Freyr - 15.04.1990, Síða 11
nytinni á haustin er grænfóður. Ég
hef ræktað fóðurnæpu síðan ég hóf
búskap hérna, sem er alveg undra
jurt. Stofninn heitir Civasto. Til-
raunastöðin á Möðruvöllum og
Bændaskólinn á Hólum stóðu fyrir
grænfóðurtilraunum hér á Búrfelli
fyrir nokkrum árum og þá frétti ég
af þessari tegund. Mér finnst mið-
ur að leiðbeiningaþjónustan hefur
ekki lagt meiri áherslu á ræktun
hennar en raun ber vitni. Fóður-
næpa er eins og besta kjarnfóður
og kýrnar eru gráðugar í hana.
Hvernig ganga þær að henni?
Þær taka kálið fyrst og naga síðan
næpurnar og nýta þær vel. Ef það
svo gerir eitthvert veðuráhlaup og
hætt er að láta út kýr, þá er hægt að
láta sauðféð eða kálfa nýta það
sem eftir er.
Hefur þú aldrei tekið upp
næpurnar og gefið þær inni?
Jú, ég hef gert það smávegis en það
er vinnufrekt og þar vantar betri
tækni. Hins vegar geymast þær vel
frarn eftir vetri.
Annað grænfóður?
Ég hef oft einnig ræktað hafra,
bæði sumar- og vetrarhafra. Núna
hef ég sett dálítið af grænfóðri í
rúllur eftir að rúllutæknin kom. Ég
hef auk þess sett alla há í rúllur.
Það er fljótlegt, sem er kostur þeg-
ar tíðarfar er úrkomusamt.
Rúllutæknin er einnig hagstæð
að því leyti að auðvelt er að hirða í
rúllur það sem eftir er af höfrum,
þegar komið er að lokum beitar-
tímans. Þá er grænfóðrið gefið úr
rúllum og unnt að jafna fóður-
breytingarnar þegar kýrnar fara á
innistöðu.
Hvernig hagarþú
vetrarfóðruninni?
Fóðrunin sjálf er afar einföld. Ég
hef þá reglu að kýrnar hafa alltaf
nóg að éta og þær eru oft lengi að
éta votheyið, þannig að þær standa
yfir heyi meira og minna allan sól-
arhringinn. Sumir sem sjá þetta
halda að þær hljóta að missa lyst-
ina. Þá svara ég því til, hvort menn
Sigurbjörg Geirsdóttir á Búrfelli á Jökli sínum. (Ljósm. J.E.)
hafi séð kýr missa lyst að sumri til í
góðum haga?
Fyrst eftir burð gef ég hverri kú
hámark 8-9 kg af kjarnfóðri og 2 kg
af graskögglum. Svo ræður nytin
hve hratt ég minnka við þær. Fyrst
eftir burð skipti ég kjarnfóðrinu í
fjóra hluta. Einnig tel ég mikilvægt
að kýrnar séu í góðum holdum við
burð. Þann forða nota þær svo
þegar þær eru í hæstri nyt.
Heilsufarkúnna?
Það gengur nokkuð vel með efna-
skiptasjúkdóma, þ.e. súrdoða
o.s.frv., en það sem er helsta
vandamálið þegar gripir skila
svona miklum afurðum er að ein-
staka kúm hættir til að fá júgur-
bólgu. Það tel ég vera mikið vegna
þess að kýrnar eru ekki nógu vel
gerðar, þ.e. ekki komin nógu mikil
kynfesta í stofninn. Það komagóð-
ir einstaklingar en ekki nógu jafn-
ir. Júgrað er ekki nógu vel byggt,
þ.e. síð júgur, illa gerðir spenar
o.fl. Maður veit að íslenski kúa-
stofninn er lítill þannig að það
8. APRÍL 1990
Freyr 307