu verði að nota eigið hyggjuvit til að gera eitthvað annað með. Það þarf að styðja menn til slíkra hluta. Sýslan er vel í sveit sett, því að hér um liggur aðal samgöngu- æðin milli Reykjavíkur og Akur- eyrar. Ég tel það hættulegt fyrir sauð- fjárbúskapinn að tengjast svona stíft viðhaldi byggðarinnar. Það kemur neikvæðum stimpli á afurð- irnar. Fólki finnst það vera að borga bændum fyrir að framleiða vöru sem selst illa og það kemur slæmri ímynd á greinina. Það sem tryggir byggðina hér heilmikið er að það koma hér inn verulegar laxatekjur. Ef tilgangur- inn með mjólkur- og sauðfjárkvót- anum er að auka jöfnuð þá virðist sanngjarnt að tekið sé tillit til tekna af hlunnindum þegar kvóta er út- hlutað. Vatnasvæðið sem miðlar vatni í árnar og hafið fyrir utan er sameign þjóðarinnar, þó að árnar sjálfar séu í einkaeign. Laxatekjur eru því í mínum augum eins konar ríkisstyrkur seni örfáir bændur fá í sinn vasa. Þú hefursett fram í Frey skoðun þína á því hvernig bændurstandi að náttúruvernd. Viltu rifja það upp? Ég tel að bændur séu þar á eftir sinni samtíð og skaði sjálfa sig og landið með seinagangi. Samtök bænda eiga t.d. eftir að móta sér stefnu í þessum málum. Það þarf að friðlýsa viðkvæm svæði, huga að urðun úrgangs en ekki henda honum út í náttúruna, láta endur- vinna og nýta aftur það sem unnt er og draga úr ofbeit þar sem um hana er að ræða. Á hinn bóginn þarf líka að auka beit á eyðijörðum þar sem allt er að fara í sinu. Þannig held ég með betra beitarskipulagi megi friða strax mestallt hálendið fyrir beit. Hálendið þarf líka sums staðar að friða fyrir ferðamönnum og forðast þar allar óþarfa fram- kvæmdir. Skurðgröftur og vegagerð síð- ustu ára hér inni á Arnarvatnsheiði er dæmi um framkvæmd sem ég tel umhverfisspjöll. Bændur bera, sem aðaleigendur og umsjónar- menn að stórum hluta landsins, 8. APRÍL 1990 Freyr 309

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.