Freyr - 15.04.1990, Page 25
kýr. Hér er aðeins birt taflan um
fullorðnu kýrnar. Fyrir fyrstakálfs
kvígurnar kemur fram nokkuð lík
mynd en áhrifin þar eru í heild
minni. Af því leiðir að tilfærsla
burðar hefur ekki jafn mikil áhrif á
afrakstur þeirra eins og fullorðnu
kúnna. Þar gætir m.a. áhrifa af
verulega frábrugðinni mjólkur-
kúrfu hjá þeim og fullorðnu
kúnum.
Þegar bornar eru saman misjafn-
lega afurðamiklar kýr kemur, eins
og vænta má, í ljós að nettótekjur
kúnna sem skila afurðum eru veru-
lega meiri en hjá þeim sem minna
skila. Þannig er hægt að þola af-
urðameiri kúnum meiri tilfærslu
burðar en þeim slakari en eftir sem
áður fá af þeim meiri arð.
Eins og höfundar benda á er
afrakstur eftir grip ekki besti mæli-
kvarði þegar um er að ræða mjólk-
urframleiðslu sem háð er fram-
leiðslutakmörkunum. Þess í stað
beri fremur að nota nettótekjur
eftir hvern framleiddan mjólkur-
lítra. Þeir hafa gert slíka útreikn-
inga. Tölulegar niðurstöður þeirra
er ekki að finna í greininni en þeir
segja að þær sýni nánast sömu
mynd og hér að framan hefur verið
gerð grein fyrir. Helsta frávikið er
að fyrir kýr sem bera síðsumars
virðist heppilegt að færa burð
þannig að frá burði til fangs líði um
120 dagar.
Hér skal ekki reynt frekar að
leggja mat á að hve stórum hluta
niðurstöður sem þeirra eiga við hér
á landi. Nokkuð víst er að ytri línur
þessa gilda hér. Ætla má að ýmsar
stærðir í þessu kunni samt að vera
nokkuð frábrugðnar. Tilgangurinn
er fremur sá að vekja menn til
umhugsunar um það hvaða þættir
það eru sem nauðsynlegt er að taka
tillit til við skipulagningu gagnvart
þessum þætti í búrekstrinum. Það
er m.a. misjafnt eftir burðartíma
kúnna hve eðlilegt er að þola þeim
mikla tilfærslu í burði áður en förg-
un kemur til álita.
I áðurnefndri rannsókn Einars
Svavarssonar hjá íslenskum
mjólkurkúm kannaði hann áhrif af
mislöngum tíma á milli burða á
afurðir kúnna. í töflu 2 eru sýnd
mþessi áhrif. Má ætla að við þær
tölur megi styðjast við mat á þess-
um þætti.
Skógrækt í Bretlandi
Þúsund bændur í Bretlandi hafa
fengið heimild til að gróðursetja
trjáplöntur í alls 7000 hektara
Iands. Þetta er liður í áætlun EB að
draga úr framleiðslu í hefðbundn-
um búgreinum. Lauftrjám verður
plantað í þrjá fjórðu þessa ofan-
greinda lands. Áformað er að
planta trjám í alls 36000 ha í
Bretlandi.
GULLBOK
HAIR VEXTIR,
VERÐTRYGGING
OG ALLTAF LAUS!
SBÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
8. APRÍL 1990
Frevr 321