Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1993, Side 23

Freyr - 01.09.1993, Side 23
17.’93 FREYR 599 Niðurstöður úr notkun ómsjár við lambhrútaval haustin 1991 og 1992 Jón Viðar Jónmundsson í 15.-16. tölublaði Freys á síðasta ári eru tvœr greinar þar sem gerð er grein fyrir notkun á ómsjá við mœlingu á vöðva- og fituþykkt hjá lömbum. Stefán Scheving og Sigurgeir Þorgeirsson gera þar grein fyrir fyrstu niðurstöðum úr þeim tilraunum sem hófust haustið 1990 með notkun á tœkinu við fjárrœktarbúið á Hesti. ólafur G. Vagns- son gerði grein fyrir notkun á tœkinu við lambhrútaval haustið 1991. í þessum greinum er lýst hvaða þœttir eru mœldir og hvernig mœling er framkvœmd. Eins og fram kemur í áðurnefnd- um greinum er hér um að ræða nýja tækni sem aðeins eru örfá ár síðan náði þeirri þróun að vera nothæf til mælinga á sauðfé. Fyrsta tækið kom hingað til lands haustið 1990 og er sameign Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins og Bún- aðarfélags íslands. Það tæki hefur mest verið notað við tilraunir á fjárræktarbúinu á Hesti en einnig á hrútasýningum víða um land. Haustið 1991 komu allmörg tæki til notkunar hjá búnaðrsambönd- unum, en þau eru: Eitt á svæði Búnaðarsamtaka Vesturlands, eitt í Strandasýslu, eitt í Vestur-Húna- vatnssýslu, eitt í Skagafirði, eitt í Eyjafirði og eitt í Suður-Þingeyjar- sýslu. Haustið 1992 bættist síðan eitt tæki við hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Pessi tæki eru af tveim mismunandi gerðum. Tæki Skag- firðinga og Sunnlendinga eru hol- lensk en hin tækin eru bresk. Hér á eftir er gerð grein fyrir nokkrum niðurstöðum úr mæling- um á lambhrútum víða um land haustin 1991 og 1992 með þessum tækjum. Um leið er rétta að nefna mjög athyglisverðar niðurstöður í aðalverkefni Ólafar Einarsdóttur frá Búvísindadeildinni á Hvann- eyri á sl. vori. í því verkefni athug- aði hún möguleika þess að nota Jón Viðar Jónmundsson. ómsjármælingar í stað hefðbund- inna mælinga í sláturhúsi við af- kvæmarannsóknir á hrútum. Nið- urstöður úr því verkefni verða von- andi bráðlega kynntar hér í blað- inu, en þær eru einnig hafðar til hliðsjónar við mat á þeim niður- stöðum sem hér verður greint frá. I þessari athugun voru upplýs- ingar fyrir 3099 hrútlömb sem höfðu komið til lambhrútaskoðun- ar haustin 1991 og 1992 og jafn- framt verið mæld með ómsjá. Reynt var að kanna áhrif nokkurra þeirra þátta sem reynsla og fyrri rannsóknir gefa tilefni til að ætla að hafi áhrif á niðurstöður mæling- anna. Þeir þættir sem hér voru skoðaðir voru áhrif af mælingar- tækjum eða svæðum landsins, áhrif af þunga lambsins og áhrif þess hvernig lambið hafði gengið undir (einlembingur-tvílembingur). Með hvert tæki á hverju svæði hafa yfirleitt unnið einn eða fáir aðilar. Augljóst var að á milli svæða var fyrir hendi munur. Þessi munur hefur verið metinn og er í töflu 1 gefið yfirlit um þær niður- stöður. Tafla 1 sýnir að fram kemur verulegur munur á milli svæða. Hér skal ekki reynt að skýra þenn- an mun en bent á nokkrar hugsan- legar skýringar. Munur á milli tækja sem í notk- un eru. Eins og fram hefur komið eru tvær gerðir tækja í notkun. Sá takmarkaði samanburður sem gerður hefur verið á þeim hefur gefið bendingar um mun sem mundi nema um tveim mm í vöðvaþykkt. í þessum gögnum er tvenns konar óbeint mat á þetta. Á Suðurlandi var notað haustið 1991 tæki Rala og BÍ, en haustið 1992 eigið tæki. Haustið 1991 voru í Skagafirði tvö tæki í notkun, þar sem hluta haustsins var bilun í þeirra tæki og eyfirska tækið þá

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.