Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1990, Side 39

Freyr - 15.04.1990, Side 39
£0 Grjóteyjar og óræktablettir eru hentugir staðir til trjáplöntunar. Trjá- og runnategundir verður að sjálfsögðu að velja samkvæmt aðstæðum á hverjum stað og sjálfsagt er að ráðfæra sig við garð- yrkjumenn eða aðra sem hafa reynslu á sviði trjáræktar, um þau mál. Þá sakar ekki að líta í kring um sig og skoða þann gróður sem þrífst í nágrenninu og vinna úr þeim efnivið. Einnig ættu menn að vera óhræddir við að prófa minna reyndar tegundir, a.m.k. í litlum mæli. Tegundir. Erfitt er að gefa upp nákvæm- lega hvaða tegundir henta á hverj- um stað, en hér verða nefndar nokkrar þær harðgerðustu og svip- mestu. 1. Alaskaösp. Hún er fljótvaxn- asta lauftréð sem við eigum völ á og sýnir fljótt árangur við góð skil- yrði. Hún þarf frekar raka og frjósama jörð. 2. Greni. Sitkagrenið er fljót- vaxið en kýs mikla úrkomu og góð- an jarðraka. Blágreni og hvítgreni vaxa hægar og una sér betur þar sem úrkoma er ekki mikil. 3. Fura. Stafafura er t.d. fljót- vaxin og hefur víða reynst vel. Broddfura er ákaflega harðgerð en seinvaxin. Fleiri furutegundir koma einnig til greina, svo sem bergfura og fjallafura en þær hafa runnkenndara vaxtarlag. 4. Lerki. Rússalerki og S/beríu- lerki spjara sig vel í ófrjórri jörð og Veðurofsinn sem gekk yfir ýmis V.-Evrópulönd þann 25. janúar sl. olli víða gríðarlegum usla og tjóni á gróðurhúsum og þeim gróðri sem í þeim stóð. Ekki síst reyndist skað- inn mikill í Englandi og Hollandi. Að undanförnu hafa tryggingar- aðilar verið að taka saman tjónið í Hollandi, en þar sér eitt trygging- arfélag um vátryggingu 80% af gróðurhúsaeign landsmanna. Fé- laginu bárust 8200 tjónatilkynning- ar símleiðis. Nú er giskað á að þarf ekki áburðargjöf. Það hentar þvível t.d. í ófrjóa mela þar sem er lítil úrkoma. 5. Alaskavíðir. Hann er mjög fljótvaxin og harðgerð runnateg- und en er áburðarfrekur. Hentar vel sem skjólgróður o.fl. 6. Birki. Birkið er gamalreynd trjátegund sem þrífst víða en vöxt- ur er oft hægur. 7. Skrautrunnar og tré. Hér er um stóran hóp að ræða en flestum þeirra hentar illa að standa alveg á berangri. Má þar nefna t.d. reyni, úlfareyni, silfurreyni, hegg og gull- regn, einnig hansarós, fjallarós, ýmsar víðitegundir o.m.fl. Hér hafa verið nefnd nokkur dæmi um hvernig gera má landið meira aðlaðandi með gróðri. Hins vegar verður að virkja frumkvæði bænda sjálfra og sanna það að hér sé hægt að rækta fleira en gras og garðyrkjutjón í Hollandi nemi tæp- lega 4 milljörðum króna en trygg- ingarfélagið hefur 3/5 hluta þeirra upphæðar á ári í tryggingariðgjöld. I ljós kom að mesti veðurofsinn herjaði í um 9 klst. Hófst um miðj- an dag og lægði um miðnættið. I mörgum gróðurhúsabýlum eyði- lagðist ræktun nær algjörlega. Verst fóru gróðurhús sem voru eldri en 5 ára. Einnig í suðurhluta Englands reyndist tjón tilfinnanlegt í þessu stuðla þannig a aukinni vellíðan manna og dýra. Að lokum er svo rétt að ítreka það, að öfugt við kálfinn sem laun- ar sjaldnast ofeldið, skilar góð um- hirða plantnanna sér margföld til baka sem meiri og fljótari árangur. Helgi Pórsson erfrá Kristnesi i Eyja- firði. Hann er búfrœðingur frá Hvanneyri 1987 og lýkur prófi á um- hverfisbraut frá Garðyrkjuskóla rík- isins vorið 1990. Ingólfur Jóhannsson er frá Upp- sölum í Öngulsstaðahreppi í Eyja- firði. Hann er búfrœðingur frá Hólum árið 1986 og lýkur prófi á skrúðgarðyrkjubraut frá Garðyrkju- skóla rikisins vorið 1990. Samson B. Harðarson er frá Reykjavík. Hann lýkur prófi á garð- plöntubraut frá Garðyrkjuskóla rík- isins vorið 1990. fárviðri. Vitað er að eitt trygging- arfélag þar hefur fengið um 18000 kröfur frá bændum upp á svipaða upphæð og skaðinn nam í Hol- landi. Óvanalega miklir vindar hafa gnauðað síðan við og við um ýmis svæði áðurnefndra landa og valdið umtalsverðu viðbótartjóni, en í fyrrnefndum veðurofsa sem herj- aði fórust 18 manns í Hollandi. (Fréttabréf frá Blómamiðstöðinni, 1/90). Vetrarvindar

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.