Freyr - 01.10.1994, Page 8
I svona hop verður að vera
góður andi
Petrea Hallmannsdóttir ó Þormóðsstöðum í viðtali við Frey
„Eg hóaði saman
nokkrum ein-
staklingum og við
settum á fót Gallerí
ÍSunnuhlíð"
Petrea Hallmannsdóttir.
Freysmyndir.
688 FREYR - 19'94
Petrea Hallmannsdóttir er húsfreyja á
Þorinóðsstöðum í Sölvadal í Eyjafjarð-
arsveit. Maður hennar heitir Egill Þór-
ólfsson og eiga þau tvo syni. Bústofninn
er nokkrar kýr og kindur fyrir heimilið
og af þeini hafa þau aðal tekjurnar.
Petrea hefur starfað með starfshópnum
„Hagar hendur“ en frumkvæði að þeim
félagsskap kom frá atvinnumálanefnd
Eyjafjarðar með aðstoð Elínar Antons-
dóttur.
- Ég er búin að stunda handiðnað alveg
síðan ég var ung og byrjaði að búa, sagði
Petrea í viðtali við Frey. Ég átti heima á
ísafirði í 10 ár, bjó svo í Húnavatnssýslu í
5 ár, og þar málaði ég mikið „Drottinn
blessi heimilið" á silki og hnýtti blóma-
hengi. Þar eignaðist ég minn fyrsta brenni-
penna sem er atvinnutæki mitt nú.
Tvenns konar handverks-
hópar
Ég kom hingað í Eyjafjörð 1982 og fyrir
þremur árum var hafist handa með
átaksverkefni hjá atvinnumálanefnd og í
framhaldi af því voru Hagar hendur stofn-
aðar. Ég var með í þeim félagsskap til að
byrja með. Þetta eru nær eingöngu konur
með stór bú, þannig að þær vinna að fram-
leiðslu sinni í hjáverkum. Svona hópum
þarf eiginlega að tvískipta þannig að þær
sem stunda þetta sem atvinnu séu ekki
heftar af þeim sem nota þetta sem
afþreyingu. Mér finnst afþreyingarfólkið
eiga að vera með, en alls ekki að stjórna.
Ég framleiði of mikið til að það henti
mér að fara á markað nokkrum sinnum á
ári, enda er þetta atvinna mín. Svo er ég
búin að stunda þetta í svo mörg ár og vera
sjálfs míns húsbóndi að mér fannst ég bara
alls ekki passa inn í þetta dæmi. En það
var gaman að vera með í uppbyggingu
Hagra handa og ég hef trú á að þær konur
spjari sig, enda allar á svipuðu róli.
Þegar þetta gekk ekki upp, hóaði ég
saman nokkrum einstaklingum sem hafa
handverk ýmiss konar að atvinnu, en inn í
þann hóp hafa svo bæst nokkrir sem hafa
þetta sem aukavinnu og við settum á stofn
Gallerí í Sunnuhlíð. Þessi hópur er ekki
bundinn við hrepparíg, við erum úr öllum
Eyjafirði, þó vantar einhvern úr austan-
verðum firðinum. Mér finnst alveg fárán-
legt að fólk skuli ekki geta fengið að vera
með af því að það býr ekki í réttu sveitar-
félagi, ég vil geta unnið með fólki hvar
sem það býr á svæðinu.
Vinnur maðurinn þinn við búið?
Já, en hann er rafvirki og hefur unnið
við þá grein með búskapnum, nema mjög
lítið síðastliðið ár, það er samdráttur í
þeirri iðn lfka.
Sölubúð og vinnustofa í
Sunnuhlíð
Getur þú sagt mér eitthvað um Sunnu-
hlíð?
Sunnuhlíð er verslunarmiðstöð utan
I búðinni er margt eigulegra muna.