Freyr - 01.10.1994, Page 2
JARÐVEGSFRÆÐI
r
Út er komin Jarðvegsfræöi, kennslubók fyrir
búnaðarskóla og almennt fræðslurit, eftir
Þorstein Guðmundsson, jarðvegsfræðing. Bókin
fjallar m.a. um: *Jarðvegsmyndun, *Eðlis-
eiginleika og vatn í jarðvegi, *Næringarefni í
jarðvegi, *Vist jarðvegsins, *Jarðvegseyðingu,
mengun, þjöppun og jarðvegsvernd, *Jarðvegs-
flokkun, *Vatnsmiðlun og *Jarðvinnslu.
Nauðsynlegt leiðbeiningarit og handbók fyrir
alla sem stunda ræktun. Verð kr. 2.000, auk
sendingarkostnaðar.
Til sölu hjá útgefanda:
Búnaöarfélagi íslands
Pósthólf 7080, 127 Reykjavík
Sími 91-630300
Osta- og smjörsalan sf. tekur upp
gœðakerfi ISO 9002
Osta- og smjörsalan sf. hefur
tekið upp gæðakerfi ISO 9002 og
fékk nýlega staðfestingu þar um
frá úttektarfyrirtækinu Vottun hf.
Osta- og smjörsalan sf. hefur
unnið að uppbyggingu kerfisins
undanfarin misseri og er hún fyrsta
íslenska matvælafyrirtækið innan
landbúnaðargeirans sem tekur upp
vottað gæðakerfi, en stefnt er að því
að mjólkurbúin taki einnig upp ISO
kerfið og byggi þá m.a. á þeirri
reynslu sem fengist liefur hjá Osta-
og smjörsölunni sf.
Ljóst er að með væntanlegum
milliríkjaviðskiptum með búvörur
mun samkeppni harðna og nauðsyn-
legt er að íslenskur mjólkuriðnaður
standi sem best að vígi og sé með
viðurkennt gæðakerfi, sambærilegt
og notað er í mjólkuriðnaði í ná-
grannalöndunum.
Frá afhendingu staðfestingarskjalsins um að Osta- og smjörsalan sf. hafi staðist
kröfur ISO 9002. Frá vinstri Gunnar H. Guðmundsson, ráðgjafi Ráðgarðs hf, en
hann aðstoðaði við uppbyggingu gœðakeifisins, Kjartan ./. Kárason, fram-
kvœmdastjóri Vottunar hf., Oskar H. Gunnarsson, forstjóri OSS, Þorsteinn
Karlsson, framkvœmdastjóri tœknisviðs OSS.