Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 16
Sýningardráttarvélar frá Valmet á hlaðinu við verksmiðjttna í Suolahti. Freysmyndir.
Valmet dráttarvélar í farar-
broddi á Norðurlöndum
Dráttarvélar frá Finnlandi hafa bœst við á þungavinnuvélamarkaðinn á íslandi.
Vélarnar koma frá Valmetverksmiðjunum í Finnlandi en það eru einu verk-
smiðjunar á Norðurlöndum, sem framleiða dráttarvélar.
Valmet er eitt af stærstu fyrir-
tækjum Finnlands og framleiðir auk
dráttarvéla, díselhreyfla, þunga-
vinnuvélar, skógarvélar, vélar fyrir
pappírsiðnað o.fl.
Fyrsta maí í vor sameinuðust
deildir úr Valmet finnska ríkis-
fyrirtækinu Sisu sem þekkt er fyrir
að framleiða vörubíla, brynvagna og
beltavagna. Valmet á að baki meira
en 40 ára sögu í smíði dráttarvéla,
en þær tegundir sem nú eru á
markaðinum eru hannaðar og fram-
leiddar í samvinnu við Volvo í Sví-
þjóð. Þetta eru vandaðar vélar sem
hafa náð mikilli útbreiðslu á hinum
Norðurlöndunum. Þannig var meira
en fjórði hver traktor sem seldist þar
árið 1993 Valmet. Hér á landi hafa
þegar selst nokkur eintök. Bújöfur
hf flytur Valmet inn, en fyrirtækið
var stofnað fyrir rúmu ári.
Nú ætla ég að segja frá ferð sem
við sex íslendingar fórum til Finn-
lands í apríl í vor í boði Bújöfurs hf.
og Valmet-fyrirtækisins. Við heim-
sóttum reyndar fleiri fyrirtæki held-
ur en Valmet.
Við lögðum af stað árla morguns
laugardaginn 23. apríl og flugum í
ágætis veðri, komum við í Stokk-
hólmi og héldum svo þaðan áleiðis
til Helsinki. Noregur og Svíþjóð
voru grábrún yfir að líta úr flug-
vélinni, hvergi var grænku að sjá því
vorið hafði verið kalt.
í Helsinki komum við út í vor-
veður, en skammt var síðan að hlýna
tók því allstaðar voru vötn ísilögð
og snjór ennþá víða í skógarbotnum.
En nú var kominn 14-16 stiga hiti
og þegar við fórum heim aftur
fjórum dögum síðar, þá var vetrar-
hveitið farið að spíra og gras farið
að næla sunnan í móti.
Við gistum fyrstu nóttina á hóteli í
miðborginni sem heitir Hotelli Turni
og áttum þar góða vist, fórum m.a. í
finnska sánu. Við komum á rúss-
neskt veitingahús sem heitir Kós-
akkinn, þar sem allt var í stíl gamla
696 FREYR- 19 94