Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 10

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 10
586 FREYR 17.'93 rætur hennar hefur Hólmfríður gróðursett villiblóm, en uppi á klöppinni er tvennt sem maður sér ekki venjulega heima við sveita- bæi, en það er akkeri og varða og snýr akkerið bugnum utanverðum að vörðunni. „Þetta er til að vísa leiðina að settu marki,“ segir Guð- mundur. Hann segist alltaf hafa haft þetta fyrir framan bústað sinn og flutti með sér að nýja húsinu. Hólmfríður er Bárðdælingur, ættuð frá Stóru-Tungu í Bárðar- dal. Guðmundur segir að hún hafi græna fingur. „Þrjú af börnum okkar eru búin að byggja hérna og tveir af sonum okkar eiga hér lóðir líka þar fyrir utan. Allt þetta fólk vinnur á Akureyri, nema strákarn- ir tveir, sem eru við búskapinn. Peir eru báðir fjölskyldumenn." Fram að þessu höfum við Guð- mundur og Hólmfríður staðið úti á hlaði í sólarblíðu sumarsins, því nú hafði birt upp í ótíðinni. Handan fjarðarins blasti við höfuðstaður Norðurlands með öllum sínum grænu trjágörðum, baðaður í síð- degissól. Nú héldum við inn í íbúðarhúsið á Halllandi IV, en það reistu þau Guðmundur og Hólmfríður og fluttu í fyrir tveimur árum. Pau gerðu sér garðskála syðst í húsinu, dvelja þar oft og nota stundum fyrir borðstofu. Sunnan við garð- skálann er verönd með útsýni fram Eyjafjarðarsveit. „Strákarnir byggðu húsið með okkur og þeir eiga hér hlut í þessu. Við hættum líklega að búa í haust eða um áramót. Pá fá þeir íbúðirn- ar heima upp í þessa,“ segir Guð- mundur, en heima í íbúðarhúsinu á Halllandi I eru tvær íbúðir. „Það er þægilegt að eiga heima svona nálægt bænum upp á vinnu. Margt af fólkinu sem á hér heima stundar þar vinnu, þetta er svona sjö mínútna akstur í bæinn. En ég hugsa jafnvel að Hallland sé ein af þessum jörðum sem ekki ætti að búa á, þetta er svoddan kot. Túnið okkar er allt saman snarbratt og eintómir smáhjallar. En það hefur samt tekist að byggja þetta svona upp.“ Við (búðarhús Guðmundar og Hólmfríðar á Halllandi IV stendur akkeri og varða. Bílskýli er í norðurenda hússins, verönd við suðurstafn. segir Guðmundur og bendir á tré sem ber yfir lækinn „hitt allt hefur konan mín borið uppeftir og sett í skriðurnar." Hólmfríður hefur búið þessi fósturbörn út með nesti, þ.e.a.s. hún hefur borið mold upp í hlíðina og lagt að rótum hvers trés sem hún hefur gróðursett í hrjóstugum brekkunum. Trén dafna þarna yf- irleitt vel, enda segir Guðmundur að flest dafni í umsjá konu sinnar. Framan við nýja húsið þeirra hjónanna er lág klöpp og þar við Ferðaþjónustustöð Haraldar og Sigurbjargar í Húsabrekku.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.