Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 36

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 36
r SÓLDAGAR Ijóðasafn Guðmundar Inga Kristjánssonar Bók þessi er heildarljóðasafn Guðmundar Inga Kristjánssonar á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði (f. 1907). Efni Sóldaga er fimm bækur skáldsins, Sólstafir (1938), Sólbráð (1945), Sóldögg (1958), Sólborgir (1963) og Sólfar (1981), en að auki forvitnilegt úrval kvæða þess frá seinni árum. Helgi Sæmundsson bjó Ijóðasafnið til prentunar. Guðmundur Ingi er listhagur á mál og rím og gerðist snemma sérstæður meðal íslenskra nútímaskálda. Hann yrkir gjarnan um líf sitt og starf sem vestfirskur bóndi, svo og um sveit sína og átthaga, samferðamenn og tilefni líðandi stundar, en einnig um ísland í blíðu og stríðu, atburði úr sögu þjóðarinnar og brýna skyldu okkar við fósturjörðina. Jafnframt er Guðmundur Ingi víðsýnn heimsborgari sem lætur sig varða framtíð mannkyns og örlög veraldar. Dæmi um viðhorf og afstöðu skáldsins er austurlandaför: Dimmt loft og drungalegt, augað er þó glatt. Vot jörð og vindhviður, þó er fótur feginn. Ijóðið Stigið á ísland, ort við heimkomu úr Hánótt og haustveður, samt er maður sæll. ísland autt og svalt. Ég á heima hér. Kvæðin í Sóldögum bera Guðmundi Inga Kristjánssyni vitni sem einlægu og djarfmæltu skáldi er ennþá gegnir köllun sinni í hárri elli. Hörpuútgáfan býður Sóldaga á sérstöku kynningarverði við útkomu í haust. Verð í bókaverslunum er áætlað kr. 3420, en áskriftarverð hins vegar ákveðið kr. 2900. Þeir sem vilja eignast bókina með þessum vildarkjörum riti nöfn sín á meðfylgjandi pöntunarseðil, og fá áskrifendur hana þá senda. Þeir sem vilja ekki klippa blaðið er bent á að Ijósrita pöntunarseðilinn. Hörpuútgáfan, Stekkjarholti 8-10, sími 93—12860, 300 Akranes. PÖNTUNARSEÐILL GREIÐSLUHÁTTUR: Já, takk. Ég undirritaður/uð tek tilboði Hörpuútgáfunnar og panta_______eintak/eintök af bókinni Þóstkrafa 0 Verð bókarinnar er kr. 2.900, að viðbættu póstburðargjaldi. VISA □ EUROCARD □ Nafn: Númer kortsins: Heimili: Póstnúmer: Staður: i i m .............................................. Gildistími kortsins: □□ m Einnig er hægt að framvísa pöntunarseðli í forlaginu J

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.