Freyr - 01.10.1994, Side 9
Glerár. Þar eru fataverslanir, fatahreins-
un, raftækjaverslun, vefnaðarvöruverslun,
filmuframköllun, hljóðfæraverslun sem ég
held að sé sú eina hér á Akureyri,
matvöruverslun og banki, brauðbúð, krá
og fleira. Þetta er mjög góður kjarni og
góður andi í húsinu.
Við leigðum eitt verslunarplássið og
opnuðum þar 21. október 1993. Að þessu
standa 14 konur á svæðinu milli Ólafs-
fjarðar og Sölvadals. Þær eru frá Ólafs-
fírði, Dalvík, Hauganesi, Akureyri og
Eyjafjarðarsveit.
Ög þangað koma þær með sína fram-
leiðslu?
Já, og hún er mjög fjölbreytt, sem dæmi
má nefna smávöru og dúka úr bútasaum,
skálar, vasa, ljós o.fl. úr leir, heimaunna
ull, hatta, lampaskerma, ýmislegt úr leðri,
roði, selskinni tré o.fl. sem of langt mál
yrði upp að telja. Þetta Gallerí er ekki
eingöngu stílað upp á erlenda ferðamenn,
þar eru miklu heldur vörur sem höfða til
Islendinga, þá bæði til gjafa og svo til að
fegra heimilið. Galleríið er opið alla daga
eins og venjuleg verslun, á bak við höfum
við vinnupláss og vinnum þama allar
jafnt, tökum allar ákvarðanir saman. Ég er
ekki einræðisherra eins og sumir vilja
halda fram.
Eru einhverjir sem halda það?
Já, svona utan að komandi; sumir minna
gömlu félaga í Högum höndum halda það,
en það er ekki rétt. Ég vil taka það fram að
karlmenn eru velkomnir í hópinn. Einn
eiginmaðurinn er svona að hálfu leyti með
okkur.
Virðisaukaskattur á selda
handiðju sveitakvenna -
ekki kaupstaðakvenna
Úr
ullarvöruhorninu.
Hvernig gengur reksturinn?
Hann gengur bara mjög vel, við þurfum
ekkert að kvarta. Það er alltaf að aukast að
fólk viti af okkur þarna. Við erum svolítið
út úr en ferðamaðurinn er farinn að finna
okkur líka. Ég held að svona gallerí verði
ekki sett af stað með góðu móti nema allir
vinni jafnt að því. Það er eina ráðið til
þess að við höldum tengslum við við-
skiptavini og við vöruna okkar. Þá heyrum
við sjálf hvað betur má fara, hvað það er
sem viðskiptavinurinn er að leita að. Með
því að vinna einn dag eða hálfan dag í
viku finnum við viðbrögð viðskiptavin-
anna. En ef við þyrftum að vera í
umboðssölu einhvers staðar fjarri okkur, þá
fengjum við aldrei að vita hvað er að. Og
svona losnum við líka við álagninguna á
vöruna. Það er mjög stórt atriði. þó að við
Með því að vinna
einn dag í viku
finnum við viðbrögð
viðskiptamanna.
Vigdís Sœvaldsdóttir var við afgreiðslu
í versluninni.
4;.. yji wr
19'94 -FREYR 689