Freyr - 15.04.1990, Page 26
Agnar Guðnason
Frjálsarkartöflur, ncytcndur
og bændur
Pað eru 5 ár liðin síðan Búvörulög-
in voru samþykkt á Alþingi. Þá var
afnumin einkasala Grænmetis-
verslunar landbúnaðarins á kart-
öflum. Jafnframt var innflutningur
gefinn frjáls þegar ekki var nægi-
legt framboð á innlendum garðá-
vöxtum. Fyrir 5 árum var rekinn
mikill áróður fyrir frjálsri verslun
með garðávexti. Þessvegna er nú
fróðlegt að reyna gera sér grein
fyrir hvernig þróunin hefur verið á
þessu sviði síðastliðin 5 ár:
Er skipulag á framleiðslu og
dreifingu garðávaxta betra nú en
var árið 1984?
Hefur verðið hækkað minna en
á öðrum búvörum?
Fá neytendur betri garðávexti og
grænmeti nú en árið 1984?
Hefur framboð aukist og meiri
fjölbreytni í vali?
Hefur neyslan aukist?
Hefur frelsið orðið til góðs fyrir
framleiðendur og neytendur?
Eru garðávextir heilbrigðari og
útlitsfallegri nú en áður?
Þessum spurningum öllum er
hægt að svara á einn veg, með einu
stóru NEI -i
Skipulag
framleiðslunnar og
dreifing
Samstaða meðal framleiðanda er
ekki nægilega góð. Það hefur
reynst þannig þessi 5 ár að ákveðn-
ir menn hafa viljað fara aðrar leiðir
en félagssamtök framleiðenda
hafa talið bændum hagstæðar. Það
hefur mikið skort á félagslega sam-
stöðu og flestir framleiðendur hafa
Ingvi í Oddsparti í Pykkvabæ og Eðvald Malmquist fyrrum yfirmatsmaður
garðávaxta fylgjast með kartöflunum þar sem þœr renna eftir fœribandinu á
upptökuvélinni fyrir 10 árum. Enn þá eru notaðar sömu vélar og rœktuð sömu
afbrigði, en enginn er matsmaður til lengur (Myndir og texti: A.G.)
322 Freyr
8. APRÍL 1990