Freyr - 01.09.1993, Qupperneq 9
17.’93
FREYR 585
Hólmfríður og Cuðmundur.
Helgi og Máni meö fjölskyldum
sínum. Þeir búa félagsbúi með föð-
ur sínum. Kona Guðmundar
Helga er Lára Magnea Hrafnsdótt-
ir en Hólmfríður Freysdóttir er
kona Mána.
Á Halllandi II, sem stendur á
1000 fermetra eignarlóð rétt sunn-
an við íbúðarhúsið á Halllandi I,
eiga heima Guðrún Guðmunds-
dóttir og maður hennar Hrafn
Hauksson ásamt börnum sínum. Á
Halllandi III búa Ásrún Elín Guð-
mundsdóttir og maður hennar Jón
Rúnar Þorsteinsson með sínum
börnum. Húsið stendur á 700 fer-
metra lóð sunnan við gamla bæinn.
Ábúendur á Halllandi II og III
stunda vinnu á Akureyri. Á Hall-
landi IV, í nýlegu húsi, eiga svo
Guðmundur og Hólmfríður
heima.
Einn sonurinn, Haraldur og Sig-
urbjörg kona hans reka ferðaþjón-
ustu á sumrin niðri við þjóðveginn,
þar heitir að Húsabrekku.
Fréttamaður Freys lagði leið
sína heim í Hallland í júnílok sl. og
hitti Guðmund og Hólmfríði að
máli.
Félagsbúið á Halllandi ræður yf-
ir 140 þúsund lítra kvóta „og á
þessu lifa þrjár fjölskyldur" segir
Guðmundur en bætir við að fyrir
komi að heimilisfólk sæki vinnu til
Séð heim að Halllandi. Fjós, hlaða og elsta íbúðarhúsið. Pað hefur allt verið
endumýjað að innan og eru þar tvær íbúðir. Brœðurnir Guðmundur Helgi og
Máni og fjölskyldur þeirra eiga þar heima. Til hœgri er íbúðarhús Hrafns og
Guðrúnar á Halllandi II.
Akureyrar. Máni vinnur stundum
sem dyravörður á Sjallanum og
konurnar hafa líka unnið úti en
gera það ekki núna vegna þess að
vinna hefur dregist saman.
Þau Guðmundur og Hólmfríður
hófu búskap á Halllandi árið 1947
og bjuggu á hálfri jörðinni til 1958
en á allri jörðinni síðan. Sama ætt-
in hefur búið þar nær alla þessa
öld.
Guðmundur keypti jörðina af
Helga föðurbróður sínum árið
1958 og reisti þá fjós fyrir 24 kýr og
aftur 1982 bættu þau Guðmundur
og Hólmfríður við fjósið rúmum
100 fermetrum fyrir geldneyti í
lausgöngu og fyrir norðan þann
hluta er mjaltabás, mjólkurhús og
snyrting. Álls eru nú 36 básar í
fjósinu fyrir mjólkurkýr, annað
pláss er fyrir geldneyti og holda-
blendinga. Samtals eru um 100
hausar á búinu og 140 þúsund lítra
mjólkurkvóti eins og áður sagði
„og við kvörtum ekki neitt“, sagði
Guðmundur.
Áður en vinna hefst á morgnana
er haldinn fundur þar sem spjallað
er saman um verkefni dagsins,
vinnan skipulögð og verkum raðað
niður. „Hér ræður enginn einn“
segir Guðmundur, og Hólmfríður
bætir því við að enginn hlutur sé
keyptur til búsins nema með sam-
þykki fjölskyldufundar.
Á Halllandi er gróður fjölskrúð-
ugur. Trjálundir eru við bæjarhús-
in. í brekkunni upp af húsunum
standa ung lerkitré og aspir, og
trjáplöntur dafna vel í skorunum í
klettabeltinu upp af bænum. Hér
býr greinilega áhugafólk um
skógrækt.
„Stærstu trén eru síðan 1950“,